Vera


Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 25

Vera - 01.02.1997, Blaðsíða 25
að að vinna í borgarkerfinu frá því við kom- um þarna inn, ég og aðstoðarkona mín, tvær kvenmannsvæflur og það voru bara karlmenn í kringum okkur til að undirbúa borgarráðsfundi og annaö slíkt. Við höfum ráðiö konur eftir hæfni. Það skiptir engu máli hvar þær standa í pólitík og konur eru ekkert alltaf sammála. Málið snýst heldur ekki um það, heldur að þær finni að þær njóti stuðnings, virðingar og álits. Karlmenn, sem eru mjög hefðbundnir í sínu karlahlutverki, eru mun uppteknari af því sem við getum kallað valdboð og hlýðni við valdboö. Stjórnunarstíllinn er þá mjög mikið að ofan og niður. En það eru sem bet- urfertil undantekningar. Og hjá okkurí borg- arkerfinu eru vissulega margir karlmenn sem hafa mikla ánægju af að starfa með konum og læra mikið á því.“ Er þá hægt að segja að konur og karl- ar njóti jafnréttis í borgarkerfinu? „Nei, helsta áhyggjuefni okkar er kjaraleg staða kvenna. Það eru mjög stórir kvenna- hópar hjá borginni sem eru illa staddir kjara- lega. En það er ekkert einfalt mál að leið- rétta þetta launamisrétti. Borgin gerir það ekki upp á sitt eindæmi held- ur þarf að vera víötæk sátt um að gefa þessari leiörétt- ingu forgang og hún þarf að ná langt út fýrir borgarkerfið. Konur eru flölmennasti lág- launahópurinn I þessu landi. Kannski verður einhver sátt um að rétta hlut þeirra, en þá stöndum við frammi fyrir þvl að misréttið nær I gegnum allt kerfið. Ef við lyftum botn- inum, þá lagfærum við stöðu þeirra kvenna sem lægst eru „Verkalýðshreyfingin og stjórnvöld verða að beita afli sínu til að taka á launamisrétti kynjanna sem er innbyggt í kerfið," segir Ingibjörg Sólrún. launaðar en eftir stendur það launamisrétti milli kynja sem er innbyggt í kerfið á öllum stigum þess. Þaö er mitt mat að bæði verkalýðshreyfing og stjórnvöld veröi að beita afli sínu til að taka á þessum málum og eitthvað annað veröi að bíða á meðan.” Nú höfum við séð niöur- stöður kannana um það að íslenskar konur séu nokk- uð á eftir kynsystrum sín- um á öðrum Norðurlöndum í jafnréttisbaráttunni. Hver er ástæðan? „Við erum langt á eftir þeim í pólitík, sérstaklega landsmálapólitík. Þetta er eitthvað skárra í sveitar- stjórnarmálum. Hins vegar kalla sveitarstjórnarmál á mikla vinnu. Þau eru illa borg- uð, nema kannski í Reykjavík, þannig að fólk getur ekki minnkað við sig aðra vinnu. Þær konur sem gefa sig út í sveitarstjórnarpólitík standa gjarnan frammi fyrir því að vera með fulla vinnu, fjölskyldu og heimili aö auki - og oft er Ittill eða enginn stuðningur að heiman þegar á reynir. Þetta er svo mikið álag, aö margar gefast upp eft- ir eitt kjörtTmabil. Það hefur verið gerð könn- un á högum kvenna sem hafa gefið sig út í sveitarstjórnarpólitík og það kom T Ijós að þær vinna almennt lengri vinnudag en gengur og gerist og eiga fleiri þöm. Þetta eru einhveijar kjamakonur - en svo gengur þetta ekki upp.”

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.