Vera - 01.04.1997, Blaðsíða 36
A. Karólína Stefánsdóttir
Ljóðalda
„úr djúpi þagnar“
Forljóð
Ljóðið hafði dvalið
í djúpum mér
svo lengi
að það kunni ekki að nota vsengina
vissi varla að það væri til...
Á langmyrku tungli
speglaðist það
í auga almættisins
og kviknaði á ný
braust fram með eldinum
kom nakið og sviðnað
á fjöðrum
með glóandi hjartasár
dvaldi í lófa mér
litla stund
lagði svo á brattann.
Ég horfi á eftir því
endurborin
móðir og barn
í senn
skýrð í máttarblóði
sköpunarinnar.
Eldljóð
Því horfir þú, konan
úr auga föðurins
á guðdóminn
móðuriaus
og fjöðrum rúin?
Því ertu ein og fangin
í heimi hans
villt í völundarhúsi óttans
án vitundar um
þína guðlegu móður
gyðju heimsins?
Þú veltir varla fyrir þér
hvers vegna
þeir tveir
einstæðir feðgar
ríkja á himni þínum?
Hvað varð um móðurina?
Því er hún ónefnanleg
gleymd og forsmáð?
Hvað segir það
þér og mér
um kúgun og smán
kvenna og þjóða?
Þeir kröfðust guðdóms
í eigin mynd
keisarar og klerkar heimsins
og vörpuðu móðurinni
fyrir róða.
Lengi braut hún sér leið
gegnum mistrið
í mynd Maríu.
Skein á himni föðurins
sem fögur stjarna.
Gaf fyrirheit
og von
um nýjan dag.
Hver verður sá faðir
sá heimur
sem fjötrar móður
í myrkri alda?
Hvers gjöldum við
Jarðarbörn
með blekkingararfinn
í brjósti
vængstífð í viðjum
óttans?
„Hvers vegna?“
spyr vindurinn af vængjum ljóðsins.
„Hvers vegna - hvers vegna?“
Gustar um gáttir
tímans
þung í skauti
þúsund ára
þögn.
Skapaljóð
Þýtur í lofti
lifnar alda.
Ur djúpi þagnar
flæða tónar
flæða töfrar
tala vé.
Sál mín þekkir seiðinn
forna.
Vitið þér enn
eða hvað?
Völvu söngvar
vekja huga
hliðin opnast eitt af öðru
í hjarta mínu dunar,
dunar.
Vitið þér enn,
eða hvað?
MÓÐIR HEIMSINS
er að rísa
úr myrkri alda
endurborin
eins og Mána
sem kviknar
á ný.
Frjóvguð af alheims
ástarafli
lauguð í gullnum tárum
tímans
fæðir hún af sér
nýja vitund
nýjan heim.
Vitið þér enn,
eða hvað?
Á nýju tungli I febrúar 1997
Höfundur er félags- og fjölskylduráögjafi á
Heilsuverndarstöðinni á Akureyri þar sem
hún vinnur m.a. meö sjálfsstyrkingu
kvenna. í félagi viö Valgeröi H.
Bjarnadóttur samdi hún og hélt
sjálfstyrkingarnámskeiðið Lífsvefurinn.
„í vinnu minni sé ég stööugt betur hvaö
trúarleg viðhorf samfélagsins hafa djúp
áhrif á sjálfsmynd okkar," segir Karólína.
36 v£ra