Vera - 01.04.1997, Síða 30
Helga Jónsdóttir viö undirritun
stærsta orkusölusamnings
Landsvirkjunar sem geröur var í
kjölfarþess aö ákveöiö varaö
stækka álveriö í Straumsvík.
að nýta hana til fulls nema til komi einhver stóriðja.
Hins vegar er það svo að raforku má hvergi
skorta, þannig að við verðum að virkja þótt aðeins
séu sárafáir kaupendur. Þegar við ráðumst í fram-
kvæmdir verðum við að fjármagna þær. Það væri
því mikilvægt að geta selt umframorkuna um sæ-
streng og jafnvel keypt orku til baka, ef við lendum
í áföllum. Sæstrengur gæti því tryggt betri nýtingu
fjárfestingar. Ég held raunar að tækni eigi eftir að
fleygja það mikið fram á næstu árum að sæstreng-
ur til Evrópu verði álitlegur kostur. Ég sagði að við
framleiddum næga orku fyrir okkur sjálf í dag, en
þetta er spurning um að geta líka brugðist við frekari
óskum stórkaupenda á orku.“
Hvað með júmblendið og álverið?
„Nú hefur verið gengið frá samningum við Norð-
menn um stækkun járnblendisins í þrjá ofna og það
er ekkert sem bendir til annars en að Columbia
Ventures verði að veruleika á Grundartanga."
Þegar Helga tók við formennsku í stjórn Lands-
virkjunar árið 1995, höfðu ekki verið gerðir stórir
orkusölusamningar í tuttugu ár, eða frá því að ÍSAL
var stofnað. Ahuginn á orkukaupum hefur farið
mjög vaxandi með batnandi efnahagsástandi. Samn-
ingur um stækkun ÍSAL var undirritaður skömmu
eftir að hún tók við stjórnarformennsku, en auðvitað
hafði undirritunin átt sér langan aðdraganda og und-
irbúning. Síðan hafa samningar um stækkun járn-
blendiverksmiðju á Grundartanga verið innsiglaðir
og gefið hefur verið út starfsleyfi fyrir álver Columbia
á Grundartanga. Það hefur því ekki verið nein logn-
molla í kringum Landsvirkjun síðan Helga settist í
stjórnina. Svo eru það skipulagsbreytingarnar í
stjórnsýslu Reykjavíkur. Það er nóg að gera...
„Já, ég kvarta ekki undan verkefnaskorti," segir
Helga, „en það er alveg óskaplega skemmtilegt."
Við kveðjumst klukkan hálfsjö á þessum þriðjudegi.
Það er ilmur af sól í lofti; þeirri fyrstu sól vetrar sem
ber með sér keim af vori. Verkefnum Helgu er ekki
lokið í dag, þótt vinnudagur sé á enda, því hún er á
leiðinni út að borða - hollustufæði - með dætrum sín-
um tveimur og svo skal farið í kvikmyndahús.
VIÐSKIPTAFRÉTTIR
MARKAÐSMÁL
UTBOÐ
PENINGAMARKAÐUR
AMARI
Konur lesa fleira
en kvennabl
UTAN UR HEIMI
VERSLUN
VIKUBLAÐ UM VIÐSKIPTI OG
KAÐSM--------------------------
EFNAHAGSMÁL
UTAN UR HEIMI
30 vera