Vera - 01.03.1995, Blaðsíða 44
Hringbraut 119 - Sími: 629292
Smiðjuvegi 6 - Simi: 44444
Hjallahrauni 13 - Sími: 652525
FRÁBÆRAR PIZZUR!
Frí heimsending
Sun. - fim.:
12.00 á hádegi til
01.00 eftir miðnætti.
Fös. - lau.:
12.00 á hádegi til
04.00 eftir miðnætti.
Tónsmiðja
Klassísk tónlistardagskrá
fyrir börn á aldrinum þriggja til tíu ára
Fyrsta uppfærsla
frumflutt 19. febrúar kl. 15.00
endurtekin 26. febrúar kl. 15.00
Önnur uppfærsla
frumflutt 12. mars kl. 15.00
endurtekin 19. mars kl. 15.00
Stjórnandi: Guðni Franzson
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
sími 557 9166
Auglýsing um fasteignagjöld,
sérstakan fasteignaskatt
og brunatengd gjöld
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 1995 verða
sendir út næstu daga ásamt gíróseðlum vegna fyrstu
greiðslu gjaldanna.
Gjöldin eru innheimt af Gjaidheimtunni í Reykjavík, en einn-
ig er hægt að greiða gíróseðlana í næsta banka, sparisjóði
eða pósthúsi.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, tunnu-
leigu, vatnsgjald, sérstakan fasteignaskatt og holræsagjald.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu lækkun á
fasteignaskatti á liðnu ári, hafa fengið hlutfallslega lækkun
fyrir árið 1995. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl gjald-
enda þegar þau liggja fyrir, væntanlega í mars- eða apríl-
mánuði og úrskurða endanlega um breytingar á fasteigna-
skattinum, m.a. hjá þeim sem ekki hafa þegar fengið lækk-
un en eiga rétt á henni samkvæmt þeim reglum sem borgar-
stjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. I. nr. 90/1990 um tekju-
stofna sveitarfélaga. Verður viðkomandi tilkynnt um niður-
stöðu, ef um breytingu verður að ræða.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur ákveðið að nýta heimild til
álagningar sérstaks fasteignaskatts á fasteignir sem nýttar
eru við verslunarrekstur eða við skrifstofuhald, ásamt til-
heyrandi lóð (leigulóð), sbr. 10. gr. laga um breytingar á I.
90/1990 um tekjustofna sveitarfélaga, samþykktum á Al-
þingi 20. desember 1993.
Eigendur fasteigna í Reykjavík skulu senda skrá yfir eignir
sem falla undir framangreint ákvæði, ásamt upplýsingum
um síðasta heildarfasteignamatsverð þeirra, eða eftir atvik-
um kostnaðarverð. Ennfremur skal skrá þar upplýsingar um
notkun þeirra svo og upplýsingar um rúmmál eigna sem
einnig eru notaðar til annars en verslunarreksturs og skrif-
stofuhalds.
Upplýsingar skulu sendar til Skráningardeildar fasteigna,
Skúlatúni 2, Reykjavík, fyrir 31. janúar nk.
Sérstök eyðublöð til að nota í þessu skyni munu liggja
frammi hjá Skráningardeild fasteigna, en þau hafa einnig
verið send til allra eigenda verslunar- og skrifstofuhús-
næðis í borginni, sem vitað er um.
Vanræki húseigandi að senda skrá yfir eignir, sem ákvaeði
þetta tekur til, er sveitarstjórn heimilt að nota aðrar upplýs-
ingar til viðmiðunar við álagningu, þar til húseigandi bætir úr.
Með fasteignagjöldum eru ennfremur innheimt brunatengd
gjöld, þ.e. iðgjald brunatrygginga þeirra húseigna sem vá-
tryggðar eru hjá Húsatryggingum Reykjavíkur, svo og við-
lagatryggingargjald fyrir Viðlagatryggingu Islands, bruna-
varnargjald sem innheimt er fyrir Brunamálastofnun ríkisins
og umsýslugjald sem innheimt er fyrir Fasteignamat ríkisins.
Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, Reykjavík, veitir upp-
lýsingar um álagningu gjaldanna, sími 632520.
Gjalddagar ofangreindra gjalda eru 1. febrúar, 1. mars,
1. apríl, 1. maí, 1. júní og 1. ágúst.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
10. janúar 1995.