Ritmennt - 01.01.2001, Qupperneq 82
JÓN ÞÓRARINSSON
RITMENNT
nrmiMí
-SCHOIflRI
.UDÆMR0R5
Oll'IEI'OI
J ■ ■
^ M\m
Mf; IYI DCU
ij; »VcVi;n
'/'/■/]nKm.
'J
Hymni scholaies (titilsíða, ÍB
525 8vo).
annarrar aldar frá siðaskiptum þegar bókin er skrifuð, má taka
undir þau orð Jakobs Benediktssonar að áhrifin frá siðaskiptaöld
séu vonum minni í meginhluta safnsins.18 Nótur eru við 21 sálm
í kverinu, ýmist aðeins við fyrsta vísuorð (6) eða fyrsta versið allt
(15 lög, eitt þeirra með tveimur röddum).19
Hin söfnin tvö eru bæði frá fyrri hluta 18. aldar. Meginefni
þeirra eru morgun- og kvöldsálmarnir sem einnig eru í Hymni
scholares, en hinum mikla bálki hymna sem þar er raðað eftir
hátíðum kirkjuársins er sleppt í þessum yngri handritum, og í
þeim eru engar nótur.20
I Antiphonarium Holense er tilgreindur 21 hymni,21 sumir
tvisvar eða oftar, og er þá meðtalinn aðventusálmur sem tvíveg-
is er nefndur á síðasta blaði handritsins (en það mun vera úr
annarri bók eins og fyrr segir). Dr. Jakobi hefur talist til að
fimmtán af þessum sálmaupphöfum komi heim við Hymni
scholares, og þykir það sem þarna ber á milli benda til að Hymni
scholares séu ættaðir úr Skálholtsskóla, enda „óvíst að öldungis
sami siður hafi verið um latínusöng í báðum latínuskólunum,
enda þótt gera megi ráð fyrir að meginatriðin hafi verið svip-
uð."22
Jakob Benediktsson lítur ekki sérstaklega til þess aldursmun-
ar sem er á bókunum, en Antiphonarium Holense er að líkind-
um meira en hundrað árum eldra en Hymni scholares. Hann
virðist eklci heldur hafa gert sér grein fyrir því að Antiphonari-
um Holense er í raun elsta íslenska „skólasöngbókin" sem varð-
veist hefur. En þegar hún er borin saman við Hymni scholares og
yngri gerðir þess handrits lcoma í ljós þrjú þrep á þróunar- eða þó
fremur hnignunarferli latínusöngs í íslensku skólunum. Anti-
phonarium Holense (um 1570) er tíðasöngsbók að kaþólskum
18 Jakob Benediktsson (1969), bls. 127-28.
19 Sbr. Jakob Benediktsson (1969), bls. 128; Hrafn Sveinbjarnarson, bls. 37.
20 Handritin eru: 1) Hymni scholares ad auroram et ad vesperam canendi.
Anno MDCCXVII. Add. 4896 í British Museum í Lundúnum, þangað komið
frá Sir Joseph Banks 1773. 2) Hymni matutini et vespertini in schola canen-
di, á blöðum 74-87 í Ny kgl. samling 338 8vo. Þar hefur verið steypt saman
handritum og brotum um óskyld efni með ýmsum rithöndum frá 18. öld.
Talið vera úr eigu Jóns Þorkelssonar |Thorchillius, 1697-1759) rektors í Skál-
holti. Sbr. Jakob Benediktsson (1975).
21 Tuttugu hymnar samkvæmt talningu Jakobs Benediktssonar (1969), bls. 128.
22 fakob Benediktsson (1969), bls. 128-29.
78