Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 23
Jenný vann í hæstarétti
Það var í mars árið 1992 sem Jenný Sigfúsdóttir lagði
fram kæru til Kærunefndar Jafnréttisráðs. Jenný hafði
starfað sem gjaldkeri á Heilsuverndarstööinni í Reykja-
vík. Þegar búin var til ný staða starfsmannastjóra fólst
verksvið hans að verulegu leyti í að sjá um verkefni
sem áður höfðu verið í umsjón gjaldkera. Jenný sótti
um nýja starfið en fékk ekki. Ráðinn var karlmaður sem
fékk þriðjungi hærri laun en hún hafði haft sem gjald-
keri. Jenný lagði fram kæru til Jafnréttisráðs út af þess-
um launamun. Kærunefnd úrskurðaði Jenný hæfari til
starfsins og að launamunurinn hefði verið óeðlilegur.
Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi og dæmt Jennýju í vil.
Því var síðan áfrýjað til Hæstaréttar en vísað aftur til
Héraðsdóms ásamt öðrum málum vegna aðskilnaðar
framkvæmdavalds og dómsvalds. Jenný tapaði málinu
þegar það var tekið fyrir í annað sinn í Héraðsdómi.
Málið fór síðan fyrir Hæstarétt í nóvember síðastliðn-
um. Niöurstaöa Hæstaréttar var sú að Jenný hefði ver-
ið jafnhæf til að gegna starfi starfsmannastjóra eins og
sá sem ráðinn var í stöðuna. Þar sem konur voru fáar á
starfssviöinu hefði átt að ráða Jenný i þessa stöðu.
Einnig voru Jennýju dæmdar skaðabætur 850.000
krónur.
Vera óskar Jennýju til hamingju með sigur í þessu
máli. Vonandi verður dómurinn öðrum konum hvatning
til að leggja fram kæru þegar á þeim er þrotið.
SEE
Fögnum Grósku
„Frá oröum til aðgeröa" var eitt þeirra slagorða sem heyrðust á stofn-
fundi Grósku þann 18. janúar. Samtökin samanstanda af ungu jafnað-
ar- og félagshyggjufólki úr Alþýðuóandalagi, Alþýðuflokki, einstaklingum
úr Kvennalista, Þjóðvaka og Röskvu auk einstaklinga utan flokka. Sam-
fylking vinstrimanna á sér forsög og hefur reynslan ekki alltaf sýnt fram
á farsælt samstarf. Nafnið á samtökunum gefur til kynna að eitthvað
nýtt og ferskt sé á ferðinni. Er ástæða til að ætla að svo sé?
Grunnhugmynd aö baki stofnunar Grósku er að mynda samstarfs-
vettvang ungs félagshyggjufólks til að knýja á um sameiginlegt fram-
boð vinstriflokkanna fyrir næstu alþingiskosningar. Gróska útilokar
þó ekki framboð. í yfirlýsingu frá stofnfundinum segir m.a. „Það er
nauðsynlegt að skapa nýja pólitík. Pólitík með innihaldi jöfnuðar,
kvenfrelsis, réttlætis og farsældar." Já, Gróska lætur sig varða jafn-
réttismál og hefur það aö markmiði að íslandi verði stjórnað í anda
hugmynda jafnaðarstefnunnar um jafnrétti, lýöræði og kvenfrelsi.
Einn af framsögumönnum stofnfundarins, Bryndís Hlöðversdóttir,
gerði jafnréttismál aö umræöuefni sínu. Sagði hún m.a. að kvenfrelsi
væri eitt af þeim málum þar sem fjórflokkarnir hefðu brugðist. Reynd-
ar minntist hún ekki á Kvennalistann og þá staðreynd að hann hefur
verið til í 13 ár. Enginn kynjakvóti er viðhafður hjá Grósku sem sést
best á því að í stjórn samtakanna eru 11 stjórnarmenn og þar af aö-
eins fjórar konur, ein þeirra er Kvennalistakonan Steinunn V. Óskars-
dóttir. Fyrirkomulagstjórnarinnar er ekki ósvipað ogí Kvennalistanum;
Gróska hefur engan formann heldur er stjórnin samábyrgð og skiptir
með sérverkum. Heyr, heyr, það ergreinilegt að konur úr Kvennalist-
anum sem starfað hafa með Grósku hafa fengiö einhverju ráðið.
Umræðan um samfylkingu hefur aukist að undanförnu og án efa
hefur stofnun Grósku haft þar mikið að segja. Nú er svo komið aö
það virðast vera fleiri mál sem sameina vinstrimenn en sundra.
Óneitanlega veltir maður því fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að
Kvennalistinn taki fyrir alvöru þátt í umræðunni um sameiningu
vinstrimanna. Hans veröur sárt saknað ef til samfylkingar kemur.
Þrátt fyrir að full snemmt sé að segja til um framvindu mála hjá
Grósku ber ekki aö efast um aö 18. janúar s.l. var viöburðaríkur dag-
ur og full ástæða til aö fagna.
R H
Samstarf stjórnarandstöðuflokkanna —
Laugardaginn 18. janúar 1997
var haldinn fundur í samráði
Kvennalistans sem skiþað er
konum úr öllum kjördæmum.
Fundurinn var vel sóttur og lífleg-
ur þar sem fram komu skiptar
skoðanir á þeim málum sem
voru til umræðu. Aðalefni fundar-
ins voru þreifingar um samstarf á
vinstri væng stjórnmálanna.
Tvennt var einkum til umræðu í
þessum efnum, annars vegar
stofnun Grósku, samtaka jafnað-
armanna og félagshyggjufólks, og
hins vegar formleg viöræðunefnd
um samstarf að frumkvæði for-
manns Alþýðubandalagsins, Mar-
grétar Frímannsdóttur.
Nokkrar Kvennalistakonur hafa
starfað með undirbúningsnefnd
fyrir stofnfund Grósku. Þær hafa
hins vegar lýst því yfir frá byrjun að
þær starfi með samtökunum sem
einstaklingar en ekki sem fúlltrúar
Kvennalistans. Þær munu halda
því starfi áfram á þeim forsendum
sem ákveönar voru í upphafi.
Ákveðið var að Kvennalistinn
héldi áfram þátttöku í viðræðu-
nefnd stjómarandstöðuflokkanna.
Fulltrúar Kvennalistans í nefnd-
inni hafa verið Steinunn V. Ósk-
arsdóttir og Stefanía Óskarsdótt-
ir. Ákveöið var að Kvennalistinn
bætti við tveimur fulltrúum í
nefndina. í viðræðunefndinni hef-
ur komið fram sú hugmynd að
halda lokaðan fund þar sem
saman komi miðstjórnir Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og Þjóð-
vaka auk samráös Kvennalist-
ans. Samráðið ákvað að leggja til
aö slíkur fundur verði einnig op-
inn öðrum og munu fram-
kvæmdaráð og þingflokkur sjá um
að móta tillögur Kvennalistans
um umræðuefni og form slíks
fundar.
Auk þessa var rætt um fund
sem haldinn var nú í haust þar
sem þingkonur stjórnarandstöðu-
flokkanna ræddu saman um auk-
ið samstarf inni á þingi. Sam-
ráðskonur voru sammála um að
þingkonur Kvennalistans haldi
áfram þessum viöræðum.
Á samráðsfundinum voru
samþykktar ályktanir um kjara-
mál, álver og viku gegn ofbeldi.
SEE