Vera


Vera - 01.02.1997, Side 8

Vera - 01.02.1997, Side 8
ERU LÁGU LAUNIN NÁTTÚRULÖGMÁL? Hvernig haldið þið að fólki líði sem þarf að borga 98% af ráðstöfun- artekjjum sínum í afborganir af lánum? Eru það einhverjir eyðslu- seggir sem hafa ekkert peningavit? Nei. Það er ósköp venjulegt fólk sem er að reyna að lifa við þau kjör sem því eru búin hér á landi. Mik- ið annríki hefur verið á starfsmönnum Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna frá því hún var sett á stofn í febrúar 1996 og hafa að jafn- aði verið afgreidd 65 mál á mánuði auk ráðgjafar í símatímum. Að sögn Elínar S. Jónsdóttur forstöðumanns er ekkert lát á umsóknum um aðstoð og fyllast tímarnir á tuttugu mínútum þá tvo daga i mán- . uði sem bókanir fara fram. P milljón í vanskílum -algengt á skuldugum heímílum Ráðgjafarstofan ertilraunaverkefni til tveggja ára og að henni standa opinberir aðilar, bank- ar og félagasamtök. Elín segir að eitt fýrsta verkefni stofunnar hafi verið að finna út við- miðunarneyslu sem gengið er út frá þegar skuldastaða er reiknuö út. „Það er lykilatriði greiðslumats að framfærslukostnaður fjöl- skyldunnar sé þekktur. Tekjurnar segja ekki alla söguna ef ekki er vitað hve margir þurfa að lifa af þeirn," segir hún. í skýrslu, sem Ráð- gjafarstofan gaf út á sl. ári birtist eftirfarandi dæmi um framfærslukostnað. Þessar tölur eru byggðar á heimilisbókhaldi 30 fjölskyldna af mismunandi samsetningu á þriggja mánaða tímabili og er einungis tekið tillit til nauðsynlegra útgjalda. Aðrir kostnaðarliðir, s.s. sími, rafmagn, hiti, áskriftargjöld, fasteignagjöld, og tryggingar eru byggðir á tölulegum upplýsingum og rekstrarkostnaður bifreiðar er byggöur á upplýsingum frá FÍB. Þegar framfærslukostnaður hefur verið dreginn frá ráðstöfunartekjum liggur fyrir hve mikið er afgangs til að greiða t.d. af- borganir lána. I hverjum mánuði vantar mik- ið til þess að endar nái saman. í sömu skýrslu er tekið dæmi af fimm manna fjölskyldu sem er með 157.000 kr. tekjur á mánuði en þarf að greiða 132.636 kr. f afborganir lána. Framfærslukostnaður fjölskyldunnar er 130.500 kr. og þegar búið er að draga hann frá tekjun- um eru aðeins 26.500 krón- ur eftir til að greiða af lánun- um. Það vantar sem sé 106.136 kr. á mánuði til þess að dæmið gangi upp og vanskilin hlaðast upp. í þessu dæmi eru vanskilin orðin 1.053.614 kr. en meðaltal vanskila, hjá þeim sem sótt hafa til Ráðgjafarstofunnar, eru rúmlega 1.5 milljónir kr. Eftirfarandi dæmi sýnir vanda húsnæðiskaupenda sem þurftu að treysta á skammtíma- og lífeyrissjóðslán. Röng útlánastefna í skýrslunni er vanda umsækjenda lýst svo: „Síðustu tíu árin hafa greiðsluerfiðleikar íslenskra heimila farið vaxandi. Vandinn er annar en hann var fýrir áratug. Segja má að rætur vandans hafi áður fýrr einkum falist í skorti á lánsfé til lengri tíma er leiddi til þess að fólk réðist T húsnæðiskaup með mikið af skammtímalánum. í dag eru orsakir greiðsluerfiðleika aðrar, þær má m.a. rekja til lántöku umfram greiðslugetu, tekjulækk- unar, atvinnuleysis, óráðsíu í fjármálum, veikinda og gylliboða á lánamarkaði. Lána- markaðurinn hefur breyst mikið á þessum tíma, nú er framboð af láns- fé meir en eftirspurnin. Heimilin eru umvafin tilboð- um um að eignast skuldir meö einföldum hætti. Til- boðsgjafarnir spyrjast ekki alltaf fyrir um greiðslugetu lántaka heldur biðja um ábyrgðir. Bílalán sem tíðkast í dag eru glöggt dæmi um slík vinnubrögð. Dæmi eru um að eignalaust fólk fái 100% lán fýrir bíl. Lánið er veitt gegn trygg- ingu í bílnum og ábyrgð tveggja fasteignareig- enda. Hjá Ráðgjafarstofu eru dæmi um korn- ungt, algerlega eignalaust fólk sem hefur á skömmum tíma eignast stórar skuldir gegn ábyrgðum foreldra, vina og ættingja. Að mati Ráðgjafarstofu má rekja stærsta hluta vand- ans til þeirrar útlánastefnu er tíðkast hér á landi, þ.e. að fólk taki lán gegn ábyrgð þriðja manns án tillits til eigin greiðslugetu. Slfk óraunhæf lántaka hefur leitt marga á alger- ar villigötur skuldbreytinga. Lánum, sem tryggð eru með ábyrgð þriðja manns, er skuldbreytt aftur og aftur og vandinn hleðst upp eins og snjóbolti. Lántakendur skuld- breyta lánunum vegna þess að greiðslugeta þeirra leyfir ekki afborgun af láninu, skuld- breyting er í fjölmörgum tilfellum óraunhæf leið til þess að fria ábyrgðarmann um stund- arsakir fýrir því að taka á sig lán sem hann hefur ábyrgst." Ábyrgð þriðja aðila bönnuð Eftir reynslu fyrstu mánaðanna lögðu starfs- menn Ráðgjafarstofunnar fram tillögur til fé- lagsmálaráðherra, lánastofnana og ríkis- stjórnarinnar um úrbætur. Áhersla er lögö á Dæmi um framfærlukostnað skv. bráðabirgðaviðmiðunarneyslu Ráðgjafarstofu Einstætt foreldri með eitt barn Hjón/sambúðarfólk með eitt barn Hjón/sambúðarfólk með tvö börn Matur 28.500 31.500 47.600 Hreinlætisvörur 2.000 2.000 3.000 Ýmislegt 2.000 2.000 4.000 Fatakaup 4.200 4.400 8.400 Lækniskostnaður 4.000 4.000 8.000 Tómstundir 2.000 2.000 4.000 Samtals: 42.700 45.900 75.000 Heimilin eru umvaf- in tilboðum um að eignast skuldir með einföldum hætti.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.