Vera - 01.04.1997, Qupperneq 48
Nú andar sudrid
✓
mars
dagurinn minn eða þinn?
Fór í kvenréttindabol
í vinnuna
Karen, konan sem ég leigi hjá, var gift í tíu ár,
manni sem ræktaði kakkalakka í íbúðinni og veitti
þeim meiri eftirtekt heldur en henni nokkurn tíman.
Karen veit vel hvaða dagur er og í tilefni dagsins
klæðist hún „kvenréttindabolnum" sínum eins og
hún kallar það. Á bolnum eru áletraðar staðhæf-
ingar um stöðu kvenna í gegnum tíðina og unna
áfanga. Karen vill minna fólk á hversu stutt er síðan
konur voru yfirleitt taldar vera fólk. Hún meira að
segja lagði í að fara í bolnum í vinnuna. Umkringd
þessum „fínu og velklæddu menntamönnum" sem
hún vinnur fyrir. En það er þetta með menntun,
ekki er alltaf fyrirsjáanlegt hvernig hún virkar. Nú
gengur sú saga fjöllunum hærra að Karen sé lesbía,
sennilega vegna þess að ein af um fimmtíu staðhæf-
ingum á bolnum innihélt það ágæta orð.
Áttundi mars hefur þýðingu fyrir Karen, er hluti
af lífi hennar. Hún hefur þurft að berjast fyrir við-
urkenningu, eftirtekt og réttindum. Eg, hins vegar,
hef aldrei þurft að berjast fyrir neinu, á engan
kvenréttindabol og get ekki ímyndað mér að ég geti
mögulega gifst manni sem ræktar kakkalakka! Á ég
að fella þetta undir kynslóðabilið? En við Karen
erum ekki svo langt frá hvor annarri í skoðunum er
varða konur og kvennabaráttu. Við getum setið
• Viltu fá sömu laun og' karlmenn?
•Hvernig' geturðu látið launin endast?
•Hvert sný ég mér ef ég missi vinnuna?
•Er sama hvort þú ert gift eða í sambúð?
•Hver á hvað við samvistastlit?
•Hver er erfaréttur kvenna við fráfall maka?
•Eyðir þú um efni fram?
• Fj árhagsráögj öf, hvar fæst hún?
Þessum spurningum og Peningarnir og lífið
mörgum fleirum er svarað
í nýrri handbók fyrir konur. Handbók ætluð konum
um fjármál og félagsleg
réttindi
Bók sem þú ættir að kynna þér!
Hægt er að nálgast bókina á fræðsludeild
Iðntæknistofnunar eða panta hana í .
síma 587 7000 Iðntækmstofnun ■ I
Verð bókarinnar iðntæknistofnun islands
er 3.600 kr. án vsk. Keldnaholti • 112Reykjavik
Sími 570 7100 • Bréfasími 570 7111 * Heimasíða: http://www.iti.is
Kamilla Rún
Jóbannsdóttir
hefur skrifað grein-
ar í Veru. Hún er
nú við nám í bug-
vísindum í Ottawa
í Kanada, í fagi
sem heitir „cogni-
tive science“ og er
blanda af sálfrceði,
lífeðlisfrceði, tölvu-
frceði, beimspeki
og málvísindum.
Kamilla sendi Veru
þessar hugleiðingar
um kynslóðabilið í
kvennabaráttunni.
urnar
að er áttundi mars. Laugardagur, ósköp
. venjulegur dagur að því er virðist í fyrstu.
IKlukkan jafn óþolandi og alla aðra
morgna sem hún hringir. Cheerios í morg-
unmat og bið eftir strætó með skólabæk-
bakinu. Mér er það alveg fyllilega ljóst
hvaða dagur er í dag og er satt best að segja dálítið
vonsvikin yfir því að hann skuli ekki spila stærra
hlutverk í lífi mínu. Vonsvikin yfir því að ég sjálf
skuli ekki finna fyrir neinu sérstöku þennan dag,
sem er tákn baráttu kvenna í gegnum tíðina, tákn
alls þess réttar sem konur hafa þó áunnið sér í
mörgum löndum. Nei, það eina sem kemst að hjá
mér er sú óumflýjanlega staðreynd að ég þarf að
undirbúa fyrirlestur fyrir mánudaginn.
Hvað ætti ég líka að gera! Enginn af mínum félög-
um hér í Kanada er nálægt því að vera meðvitaður
um hvaða þýðingu áttundi mars hefur. Einstaka
kveikti þó á perunni þegar ég nefndi það að fyrra
bragði og viðbrögðin: „Æji, já. Ég man að mamma
hélt upp á þennan dag.“
48 v£ra