Vera - 01.05.1994, Blaðsíða 2
LEIÐARI
VERA
TÍMARIT UM KONUR OG KVENFRELSI
FRAMAKONUR OG FEGURÐARDÍSIR
2/1994-13. árg.
VERA
blað kvennabaráttu
Pósthólf 1685
121 Reykjavík
Kt. 640185-0319
Sími: 91-22188
Fax: 91-27560
Utgefandi:
Samtök um kvennalista
Forsiða:
Sóla
Þegar þessar línur eru skrifaðar er fátt sem
bendir til þess að konum muni fjölga í
sveitarstjómum á næsta kjörtímabili og við
erum Qarri því takmarki sem alþjóðleg
kvennasamtök hafa sett sér að konur verði
helmingur allra sveitarstjómarmanna um
næstu aldamót. í könnun sem Stefanía
Traustadóttir félagsfræðingur Jafnréttisráðs
gerði á konum í sveitarstjómum kom m.a. í
ljós að hin dæmigerða sveitarstjómarkona
er vel menntuð, í fullu starfi, á fertugsaldri,
á tvö til þrjú böm, er virk í félagsmálum og
ýmsum kvennasamtökum og ætlar ekki að
sitja annað kjörtímabil þótt henni líki starf-
inn. Þær em nefnilega flestar að sligast
undan þreföldu vinnuálagi, í vinnunni,
heima og í pólitikinni, því sveitarstjómar-
málin taka að meðaltali 15 stundir á viku.
En margar láta ekki deigan síga og þessar
vikumar er nóg að gera í kosningaundir-
búningnum. Konur í framboði stunda því
launaða vinnu sína eins og lög gera ráð fyr-
ir, sinna misumfangsmiklum húsmóður-
skyldum og sækja ótal fúndi þar sem málin
em rædd, stefnan fullmótuð og línur lagðar.
Þær fara á ræðunámskeið, æfa sig í fram-
sögn, skrifa greinar í blöð og heimsækja
vinnustaði og mæta á aóra fundi til að boða
fagnaðarerindið. Og margar þurfa að selja
happdrættismiða til að borga kosningabar-
áttuna. Það verður að nýta tímann vel áður
en stóra stundin, kosningamar sjálfar, renn-
ur upp.
Annar hópur kvenna hefur líka unnið
sleitulaust í frítíma sínum undanfamar vik-
ur til að ná þvi markmiði að verða kjörin
Ungfrú ísland 20. maí næstkomandi, en 21
kona keppir um titilinn. Þær hafa sótt nám-
skeið þar sem farið er í framkomu, kurteisi
og siðvenjur, þeim hefur verið kennt að
heilsa með handabandi, taka á móti fólki og
halda uppi samræðum. Þær sækja einnig
námskeið hjá snyrtifræðingi þar sem þeim
er kennd umhirða húðarinnar og fá leið-
beiningar um notkun snyrtivara. Mikill tími
hefur farið í líkamsrækt og þær stúlkur sem
þurftu að grenna sig hafa fengið sérstaka
tilsögn í æfingum fyrir þá líkamshluta sem
hafa verið tald ir of viðamiklir og allar fá
leiðsögn um mataræði. Þær þurfa einnig að
fara í myndatöku og æfa göngulagið.
Undirbúningurinn er það mikill að á þriðja
tug manna hefur fúllt starf af honum um
nokkurra vikna skeið. Stúlkumar „fá nánast
allt sem hugurinn gimist og þessu kemur
við upp í hendumar. Öll þjálfunin er þeim
að kostnaðarlausu, bæði hvað varðar fram-
komu sem og líkamsþjálfun," eins og
blaðamaður Vikunnar sem fylgdist með
undirbúningnum í íyrra kemst að orði.
í þessari Veru Qöllum við um Ungfrú
Island, þá kvenímynd sem sú keppni leggur
áherslu á og áhrif hennar á konur almennt.
Við fjöllum einnig um sveitarstjómarkosn-
ingamar með aðaláherslu á borgarstjómar-
kosningamar í Reykjavík. Reykvíkingum
býðst nú í fyrsta sinn að kjósa konu sem
borgarstjóra, og það konu sem er yfirlýst
kvenfrelsiskona. í viðtali við Veru segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir m.a. að konur
megi ekki gleyma því að „þær eru gerendur
í eigin lífi og bera í raun ábyrgð á eigin ör-
lögum. Því að þó að lífið setji okkur öllum
skorður, mismunandi miklar og oft óréttlát-
ar, er listin sú að lifa til ftills og njóta sín
eins og kostur er. Við getum ekki breytt
neinu nema við horfúmst í augu við og
viðurkennum styrk okkar“.
Þess er krafist að fegurðardrottningar séu
annað og meira en fallegar og að stjóm-
málakonur séu ekki aðeins góðir pólitíkus-
ar heldur einnig stórglæsilegar. Aðstand-
endur fegurðarsamkeppni hamra á því að
það sé ekki aðeins ytri fegurð sem skipti
máli, hún þarf að vera „gegnheil" því full-
trúi íslands þarf að vera landi og þjóð til
sóma. Stjómmálakonur verða nú að fara á
námskeið í framsögn og klæðaburði til að
standast síauknar kröfur um óaðfinnanlegt
útlit. Islenskar konur eru nefnilega allar
dæmdar eftir sama staðli án tillits til þess
hvað þær gera eða hvernig þær vilja lifa lífi
sínu og líta út. Og sú kvenímynd er meðal
annars mótuð og markaðssett í keppni eins
og Ungfrú ísland.
Ragnhildur Vigfúsdóttir
Ritnefnd:
Björg Ámadóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Lára Magnúsardóttir
Ragnhildur Helgadóttir
Rannveig Traustadóttir
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
Ritstýrur
og ábyrgðarkonur:
Nína Helgadóttir
Ragnhildur Vigfúsdóttir
Skrifstofustýra:
Vala S. Valdinrarsdóttir
Útlit og tölvuumbrot:
Kristin Ragna Gunnarsdóttir
Myndir:
Anna Fjóla Gísladóttir
Sóla
Þórdís Ágústsdóttir
o.fl.
Auglýsingar:
Áslaug G. Nielsen
Sími 91-641816
Fax: 91-641526
Filmuvinna:
Prentþjónustan hf.
Prentun og bókband:
Frjáls Fjölmiðlun
Plastpökkun:
Vinnuheimilið Bjarkarás
©VERA
ISSN 1021-8793
Ath.
Greinar í Vem ém birtar á ábyrgð
höfúnda sinna og em ckki endilega
stefna útgefenda.