Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Side 6
6
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Pillan er algengasta getnaðarvörnin í dag. Áhrif hennar eru
þrenns konar.
A : Hindrar egglos með því að minnka framleiðslu FSH og LH í
heiladingli.
B : Breytir legslímhimnunni.
C : Slimtappinn í leghálsinum þykknar og verður ógegndræpur.
Til eru mismunandi gerðir af pillunni og ætti konan að velja
tegund i samráði við kvensjúkdómalækni, sem metur hvort konan
geti notað pilluna án þess að það komi niður á heilsu hennar.
Pillan er öruggasta getnaðarvörnin fyrir utan ófrjósemiaðgerð.
Þó er það dálítið misjafnt eftir tegundum. Stór galli við notkun
pillunnar er, að daglega þarf að taka hana inn og ef hún gleymist
einu sinni getur hún brugðist, og því vissara að nota aðrar varnir
með, t.d. smokk.
Algengustu pillurnar eru samsettar, þ.e. innihalda tvenns konar
hormón, östrógen og gestagen.
Ýmsar aukaverkanir geta fylgt pillunni og má flokka þær í
vægar og alvarlegar aukaverkanir.
Vægari aukaverkanir eiga ýmist rót sína að rekja til östrógen
eða gestagenáhrifa og eru m.a. húðþurrkur, kyndeyfð, þunglyndi,
ógleði, höfuðverkur og aukin útferð. Þá geta einnig komið fram
blæðingatruflanir, brjóstaspenna og mígreni.
Alvarlegri aukaverkanir eru hætta á blóðtappa, kransæðastíflu
og amenorrhea eftir notkun pillunnar.
Þetta sýnir að þær konur sem hyggja á notkun pillunnar ættu
að kynna sér í samráði við lækni alla þætti hennar, kosti og galla,
og reyna aðrar getnaðarvarnir ef konan hefur tilhneigingu til
áðurnefndra kvilla, s.s. hjartasjúkdóma, hás blóðþrýstings, syk-
ursýki og fleira.
Félagsleg ráögjöf til veróandi foreldra
Félagsleg ráðgjöf til verðandi foreldra er eitt mikilvægasta hlut-
verk þeirra sem vinna að þessum þáttum.
Niðurstöður skoðanakannana í Svíþjóð hafa sýnt að