Vera - 01.12.1995, Síða 29
ríða, aðrartil að eiga aðfélögum." (Bls. 97).
Svo getur fólk auðvitað leikið sér að sömu
setningum með öfugum formerkjum.
Sögurnar eru fjölbreyttar og ólíkar að stíl
og það er í rauninni ótrúlegt að geta lesið í
einni lotu níu „erótískar sögur“ án þess að
verða tómur í höfðinu og týnast í þlautum
vörum og...
Angurværð blandast oft skemmtilega
kaldhæöni t.d. í lýsingunni á ungu konunni
sem hafði svo litla lífslöngun að í „hvert sinn
sem hún dró andann, vonaði hún að það
yrði í hinsta sinn.“ (Bls. 52). Kaldhæðnin
verður að hreinu háði T vandræðum aum-
ingja Magdalenu í titilsögu bókarinnar þegar
hún reynir að bæla seiðinginn í náranum og
„náði hún sérí matreiðslubækurtil að beina
hvötum líkamans á brautir sem hún vildi
kannast við.“ (Bls. 25) Frumhvötun-
um/nautnunum er stefnt saman og augljóst
hvor hefur vinninginn í þetta skiptiö.
Ég má að lokum til með hnýta örlítið í útlits-
lýsingar persónanna sem mér þótti stundum
of einhæfar að því leyti að konurnar hafa grun-
samlega sléttan maga og mjúka húð. Karl-
mennirnar eru aftur á móti með svo hrjúfar
hendur að „grófleiki þeirra þakti húð hennar
hárfínum rispum." (Bls. 57) Hvað varð eigin-
lega um þriggja fellinga skvapmagann og va-
selínmjúku skrifstofumannshendurnar, eða er
ég þá kannski að fara fram á of mikið raun-
sæi?
Sólveig Jónasdóttir
^ilUM1í)íáíllV
Kristín Marja Baldursdóttir
Mál og menning 1995
B a k v i ð
þennan
forvitni-
lega bók-
artitil býr
saga um
k o n u r
Þriggja
kynslóða.
Á s t i r
þeirra og
sorgir,
valdabar-
áttu og
klæki, lyrirboða, verkalýðsátök, veislur,
skömmtunarseðla, brjóst, bólur og - vináttu.
Sögusviðið er sjávarpláss fáum árum eftir
stríðslok, alþýða manna fárast yfir dýrtíöinni
og atvinnuleysinu en allt er þó tíðindalaust þar
til frú Freyja kemur heim frá Ameríku, - þá fær-
ist líf í tuskurnar.
Sagan er sögð frá sjónarhóli Öggu, sem
fær strax illan bifur á „emerísku frænkunni"
en gleðst þó yfir því að lognmollunni er svipt
burt úr húsi þeirra ömmu og afa. í húsinu búa
konur: Amma og Kidda í kjallaranum; fámál-
ugar, einþykkar og traustar gamlar konur.
Dódó og Ninna eru dætur ömmu, Dódó
skvísa sem fellur fyrir dreng úr Reykjavík en
Ninna einfeldningur, gæðablóð sem vinnur á
elliheimili. Agga er móðurlaus dótturdóttir
ömmu, kotroskin og hugmyndarík stelpa á
tólfta ári T sögubyrjun en rétt ófermd í sögu-
lok. Freyja hin fagra fór til Ameríku með offi-
sér en snýr aftur ekkja sjö árum síðar. Hún er
dóttir látinnar uppeldissystur ömmu og fær
skjól T húsinu umyrðalaust, sömuleiðis Dísa
vinkona með drengina sTna þegar hún þarf á
að halda.
Sagan snýst um þessar konur og eftir
fremur hægan upptakt meðan þær eru kynnt-
ar, tekur sagan kipp því Freyja sælist fljótt til
JRA M&RS
Kjonur eru
frá Venus
Bók sem bætir samskipti
°g styrkir sambönd
gefur svör sem viröast svo elnfmd, en fáir k,ma (orð
...hveljandl oggsfandl lesnlng..."
scra Pálml Matlhiasson
Dr. )ohn Gray
þér qgþinutn
jjfhð ktfjól
„...John Gray bregður upp mjög athyglisverðri mynd af því hversu ólík
kynin eru og hvað hægt er að gera lífið miklu árangursríkara rneð því
að virða þá einföldu staðreynd að konur þurfa skilning og karlar
þurfa traust.“
- Hildur Petersen,
framkvœmdastjóri Hatis Petersen hf.
„...Ég hvet fólk eindregið til að lesa bókina.“
-Sigurðitr Gísli Pálmason, Hagkaup.
„...Bókin er mikilsvert framlag til jafnréttis og meiri skilnings milli
karla og kvenna... Gefandi bók.“
- Birtia Benediktsdóttir
formaður starfsmannafélags Flugleiða.
„...Dr. Jolin Gray setur umræðuna um samskipti kynjanna í nýjan
farveg, spennandi og skemmtilegan búning sem öllum er auðskilinn.“
- Sigtryggurjónsson, sálfrœðingur.
jól bækurnar