Vera - 01.03.1995, Blaðsíða 2
Iciðari
Viö höfum lifaö og starfaö þessa fyrstu mánuöi
ársins í skugga náttúruhamfara og sorgar og vott-
ar VERA öllum þeim sem eiga um sárt aö binda
samúö sína.
Fjölmiðlar fóru mikinn í umfjöllun um snjóflóö-
in í Súöavík og geröu margt vel en annað miður.
Þótt þeir sem misstu ástvini sína eigi eftir langa
þrautagöngu til aö ná aftur tökum á lífi sínu eru
fjölmiölarnir nú búnir aö jafna sig eftir áfalliö og
farnir aö ásaka sýslumann ísfiröinga fýrir aö hafa
haldið þeim frá vettvangi. Fréttir af náttúruhamför-
um og slysum eru sorgarfregnir sem flytja ber fólki
meö öörum aðferðum en þeim sem fjölmiölarnir
ráöa yfir og því veröur að tryggja þaö aö þeir séu
ekki með svo nákvæmar lýsingar af vettvangi aö
fólk þekki þar sína nánustu. Aögeröir sýslu-
mannsins voru til fyrirmyndar og gerði hann vel í
því aö halda gluggagægjurunum aö sunnan í hæfi-
legri fjarlægð.
Nú líöur senn að kosningum og margir komnir
í kosningaham. VERA fjallar því um konur og kosn-
ingar í þessu blaöi, en hún fékk Félagsvísinda-
stofnun Háskólans til aö gera fyrir sig könnun á
því hvaö konur teldu mikilvægast aö gert yröi á
næsta kjörtímabili til að bæta stööu þeirra. Niöur-
staöa könnunarinnar er skýr og afdráttarlaus, því
70% kvenna telja mikilvægast aö jafna laun kynj-
anna. Þessi niöurstaöa gefur til kynna aö könnun
Jafnréttisráðs um kynbundinn launamun á íslandi
komi konum ekkert á óvart. Uaunamunur kynj-
anna er staðreynd sem konur geta aö sjálfsögöu
ekki sætt sig viö. Þær ætlast til þess aö nú veröi
tekið á þessu máli og mismunun eftir kynferöi
aflétt. í launakönnuninni kemur einnig fram að
viöhorf til heföbundinna hlutverka kynjanna breyt-
ast ótrúlega seint.
I stefnuskrá Kvennalistans eru settar fram til-
lögur sem geta breytt þessum úreltu viöhorfum til
kynjanna. Meöal þeirra er tillaga um fæðingaror-
lofssjóö sem gerir ráö fyrir þvt aö foreldrar af báö-
um kynjum geti tekiö fæöingarorlof án þess aö
lækka í launum. Þessi hugmynd er bæöi mikiö
hagsmunamál kvenna og réttlætismál fyrir feöur.
Þegar þetta er skrifað eru kennarar nýbyrjaðir
í verkfalli, en launakjör þeirra endurspegla í raun-
inni ekkert annaö en þá vanviröingu sem íslenskt
samfélag sýnir börnum sínum. Kennarar, og
reyndar einnig leikskólakennarar, sinna mjög
ábyrgöarmiklum störfum og ættu þvl aö standa
miklu ofar I launastiganum.
Skoöanakannanir undanfarinna vikna hafa
verið ótrúlegar og undarlegt aö ríkisstjórn sem
meö ýmsum aðgeröum sínum hefur skert ráðstöf-
unartekjur meöalljölskyldunnar um tæpa hálfa
milljón króna á ári skuli fá gott veöur hjá stórum
hluta þjóöarinnar. Er fólk búiö að gleyma öllum
kjaraskeröingaraðgeröum ríkisstjórnarinnar? Er
fólk hætt aö taka eftir atvinnuleysinu sem er af-
leiöing aögeröaleysis rikisstjómar, sem hefur
haldið aö sér höndum I efnahagslægð undanfar-
inna ára, svo fjöldi fýrirtækja og einstaklinga hafa
oröið gjaldþrota, I staö þess aö ráðast I fram-
kvæmdir sem heföu getaö haldið atvinnulífinu
gangandi á meöan lægðin var hvaö dýpst. Nú boð-
ar hún framkvæmdir I vegagerð sem heföu verið
afar jákvæð aögerö fyrir fjórum árum, þegar
atvinnulífið þurfti á blóögjöfinni að halda, en er
ekki eins nauðsynleg núna, þegar þaö er loks aö
hjarna við. Þeir viröast aldrei læra neitt af mistök-
unum þessir strákar sem stjórna landinu og gera
sér enn ekki grein fyrir því að ríkisstjórnir eiga aö
draga úr efnahagssveiflum meö auknum fram-
kvæmdum á krepputímum og minni framkvæmd-
um á þensluskeiðum. En tímasetningin er náttúr-
lega engin tilviljun - eru ekki aö koma kosningar?
Kvennalistinn hefur átt á brattann aö sækja I
skoðanakönnunum að undanförnu en konur láta
það ekki draga úr sér kjarkinn. Konur hafa allt aö
vinna, karlarnir hafa sýnt þaö og sannað I aldanna
rás að þeir beita sér ekki fyrir hagsmunum
kvenna. í grein VERU um kvennapólitík á Alþingi
kemur fram að þegar kemur að hagsmunamálum
kvenna er ekki sama I hvaöa flokki þær konur eru
sem sitja á Alþingi Islendinga. Þar eru þaö þing-
konur Kvennalistans sem gæta hagsmuna
kvenna. Launajafnrétti er kosningamál kvenna aö
þessu sinni. Karlar hafa haft nægan tíma og völd
til aö leiörétta launamisréttiö, en þaö hafa þeir
ekki gert. Konur veröa sjálfar aö halda áfram bar-
áttunni fyrir launajafnrétti og þess vegna stöndum
viö saman.
Sonja B. Jónsdóttir
blaö kvennabaráttu
1/95 -14. árg.
Pósthólf 1685
121 Reykjavík
Símar 91-22188 og 91-26310
Fax 91-27560
útgefandi
Samtök um kvennalista
forsíöa
bára
ritnefnd
Auöur Styrkársdóttir
Drifa Hrönn Kristjánsdóttir
Guörún Ólafsdóttir
Kolfinna Baldvinsdóttir
Nína Helgadóttir
Ragnhildur Helgadóttir
Ragnhildur Vigfúsdóttir
Rannveig Traustadóttir
Sigríöur Ingibjörg Ingadóttir
Vala S. Valdimarsdóttir
ritstýra og ábyrgöarkona
Sonja B. Jónsdóttir
skrifstofustýra
Vala S. Valdimarsdóttir
útlit og tölvuumbrot
Grafít - Halla Helgadóttir
Ijósmyndir
bára o.fl.
auglýsingar
Áslaug Nielsen
Sfmi: 91-641816
Fax: 91-641526
filmuvinna
Prentþjónustan hf.
prentun
ísafoldarprentsmiðja
bókband
Flatey
plastpökkun
Vinnuheimiliö Bjarkarás
© VERA ISSN 1021-8793
ath.
Greinar IVERU eru birtar á ábyrgö höfúnda
sinna og eru ekki endilega stefria útgefenda.