Vera - 01.05.1994, Page 33

Vera - 01.05.1994, Page 33
meðal þeirra eins og annarra stétta, til dæmis blaða- og fréttamanna. Þetta eru venjulegar mannlegar tilfinningar en ekki slík eigingirni og mætti ætla þegar fólk vill færa stjórnmálin upp á æðra plan og útiloka þá staðreynd að þau eru mannleg líkt og vonandi allir þeir sem þar starfa. En maður velur sér ekki samverkamenn og fólk á mismunandi vel skap saman. En ef það starfar í sama þingflokki verður það að gera svo vel og fmna út úr því og gerir það oftast nær líkt og á öðrum vinnustöð- um.“ En eru konur viðkvæmari íyrir slíku vegna þess hve óskil- greind valdahefðin er meðal kvenna? „Það má vel vera. Og þó. Oftast er þetta ekki spumingin um völd heldur aðra og smásmugulegri hluti. Kínverska kvikmyndin Rauði lampinn, sem sýnd var í Háskólabíói í vetur, lýsir því vel þegar konur bítast um litla og ómerkilega bita sem hrjóta af borðum karlmanna og eru svo uppteknar af því að þær gleyma sjálfum sér og vináttu þeirra, hverrar við aðra.“ En getur líka verið að það sé reynt að ala á sundmng innan Kvennalistans með því að hampa sumum konum, sumum sjónar- miðum en halda öðrum niðri? „Allir stjómmálaflokkar þekkja hvemig andstæðingarn- ir reyna að auka við áhrif sín með því að spila inn á sundmngu eða mismunandi fylkingar innan ilokk- anna. Ef andstæðingunum hentar að hampa manni þá gera þeir það en þeir víla heldur ekki fyrir sér að rakka mann niður. Ég hef prófað hvorttveggja og grein Bjöms Bjarnasonar í Morgunblaðinu er gott dæmi um það síðamefnda. Mig rak í rogastans þegar ég las hana því að mín kynni af Bimi hafa verið á þann veg að ég hef frekar freistast til að telja hann víð- sýnni en ég hafði áður haldið. Við höfum oft átt ágæta og málefnalega umræðu. Frjálshyggjan er auðvitað sem slík sterk einstaklingshyggja sem gefur sig ekki út fyrir að mismuna fólki eftir kynferði, það þarf þó ekki að koma á óvart þegar glyttir í úlfseyrun undir sauðargæmnni. Bjöm segir til dæmis í grein sinni að Kvennalist- inn hafí tapað sérstöðu sinni með fram- boði mínu til borgarstjómar, sjónarmið hinnar hagsýnu húsmóður hafí orðið að víkja fyrir sókn eftir völdum. Hugmyndir Bjöms um hina hagsýnu húsmóður fara því ekki saman við völd og áhrif. Hin hag- sýna húsmóðir á samkvæmt þessu ekki að ganga í fylkingarbrjósti né heldur að hafa raunveruleg áhrif. Hún á með öðrum orð- um að puða og juða, koma með hugmynd- lr og tillögur en skorast undan því að ffam- kvæma þær. Þetta er boðskapur greinar- ■nnar og þarf það engum að koma á óvart þvi ef þessari uppskrift væri fylgt væram v>ð ekki sú ögran við veldi Sjálfstæðis- Bokksins sem við erum í dag.“ En kom hin hagsýna húsmóðir ekki sem himnasending fyrir Sjálfstæðisflokk- Uto i borgarstjórnarslaginn 1982 og klauf minnihlutann í herðar niður? Þetta er búin uð vera samfelld Þórðargleði í tólf ár. Er hægt að lá Sjálfstæðisflokknum þó hann 8ráti húsmóðurmissinn, þegar ný og öflug samstaða minnihlutaflokkana er orðin stað- reynd? „Kvennalistinn var ekki jafn ögrandi við valdið sem nýtt afí á útjaðri stjómmálanna og hann var við hefðbundna hugsun og pólitíska sögu- skoðun. Eftir margra ára starf höfum við náð þeim ár- angri að geta verið örlagavaldar í stjómkerfinu og það óttast Sjálfstæðisflokkurinn.“ Ertu að yfírgefa þingflokk- inn vegna átakanna í vetur? Ertu að flýja af hólmi? „Ég hljóp ekki óð og upp- væg til þegar haft var sam- band við mig og ákvað að fara í framboð. Ég var fylgjandi því fyrir íjórum áram að Kvennalistinn tæki þátt í slíku framboði en það fékk ekki hljómgrann þá. En þetta er sögulegt tæki- færi og þess vegna er ég reiðubúin þó

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.