Vera - 01.05.1994, Side 16
16
StKpt CC4K
FEGURÐARSAMKEPPNI
Það er bara tvennt sem ég óska að dóttir mín
lendi aldrei í, eiturlyfjum og fegurðarsam-
keppni.
Kona, 33 ára og móðir 2 ára stúlku.
Þegar Hófí og Linda voru alheimsfegurðar-
drottningar voru þær notaðar til að vekja
athygli á landinu, en í kynningarstarfí þurfa
fyrirtæki að vera með eitthvað slíkt. Alheims-
fegurðardrottningar gera það svo sannarlega
hvort sem okkur líkar betur eða verr. Einnig
hefur Vigdís forseti gert mikið í landkynning-
armálum. Smásölufyrirtækin á Spáni voru t.d.
sérlega hrifin af Lindu og plaköt af henni hanga
eflaust enn í fískbúðum víða um Spán.
Markaðsstjóri hjá útflutningsfyrirtæki.
Æ, mér finnst þetta eitthvað svo bjánalegt.
Stúlka á fímmtánda ári.
Mér finnst fegurðarsamkeppni afleit, stelpur að
spranga um á sundbol í von um að vinna ein-
hver verðlaun! Þetta er algjör lágkúra. Fyrir-
sætukeppni er allt annað, það er bara bein
starfsumsókn.
Karlmaður, 25 ára.
Ég hafði unnið um tíma sem fyrirsæta þegar
mér var boðið að taka þátt í keppninni um Ung-
frú ísland. Mér var sagt að það myndi hjálpa
mér, en svo var ekki. Fegurðarsamkeppni og
fyrirsætustörf eiga lítið sameiginlegt, en það er
aldrei talað um það. Það eru ólíkar skoðanir á
því hver er fallegur og hver ekki og það eru
ekki til neinir sérfræðingar í fegurð. I fyrir-
sætukeppni er verið að leita að góðri ljós-
myndafyrirsætu sem er allt annað. Það eina
gagnlega sem ég sé við fegurðarsamkeppni er
að stúlkumar öðlast sjálfsöryggi. Mér fannst ég
sosum hafa gott af því að taka þátt í þessu því
ég fór í líkamsrækt og tók líkama minn í gegn
sem ég held að allir hafi gott af og að hugsa um
mataræðið, án þess að fara út í öfgar.
Stúlka um tvítugt sem tók þátt í keppninni um
Ungfrú Island fyrir nokkrum árum.
Já, því miður heyrist ekkert frá konum núna
um fegurðarsamkeppnir. Mér finnst það mjög
miður því í þessum keppnum birtast ákveðin
tákn um það hverjir verðleikar kvenna séu. Ég
lít á þetta sem afturhvarf til fyrri tíma og hluta
af þeirri lægð sem kvenréttindabaráttan er í
núna.
Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi. Tíminn
spurði hana o.fl. hvort kvennahreyfingin hefði
gefist upp á að andmæla fegurðarsamkeppni.
Þó gefur augaleið að sú sem stendur ein
frammi fyrir milljónum sjónvarpsáhorfenda
þarf að hafa bein í nefinu. Straumþungi er-
lendra fjölmiðla og annarra sem málið varðar
getur verið slíkur að útvörður íslenskrar feg-
urðar þarf að geta staðið hann af sér með
sóma. Og þá kemur útlitið ekki eitt sér til
hjálpar. Hins vegar getur stúlka sem geislar af
gegnheilli fegurð orðið landi og þjóð til svo
mikils sóma að eftir er tekið um heim allan.
Það er oft aðeins um eitt tækifæri að ræða og
það getur mótað viðhorf heilla þjóða gagnvart
okkur öllum hér sem skipum höfðatöluþjóð-
ina heimsfrægu.
Jóhann Guðni Reynisson, Vikan 8. tbl.1993
How do you like Iceland?
Ragnar Friðrik Ólafsson vinnur að doktors-
verkefni þar sem hann kannar m.a. hugmynd-
ir útlendinga um ísland. í könnun sem hann
gerði meðal 84 nemenda í Bretlandi voru þátt-
takendur m.a. beðnir um að lýsa hugmyndum
sínum um Island. Einungis þrjár athuga-
semdir komu um íslenskar konur, tvær
jákvæðar og ein neikvæð. Þær jákvæðu:
„Fallegar tígulegar stúlkur“ og „Sagt er að
það séu aðlaðandi konur þar“. Sú neikvæða:
„Þurrar á manninn, ekki mjög sexý“. Goðsag-
an um fegurð íslenskra kvenna hefur því ekki
sloppið inn í höfuðvígi Miss World sem er á
Bretlandseyjum.
ívuop'sysTCö'N y