Vera - 01.03.1995, Side 41
Oopinbera kvennaráðstefnan í Peking:
heimurínn með augum
&/<enn&
Irene M. Santiago, framkvæmdastjóri
NGO-ráöstefnunnar, eða óopinberu
kvennaráðstefnunnar, var hér á ferð í
byrjun febrúar til að kynna óopinberu
kvennaráðstefnuna sem verður haldin í
Peking í haust samhliða kvennaráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna. Óopin-
bera ráöstefnan, sem er ráðstefna
frjálsra félagasamtaka, hefst 30. ágúst
n.k. og er tilgangur hennar sá að hafa
áhrif á kvennaráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna sem hefst fjórum dögum síö-
ar. Irene kom til íslands til að kynna
ráöstefnuna og afla henni stuönings.
„Á óopinberu kvennaráðstefnunni fjöllum
við um það hvernig viö konur viljum hafa
heiminn á 21. öldinni og reynum að koma
þeim skilaboöum til ráðstefnu Sameinuðu
þjóöanna," segir Irene. „Um leið verða þetta
hátíðahöld 30 þúsunda kvenna víðs vegar
að úr heiminum sem fagna þarna bæði
margbreytileika sínum og öllu því sem sam-
einar þær. Á ráðstefnunni setjum við sjónar-
horn kvenna á heimsmálin og fjöllum m.a.
um heilbrigðismál, atvinnumál, umhverfis-
mál, alþjóðaviöskipti og alþjóðasamstarf,
stjórnmálaþróun eftir að kalda stríðinu lauk,
tækniþyltinguna og allt það sem getur ógn-
að friði og öryggi mannkynsins. Við þurfum
að gera okkur grein fyrir hvernig við eigum
aö bregðast við öllu því sem mun steðja að
konum á næstu öld.
Við höfum þegar haft heilmikil áhrif á
undirbúning S.Þ. ráðstefnunnar, meö því að
hafa áhrif á ályktanir þeirra ráðstefna sem
haldnar hafa veriö í ýmsum löndum til undir-
búnings ráðstefnunni í Peking, þannig að ég
er viss um að við getum haft heilmikil áhrif
á ályktanir og niðurstöður ráðstefnunnar I
haust. Við vitum að fyrri kvennaráðstefnurn-
ar hafa skilað okkur miklum árangri. Ráð-
stefnan í Mexíkó 1975 gerði umræöuna um
stöðu kvenna og misrétti kynjanna réttlæt-
anlega og skapaði konum í ólíkum heimsálf-
um umræðuvettvang. Sú ráðstefna markaði
upphaf kvennaáratugarins og síðan þá hef-
ur hlutur kvenna á vettvangi stjórnmálanna
aukist þótt hann sé ekki oröinn nógu mikill."
Allar með - heima eða í Peking
Irene hefur verið á ferð um Norðurlöndin til að
afla tjár til óopinberu kvennaráðstefnunnar.
Hún hefur fengið styrk frá Noregi, Danmörku
og Svíþjóð og vonast einnig eftir stuðningi
frá Finnlandi og íslandi. Hún leitar bæði til
stjórnvalda, opinberra stofnana og einkaað-
ila, en stuðningurinn getur verið með ýms-
um hætti. Þeir sem ekki geta veitt beinan fjár-
stuðning geta lagt fram mannskap, tæki eða
þekkingu ogt.d. hefur Apple fyrirtækið í Banda-
ríkjunum styrkt ráðstefnuna um meira en eina
milljón dollara meö tölvum og hugbúnaði.
„Við ætlum að nota tölvutæknina til þess
að við getum allar talað saman. Þannig get-
ur ekki aðeins óopinbera kvennaráðstefnan
haft áhrif á konur um allan heim heldur geta
þær haft áhrif á ráðstefnuna með beinum
samskiptum í gegnum tölvu- og videokerfi.
Við tökum tæknina t okkar þjónustu til þess
að allar konur geti fylgst með ráðstefnunni
hvar sem þær eru staddar í veröldinni, og
ekki bara konur, því við viljum tryggja að á
21. öldinni geti allir séð heiminn meö aug-
um kvenna."
kvnnaráöstefnur