Vera


Vera - 01.04.1997, Blaðsíða 43

Vera - 01.04.1997, Blaðsíða 43
% * STÓLPA- konur Málverkasýning Sigríðar Gísladóttur Fyrr í vetur hélt Sigríður Gísladóttir málverkasýningu í Galleríinu Hornið við Hafnarstræti. Á sýn- ingunni, sem bar yfirskriftina „Lurkur“, sýndi hún 13 stór olíu- málverk, öll af konum í mismunandi hlut- verkum eða störfum sem gefin eru til kynna með táknum og tilvísunum í þjóðlífið. Myndirnar hennar eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Þær hafa mjög gamalt yfir- bragð og fljótt á litið sýnast þær mikið og ná- kvæmlega unnar en þegar betur er að gáð er pensilfarið létt og frjálst en hún beitir gamalli og nýrri tækni jöfnum höndum. Svipað má segja um innihaldið. Maður heldur fyrst að þetta séu helgar konur komnar langt aftan úr öldum en svo kemur í ljós að þetta eru jarð- neskar nútímakonur, nánar tiltekið ná- grannakonur Sigríðar í Staðarsveitinni. „Það eru alls ekki allir sem átta sig á því að ég er nútímakona. Né því að ég er að vissu leyti áróðursmálari. Ég hef reyndar aldrei litið á mig sem harðan femínista en kannski er ég það samt. Þessar myndir nn'n- ar fjalla vissulega um trúarbrögð en ekki síð- ur þennan ákveðna baráttuvilja sem konur þurfa að hafa til þess að komast af. Og mód- elin mín eru stólpakonur. Þær tóku t.d. litla rútu á leigu og komu allar saman á opnun- ina. Ég var djúpt snortin. Þær komust við ill- an leik heim aftur.“ Sjálf hefur Sigríður örugglega fengið væn- an skammt af baráttuvilja í vöggugjöf en hún er einstæð móðir og býr með þremur börnum sínum á Bjarnarfossi á Snæfellsnesi. Elsta barnið er í útlöndum við nám. „Mig langaði til að láta á það reyna hvort ég gæti lifað af því einu að mála og ákvað að Fyrirmyndir Sigríðar eru nágrannakonur hennar í Staöarsveit á Snæfellsnesi. gefa því tvö ár uppi í sveit. Nú er ég hálfnuð með tímann og bara nokkuð bjartsýn." Hún getur að vísu ekki leyft sér mikinn munað, t.d. getur hún ekki hitað húsið sitt upp nema að litlu leyti. Það er stundum mjög kalt og oftar en ekki frýs í pípunum og þá þarf hún að sækja vatnið út í læk. Sigríður lætur svo- leiðis nokkuð ekki buga sig en hlakkar til vorsins. „Til hvers lifir maður annars en að sigra?“ Við óskum henni alls hins besta í lífsbar- áttunni. Áslaug Thorlacius i i intranet ehf. Intranet ehf. er leiðandi fyrirtæki á sviði Inter- og i ntranetþj6nustu. Við bjóðum fyrirtækjum og stofnunum alla þá þjónustu sem nauðsynleg er til að byggja upp öflugt u p p I ý s i n ga ke rf i. Hvort sem um er að ræða upplýsingamiðlun á Veraldar- vefnum(WWW) eða á intraneti höfum við lausnir fyrir þig. Við bjóðum hvers kyns forritunarþjónustu, gagnagrunns- forritun, vefsíðugerð og hönnun. Nánari upplýsingar í síma 551 2110. netscape á íslandi 43 v£ra

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.