Ritmennt - 01.01.2001, Blaðsíða 138
INGI SIGURÐSSON
RITMENNT
Óðinn 28 (1932), bls. 49.
Jón Helgason (1866-1942).
ýmsu leyti af kenningum þýzkra guðfræð-
inga á 19. öld. Nýja guðfræðin lagði áherzlu
á sögulega, gagnrýna umfjöllun um Biblíuna
og vildi laga guðfræði að hugmyndaheimi
nýs tíma. Hún fól í sér ákveðið andsvar við
gagnrýni á kristindóm, sem tengist trú á
mátt vísinda og framsókn pósitívisma í víð-
um skilningi eftir um 1870. Um það leyti
urðu þáttaskil í danskri hugmyndasögu
vegna þessara hræringa. Det moderne gen-
nembrud, sem Danir nefna svo og á einkum
við bókmenntir á áttunda áratug 19. aldar,
náði langt út fyrir svið bókmennta. Georg
Brandes gegndi þar mikilvægu hlutverki.50
Áhrif hans komu skýrt fram í vaxandi ver-
aldarhyggju meðal íslendinga, eins og raun
varð á meðal Norðmanna. Einnig fól nýja
guðfræðin í sér ákveðið andsvar við rétt-
trúnaði, en djúpstæður ágreiningur hafði
verið milli þeirra, sem aðhylltust guðfræði
upplýsingarinnar, og hinna, sem fylgjandi
voru rétttrúnaði.51
Áhrifa nýju guðfræðinnar fór að gæta
meðal íslendinga um aldamótin 1900.52 Þau
bárust mest frá Danmörku og Þýzkalandi.
Áhrif hennar á íslandi eiga sér ákveðnar
hliðstæóur í Danmörku53 og Noregi.54 í báð-
um löndunum hafði stefnan veruleg áhrif,
og stóðu deilur um hana áratugum saman. I
Noregi má greina áhrif nýju guðfræðinnar
1880. í Danmörku voru deilurnar harðastar
eftir aldamót.
Margir áhrifamenn innan íslenzku kirkj-
unnar á öndverðri 20. öld voru hlynntir nýju
guðfræðinni. Má þar nefna Harald Níelsson,
Jón Helgason, Sigurð Sívertsen og Þórhall
Bjarnarson. Áratugum saman stóðu deilur
innan kirkjunnar milli þeirra, sem voru
undir áhrifum frá nýju guðfræðinni, og ann-
50 Sjá m.a. um danska hugmyndasögu á síðustu ára-
tugum 19. aldar og öndverðri 20. öld Niels Thom-
sen. Hovedstromninger 1870-1914.
51 Fjallað er um nýju guðfræðina á breiðum grundvelli
í Friedrich Wilhelm Graf (ritstj.). Liberale Theo-
logie.
52 Sjá m.a. um áhrif nýju guðfræðinnar á íslandi Pétur
Pétursson: Þjóðkirkja, frelsi og fjölbreytni, bls.
226-32, 242-48.
53 Sjá m.a. um áhrif nýju guðfræðinnar í Danmörku
P. G. Lindhardt. Den danske kirkes historie, 8. b.,
einlcum bls. 50-124.
54 Sjá m.a. um áhrif nýju guðfræðinnar í Noregi Einar
Molland. Fra Hans Nielsen Hauge til Eivind
Berggrav, einkum bls. 53-85.
134