Ritmennt - 01.01.2001, Blaðsíða 56
GUNNAR SVEINSSON
RITMENNT
dag 1909. (31/74). í stjórnmálum fylgdi
hann íhaldsflokknum (Conservatives) að
málum og bar út fundarboð þeirra. (31/103).
Honum fannst það miður þegar frjálslyndi
flokkurinn (Liberals) sigraði í kosningum til
ríkisþingsins 1904 „sem ekki skyldi verið
hafa." (30/64). Heimskringla sem Sigmund-
ur skrifaði í og bar út studdi íhaldsflokkinn,
en andstæðingablaðið Lögberg fylgdi frjáls-
lynda flokknum að málum.
Fjölskylda Sigmundar og ættfólk
vestia
Ekki verður það sagt með sanni um Sig-
mund að hann hafi verið einstæðingur
þarna vestra. Bergsveinn bróðir hans var að
líkindum sambýlismaður hans framan af í
Winnepeg og síðan búsettur þar áfram.
Kona Sigmundar Ingibjörg varð samferða
honum vestur á slcipinu Magnetic66 þótt
hann geti hennar ekki í ferðasögu sinni í
dagbókinni. Hún var fyrst „hjá madömu
Ingibjörgu (Jónsdóttur) frá Grund," elckju
séra Sigurgeirs Jakobssonar. (25/49). Þau
Sigmundur og kona hans hittust aldrei
vestra. Dóttir þeirra, Svanfríður (Fríða), var
hjá móður sinni um skeið en varö að fara
þaðan vegna veikinda hennar 1. febrúar
1891. (25/120). Ingibjörg virðist hafa verið
að mestu á vegum Vigfúsar Þorsteinssonar
sem var „kostaður" til Ameríku ásamt
henni því að 30. apríl 1900 fær Sigmundur
bréf frá Vigfúsi, „hvar Ingibjörg gjörir mér
boð um föt og peninga, en ég hef hverugt af-
lögu." (28/93). í mars árið eftir kom „auð-
mjúkt betli-bréf" frá Ingibjörgu (29/14) og
annað í maí: „Fæ enn betli-bréf frá vesæl-
ings Ingibjörgu m(inni)." (29/27). Eftir þetta
52
er eiginkonunnar hvergi getið í dagbókun-
um og er ókunnugt með öllu um afdrif
hennar. Hafi hún fylgt Vigfúsi eftir þá dvald-
ist hann „um hríð í Winnipeg, en síðar í Ár-
nesbyggð í Nýja íslandi og síðast á Gimli.
„Hann kvæntist aldrei (...) var víst fremur
vel gefinn, greindur og fróðleiksfús."67
Um börn Sigmundar vestra er þetta að
segja í stuttu máli. Laundóttirin Jakobína
(Bína) hafði farið til Vesturheims 1883 og
gifst þar tvívegis. Hún var búsett í Suður-
Dakota og síðar í Minnesota. Þau feðginin
skrifuðust á en sáust aðeins tvisvar sumarið
1913 er Bína og seinni maður hennar heim-
sóttu Sigmund á leiðinni í og úr brúðkaups-
ferð. (32/150, 153). Bínu tók Jrað sárt að vita
föður sinn við útivinnu í hitasvækju eða
grimmdarfrosti og hauð honum tvívegis til
sín, 1905 og 1906, en hann lcaus að halda
lcyrru fyrir og vinna fyrir sér öðrum óháður.
(30/102-03, 189). Jakobína Sigfúsdóttir and-
aðist í Minneapolis 28. september 1917 „úr
alíslenzkri sullaveiki." (34/91-92). Sig-
mundur ritar síðan þetta í dagbólc sína:
„Á undan mér, þó eldri væri,
ertu farin, Bína mín,
mér er hjartkær minning þín,
missir þinn mig sári særir.
66 Júníus H. Kristinsson. Vesturfaraskrcí 1870-1914,
bls. 46, 54.
67 Lögberg, 13. nóvember 1924. Fregn um andlát Vig-
fúsar, 9. október 1924, á Betel, Gimli.
Opna úr ÍB 536 8vo. Handritið inniheldur rímur, sögur
og kvæði, á því er ein hönd sem gæti verið frá því um
1740, en ekki er vitað hver skrifaði. Svo sem af mynd-
inni sést er það allt miklu meira á hæðina en breiddina
(u.þ.b. 20x8 sm). Handritið var í skinnkápu sem nú
hefur verið tekin utan af því og sett með skinnbrotum
safnsins (Lbs fragm 66).