Vera - 01.05.1994, Page 44
KVENNAKV OLD
HJÁ FÁKI
Hið árlega kvennakvöld hestamannafélagsins Fáks var haldið
1 2. mars sfðastliðinn. Kvöldið var með austurlensku ívafi eins og
sjá má á meðfylgjandi myndum sem Anna Fjóla, annáluð
hestakona auk þess að vera Ijósmyndari, tók. Fyrsta
kvennakvöldið var haldið árið 1 982 og hefur þróast í áranna rás
f það að vera „þvílik gleði" eins og Edda Hinriksdóttir formaður
kvennadeildarinnar komst að orði við Veru. „Undirbúningurinn
hefst þegar upp úr áramótum þvf margar kvennanna búa til
búningana sína sjálfar. I raun ætti að tilkynna strax á haustin
hvaða þema er til að auðvelda þeim verkið," segir Edda. Starfið
í kvennadeildinni er mjög virkt, á hausfin hitfasf konurnar vikulega
og fara saman f klukkustundar göngu, ýmist um Heiðmörkina eða
aðra fagra staði. Þær sfanda fyrir kaffihlaðborði nokkrum sinnum
yfir veturinn og gera sér alltaf dagamun rétt fyrir jólin. I vetur hefur
einnig verið boðið upp á myndakvöld, snyrtivörukynningu og
þær keyptu efni f gluggatjöld sem saumuð voru og sett upp í
félagsheimilinu. Ekki má gleyma hinni árlegu kvennareið sem
farin verður 27. maí næstkomandi. I fyrra mættu á annað
hundrað konur, sem grilluðu, sungu og riðu greitt. Vert er að taka
fram að utanfélagskonur eru einnig velkomnar.
HAPHAZARDESS
Eppu Nuotio, Maikki Haijanne og Johanna Ðruun fyrir framan eitt af
verkum sínum um hvunndagshetjuna Haphazardess.
I Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, stendur yfir sýning á
silkiverkum og teikningum eftir þrjár finnskar lisfakonur.
Þær Eppu, Maikki og Johanna hófu samvinnu f upphafi
árs 1993 og þá kviknaði hugmyndin að kvenfmyndinni
og hvunndagshetjunni Haphazardess. I apríl hóf
kvennatfmaritið „Me Naiset" að birta skopmyndaraðir
eftir þær og f nóvember 1993 opnuðu þær sýningu I
Nytjalistasafninu f Helsinki. Þar sýndu þær myndaraðir
úr silki, risastór verk sem einkennast af litagleði og
góðlátlegu grfni. Nú um sumarmál 1994 er þessi sama
sýning komin til Islands. Sýningin verður opin til 7. maf,
virka daga frá 12.00 til 18.00 og laugardaga frá
1 2.00 til 1 ó.oo.
Frá vinstri: Agncs Einarsdóttir, Friðgcröur Guðnadóttir, Edda Hinriksdóttir, Hrönn Ægisdóttir,
Ámý Ægisdóttir
Tölvan er helsta hjálpartæki
starfsmanna Prentþjónustunnar.
I hugskoti hennar er meðal annars
unnt að fullvinna alla skeytingu,
hversu umfangsmikið sem verkið er.
Flókin verk, með mörgum
og stórum myndum, renna Ijúflega
eftir vinnslukerfi Prentþjónustunnar,
gegnum öflugan tækjakost undir síkvikum
augum starfsmannanna.
PRENTÞJÓNUSTAN
BOLHOLTI 6
SlMI 687760
FAX 688761
MÓTALD 687073