Vera - 01.04.1997, Page 39
Konur<s>lnternetid
og á fjölda ættingja í landinu. Þegar herfor-
ingjastjórnin fór frá var ákveðið að gefa öll-
um upp sakir og á götum höfuðborgarinnar
Monte video, sem er á stærð við Reykjavík,
getur maður rekist á fyrrum böðla sína. Ég
hef ekki áhuga á því.“
Þegar Ana er spurð um söguefni segist hún
ekki vera í vandræðum því að þau sé allsstað-
ar að finna. Fjölskylda hennar hefur búið í
sama, stóra húsinu í 170 ár og ósjálfrátt detta
manni sögur Isabelle Allende í hug þegar slíkt
hús er nefnt. En Ana er ekki hrifin af því að
litið sé á túlkun Isabelle á lífinu í Suður-Am-
eríku sem hina einu sönnu mynd. „Isabelle
hefur búið til staðlaða mynd fyrir Evrópubúa
og Bandaríkjamenn af lífinu í þessari heims-
álfu. Hún byrjaði á því að stæla Gabriel
García Márquez og nú halda lesendur að þeir
viti hvernig líf suðurameríkana sé. Það eru
töfrar alls staðar og oft er raunveruleikinn
ótrúlegri en skáldskapurinn. Sögur um ástir
og dauða eru til í fjölskyldum í öllum lönd-
um. Með því að hlusta á fólkið okkar
komumst við oft að ótrúlegum ævintýrum,"
segir Ana og augu hennar ljóma.
Konur veröa aö
ná tökum á Internetinu
En hvernig datt henni í hug að skrifa bók urn
konur og Internetið?
„Ég komst að því að ekki var til nein bók
um þetta efni og ákvað því að skrifa hana,“
segir hún blátt áfram og útskýrir af hverju
henni fannst það nauðsynlegt. „Bækur um
tölvur eru flestar miðaðar við karlmenn á
aldrinum 16 til 21 árs sem eru með tækja-
dellu. Tölvuheimurinn er búinn til af karl-
mönnum fyrir karlmenn og uppbygging tölva
höfðar til karlmannlegrar hugsunar. Karl-
menn vilja halda tölvuheiminum fyrir sig og
láta konur halda að þetta sé of flókið fyrir
þær. Karlmönnum virðist eðlilegt að leika sér
í tölvum án sérstaks tilgangs en konur vilja
hafa skynsamleg not af þeim, t.d. færa heim-
ilsbókhald eða skrifa falleg bréf. Margar kon-
ur eru of varkárar og þora ekki að prófa sig
áfram. En tölva er bara tæki sem hægt er að
slökkva á ef maður lendir í vandræðum. Það
gerist ekkert alvarlegra en það!
Þegar ég byrjaði að kynna mér Internetið
fyrir fimm árum komst ég að því að fáar kon-
ur á mínum aldri höfðu nýtt sér þessa tækni.
Mér fannst því vanta bók til þess
að opna fyrir þeim þennan heim
og nú hefur bókin mín verið
þýdd á ensku og spænsku. Kon-
ur vilja gjarnan vita af hverju á
að gera hlutina svona en ekki
hinsegin áður en þær halda
áfram en karlar hafa minni
áhuga á því, þeir vilja bara kom-
ast áfram. Auk þess að vera
handbók eru í bókinni viðtöl við
konur sem hafa notfært sér
Internetið. Bókin Wired women,
sem kom út í Ástralíu, er líka
viðtalsbók við konur um Inter-
netið og er eina bókin, sem ég
veit um, sem fjallar um þetta
málefni," segir Ana.
Önu er mikið í mun að konur
geri sig gildandi í tölvuheimin-
um og nefnir í því sambandi að
það var kona sem bjó til tækið
sem var undanfari nútímatölv-
unnar. Hún hét Ada Byron, dóttir
Byrons lávarðar, og var uppi í 18.
öld. Ada var mikill stærðfræðing-
ur og bjó til tæki sem var kallað á
ensku analytical engine. í bók
sinni segir Ana frá Ödu Byron og
tímarit hennar á Internetinu nefn-
ist Ada. Stór tölvufyrirtæki hafa
einnig nefnt tölvur í höfuðið á
„Konur verða að sækja sér völd í þeim
heimi sem Internetið er,“ segir Ana Valdez.
„Ég er sannfærð um að eftir þrjú til fjögur ár
verður notkun þess orðin mun meiri þótt það
verði kannski ekki eins notadrjúgt og sjón-
varpið. Skapandi starf á mikla möguleika á
Internetinu, t.d. er þar talsvert af tímaritum
sem koma aldrei á pappír. Ég veit um a.m.k.
tvö spennandi kvennatímarit á Internetinu.
Upplýsingaöflun af öllu tagi er mjög auðveld
á netinu og það mun spara fólki mikinn tíma
á næstu árum, t.d. við innkaup og bankavið-
skipti," segir Ana að lokum.
Tímarit Önu á Internetinu hefur slóðina:
http://www.algonet.se/~agora/ada.
Til að komast á menningarsíðu hennar í
Dagens Nyheter er slóðin: http:// www. dn.
se/kvinnors.
EÞ
Kvinnor@
Ana L. Valdés'-*
Bonnier DataMedia
7*
m
FRITT
INTERNET-
ABONNEMANG
INGÁR
Hk HHHHHHHH
fann enga bók sem fjallar um konur og Internetið
ikvaö því að skrifa hana sjálf.
Ödu.
ÓLAFUR
ÞORSTEINSSON
LJÓSRITUNARPAPPÍR
KARTON
PRENTPAPPÍR
UMSLÖG
BRÉFSEFNI
Vatnagarðar 4
Pósthólf 551
12 1 Reykj avík
sími 568 8200
símbréf 568 9925
39 v£ra