Vera


Vera - 01.04.1997, Síða 7

Vera - 01.04.1997, Síða 7
menningu og menntun fyrirstríðsáranna í Evrópu. Þetta mótaði þau bæði og ég naut góðs af. En þrátt fyrir borgaralegt yfir- bragð bernskuheimilis míns voru þau bæði runnin úr verkamannastétt - pabbi einn af róttæku menntamönnunum, fylgjendum Héðins Valdemarssonar og mamma Al- þýðuflokkskona alla tíð. Þá var Alþýðu- flokkurinn verkamannaflokkur. Hjarta flestra í mínu æskuumhverfi sló því með verkalýðnum og réttindabaráttu þeirra sem minna máttu sín. Það mótaði mig sterkt enda einhenti ég mér í baráttu fyrir bættum kjörum og réttindum kvenna strax og færi gafst. Ég var nefnilega líka heppin með eig- inmann. Við hjónin skiptum með okkur búverkum frá fyrstu tíð, sem ekki var al- vanalegt á þessum tíma. Man að sumir strákarnir ráku upp stór augu þegar hann stóð við þvottavélina með svuntu og gúmmíhanska (sem ég aldrei notaði) og vildi ekki fara með þeim út, enda konan farin með sinni vinkonu í bíó. Ég stakk mér á kaf í stéttabaráttuna þeg- ar hann hafði fengið nóg af félagsmála- stússi og börnin voru að mestu komin af höndum. Fram að því hafði ég verið algjör fyrirmyndarmamma sem bakaði og saum- aði bæði á sjálfa mig og þau (aðallega á nóttunni ). Ég rak sérkennsluþjónustu heima, í samstarfi við manninn minn, fyrir nemendur sem illa rákust í almennum skóla, á meðan fjögur elstu börnin voru mjög lítil. Fór þó fljótlega að kenna utan heimilis, eða um 1960, enn með ómegð og ólétt enn eina ferðina. Krakkarnir sýndu mömmu sinni skilning alla tíð enda lögðum við bæði áherslu á að vera alltaf með þeim þegar við vorum ekki að vinna. Ég held að þeim hafi fundist það vera eðlilegt ástand að mamma væri dulít- ið upptekin við annað á köflum. Ég varð þó að fá mér konu í húshaldið þegar mest gekk á í samningalotunum sem gátu varað sólarhringum saman. Mín kynslóð breytti hádegismatnum, við færðum hann til kvöldsins. Reyndum þó enn að kenna börnum okkar mannasiði og enn var farið í spariföt á sunnudögum þegar okkar krakk- ar voru litlir. Skiptir ef til vill ekki öllu en gerir dagamun og dagamunur skiptir máli. Ég var fyrsta konan sem kosin var for- maður Kennarafélags Reykjavíkur árið 1974 og fyrsti formaður jafnréttisnefndar BSRB árið 1976. Þegar Kvennaframboðið kom fram bættist pólitíkin við. Ekkert af þessu hefði þó gengið nema fyrir dyggan stuðning heimafyrir, ekkert þessu líkt var sjálfsagt þegar kona átti í hlut. Brussumar Enn í dag telst það til undra og stórmerkja ef kona skipar æðstu stöður hér á landi. Þeir eru líka margir hjónaskilnaðirnir sem orðið hafa í kjölfar „réttindabrölts," fé- lags- og stjórnmálaþátttöku kvenna. Hvernig eiginkonur og mæður eru það líka sem eru á sífelldum fundum? Enn er hvísl- að um þær konur sem gera sig gildandi á sömu forsendum og karlar - eru fullgildir þátttakendur í mótun samfélagsins. Þær voru ekki margar konurnar sem voru virk- ar í stjórnum og ráðum félaga opinberra starfsmanna og á sömu forsendum og karl- arnir í kjarasamningagerð þegar ég var að byrja þar. Þær voru heldur ekki margar sem þorðu að taka til máls á fundum og segja sína skoðun á þessum tíma, hvað þá að orða baráttumál kvenna. Þær sem það gerðu voru álitnar ókvenlegar „brussur". Flestar voru líka upp fyrir haus í þeirri „realpólitík“ að vinna fullan vinnudag utan heimilis en slá jafnframt hvergi af heima fyrir. Karlarnir tóku sér tíma til að vera virkir þátttakendur í samfélagsmótun- inni. Margir þeirra höfðu líka mannaforráð og þar með meiri tíma til að sinna félags- málunum. Á þingi BSRB árið 1976 þurfti sérstakan samstöðufund á kvennaklósettinu á Sögu til að halda konum inni í stjórn og endaði með sex konum í átján manna stjórn BSRB. Konur voru þó rúmlega 60% félagsmanna. Karlar hafa Iöngum ráðið ferðinni i kjara- málum landsmanna, við látið þeim það eft- ir og gerum enn. Þetta þing BSRB var líka merkilegt fyrir það að sökum harðfylgis kvenna og forsjálni þeirra sem skynjuðu kall tímans var ákveðið að setja á laggir jafnréttisnefnd og samþykkt sérstök álykt- un um jafnréttismál. Þar var því lýst yfir að til þess að rjúfa hefðbundnar takmarkanir á starfsaðstöðu kvenna í þjóðfélaginu væri nauðsynlegt að öll börn ættu rétt á dagvist- unarrými. Sá liður ályktunarinnar þótti mjög róttækur, olli nokkru fjaðrafoki og blaðaskrifum. Hvað átti fólkið eiginlega við? Átti að setja öll börn á barnaheimili, ekki bara börn einstæðra mæðra? Pillan og sjálfstæði kvenna Ég var alla tíð ákveðin í að verða kennari, hafði auk heldur ákveðið framhaldsnám í Skotlandi þegar ég hitti æskuástina rnína á átjánda ári. Aldrei hafði ég verið við karl- mann kennd, barnið, og engin pillan! Pillan gerbreytti sjálfstæðri tilveru kvenna í heiminum. Ég veit að líf mitt hefði orðið öðruvísi ef pillan hefði verið komin... en ég hefði alls ekki viljað skipta á lengra skólanámi og barnahópnum og missa þannig af því að eignast stóra fjölskyldu. Börnin gáfu okkur báðum mikla lífsfyll- ingu og kenndu okkur margt...og svo er það hreinlega skemmtilegra að eiga stóra, samhenta fjölskyldu. „Sá á kvölina sem á völina“, segir þar og það er umhugsunarvert að enn er aðbúnað- ur barnafjölskyldna á íslandi þannig að ungt fólk, sér í lagi ungar konur, sem sam- kvæmt orðanna hljóðan eiga val, eiga það í raun ekki. Erfiðleikar við að stunda nám og vera jafnframt með smábörn eru það mikl- ir enn í dag að fjölskyldur verða æ minni og v£ra 7

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.