Vera - 01.05.1994, Page 39
Jóna Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúi, er í 7.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Hún hefur
verið í borgarmálunum frá 1982 og er nú for-
maður atvinnumálanefndar, situr í byggingar-
nefnd aldraðra, menningarmálanefnd og i
stjórn heilsugæslu Miðbæjarumdæmisins.
Hefur þú sem formaður atvinnumálanefndar
Reykjavíkur beitt þér sérstaklega í atvinnumál-
um kvenna?
- Eg hef ekki beitt mér sérstaklega í atvinnu-
málum kvenna, hins vegar hafa borist mál frá
konum og körlum og við höfum reynt að leysa
úr þeim eftir bestu getu.
Hvaða mál koma einkum frá konum?
- Til dæmis um stofnun fyrirtækja, stuðningur
við nýsköpun í atvinnulífi. Það em ákveðnar
reglur sem við förum eftir og reynum að styrkja
allt sem við getum sem fellur inn í þann ramma
og það er það skilyrði að þetta sé nýsköpun og
ekki í samkeppni við annað sem fyrir er. Ég hef
þá ánægju að segja frá því að nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Vinnumiðlunar Reykjavíkur er
kona.
Hvað telur þú brýnast að gera í málefnum reyk-
vískra kvenna á næsta kjörtímabili?
- Ég vil beita mér fyrir stuðningi við ijölskyld-
una, að hún hafi næga atvinnu þannig að hún
geti framfært sig og lifað menningarlífi. Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlar að beita sér fyrir því að
fullnægja þörf fyrir dagvistari-ými, stórefla
uppbyggingu hjúkrunarheimila og auka gæði
umhverfis með uppbyggingu göngustíga og að-
stöðu fyrir fjölskylduna til að njóta útiveru
saman.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi skipar 1.
sæti á lista Reykjavíkurlistans. Hún hefur setið
í borgarstjóm í 8 ár og á nú sæti i borgarráði.
Auk þess situr hún í skólamálaráði, byggingar-
nefnd aldraðra og í stjórn veitustofnana.
Hvað telur þú brýnast að gera í málefnum reyk-
vískra kvenna á næsta kjörtímabili?
- Það er erfitt að taka einn þátt út úr því að allt
verkar þetta saman. Undirstaðan er traust og
góð fjánnálastjórn borgarinnar og að vel sé far-
ið með fjármuni borgarbúa.
Atvinnulífið verður að vera blómlegt þannig að
allar vinnufúsar hendur hafi verkefni. Atvinnu-
leysi kemur verr niður á konum og því er al-
gjört grundvallaratriði að konur fái sömu laun
og karlar fyrir sambærileg störf.
Það er margt sem þarf að bæta í umhverfi
kvenna og fjölskyldna í heild svo að þær fái
notið sín. Umönnun heimilis hvílir enn oftast
meira á konum og slæmar aðstæður, t.d. skort-
ur á leikskólaplássi, sundurslitinn skóladagur
og vöntun á hjúkrunarrými fyrir aldraða eru
þættir sem hindra framgang kvenna í störfum
og félagslífi.
Steinunn V. Óskarsdóttir starfskona hjá Kven-
félagasambandi íslands er í 7. sæti Reykjavík-
urlistans.
Hvernig ætlar þú sem borgarfulltrúi að beita
þér í málefnum reykvískra kvenna ?
- Mér finnst mjög brýnt að gera eitthvað fyrir
konur í atvinnumálum þvi þau eru mál mál-
anna. Það er grundvallaratriði fyrir allar fjöl-
skyldur að fólkið hafi atvinnu. Það hefur ekkert
verið gert sérstaklega fyrir konur á vegum
Reykjavíkurborgar en það þarf að gera og ég
hef áhuga á því að beita mér fýrir sérstöku
atvinnuátaki fyrir reykviskar konur. Það þarf
líka að jafna launamun í Reykjavík og hjá
Reykjavíkurborg. Borgarstarfsmenn eru
smánarlega launaðir. Og það er staðreynd að
launamunur milli kynja hjá Reykjavíkurborg er
meiri heldur en hjá ríkinu. Það þarf einnig að
vinna að starfsmati með verkalýðshreyfing-
unni.
'fi
Vi:
i
§f
I
Islensk list
við ÖII
tækifæri
Skipholt 60B. Sími 814020
II
:v.:v.v».-.v.vx*;:x*.v>xv.v.*.v.v.v.-.