Vera - 01.05.1994, Blaðsíða 36

Vera - 01.05.1994, Blaðsíða 36
KONUR I SVEITARSTJÓRNUM Þurfa konur að vera súperkonur til að geta starfað að sveitarstjómarmálum? Með harðan skráp svo þær kippi sér ekki upp við það þótt fjölmiðlar afskræmi þær, karlamir hlusti ekki á þær og steli frá þeim málum? Finnst konum þægilegra að starfa í nefndum þar sem aðrar konur em fyrir? Beita konur öðmm aðferðum en karlar? Geta konur unnið meira saman þvert á flokkslínur? Þessum spumingum og ýmsum fleiri var varpað fram á fundi um konur í sveit- arstjómum sem haldinn var 13. apríl síðastlið- inn. Það er staðreynd að konur í pólitík leggja á sig þriðja starfíð, fyrir utan launaða atvinnu og húsmóðurstörf bætast að meðaltali 15 stundir á viku sem þær sinna sveitarstjómarmálum. Konur þyrpast ekki aðeins í sérstaka mála- flokka, heldur vilja vinna með öðrum konum. Þetta kom m.a. fram í erindi Stefaníu Trausta- dóttur félagsfræðings Jafnréttisráðs en fmm- mælendur auk hennar voru Katrín Gunnars- dóttir varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi Nýs vett- vangs, Elín G. Ólafsdóttir fyrrverandi borgar- fulltrúi Kvennalista og Kristjana Bergsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Seyðis- firði. Allt em þetta konur sem hafa mikla reynslu af starfi í stjóm sveitarfélaga og höfðu því af nógu að miðla til fundarkvenna. Fundar- stjóri var Sigríður Stefánsdóttir bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins á Akureyri sem benti á þá dapurlegu staðreynd að það væri fátt sem benti til þess að konur í sveitarstjómum yrðu fleiri á næsta kjörtímabili en þær eru nú. Konur í framboði ijölmenntu á fúndinn og ein taldi að frummælendur hefðu frekar talið úr sér kjark en hitt. Flvorki Katrín, Ólína né Elín eru í framboði við komandi kosningar. Katrín sagði að sér hefði verið hafnað af kjömefnd Sjálf- stæðisflokksins, en hún lenti í 17. sæti í próf- kjörinu en var boðið 22. sætið og hafnaði því. Hún lagði áherslu á að konur hefðu annan stjómunarstil og ættu erfíðara með að fylgja ströngum flokksaga. Fundarkonur klöppuðu fyrir henni þegar hún sagði að það væri missir af sér í pólítík. Ólína Þorvarðardóttir sagði m.a. að stjórnmál væru kviksyndi fyrir konur og völdin hörfuðu undan og séð frá sjónarhóli kvenna virtust þau hafa eiginleika skuggans. Kvennasamstaða er ekki sjálfgefm að hennar mati og samkeppni og rígur stendur konum fyr- ir þrifum. Elín G. Ólafsdóttir sagði m.a. að konur þyrftu ekki að læra lögmál klíkuskapar- ins, en yrðu að kunna að takast á við þau. Hún sagði að borgarstjórn væri málþing, því búið væri að taka allar ákvarðanir fyrirfram. Elín ítrekaði að konur gæti unnið þvert á flokks- böndin og að Kvenréttindafélagið ætti að gegna lykilhlutverki þar. Kristjana Bergsdóttir vildi stofna landssamtök kvenna um sveitarstjómar- mál byggð á kvennahreyfíngum innan flokk- anna. Þessi landssamtök yrðu samskiptanet kvenna, þekkingarbanki og upplýsinganet. Kvenréttindafélag Islands, Jafnréttisráð, Jafn- réttisnefnd Reykjavíkur og Samband íslenskra sveitarfélaga stóðu að fundinum en markmið hans var að stuðla að sem mestum raunveruleg- um áhrifum kvenna í stjórn sveitarfélaga og því að konur í framboði geri sér grein fyrir mikil- vægi þeirra áhrifa. Það sem frummælendur miðluðu af reynslu sinni, sögðu frá vinnu- brögðum, skipulagi og samvinnu kvenna í sveitarstjómum sýndi hve konur eiga enn langt í land í sveitarstjómum. a RV ISLANDSBANKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.