Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Blaðsíða 28
28
LJOSMÆÐRABLAÐIÐ
Treponema pallidum Dysmaturitas
I.D.M.
Instrumentation
Male
Fyrirhyggja
Nýburar eru ásamt ungbörnum sérstæður sjúklingahópur
vegna skorts þeirra á tjáningu, t.d. geta þeir ekki kvartað um
verki hér eða þar. Ennfremur eru klinisk sjúkdómseinkenni ný-
bura oft mjög óljós, eins og vikið verður að síðar. Þegar þar við
bætist sú staðreynd, að bakteríusýkingar dreifast mjög hratt um
líkama nýbura og verða að lífshættulegum sjúkdómum á stuttum
tíma, er augljós nauðsyn þess að sjá fyrir möguleika á bakteríu-
sýkingu svo sem framast er auðið. Á töflu 2 eru talin upp helztu
hættumerkin.
Þýðingarmesta sýkingarleiðin frá móður til fósturs er tvímæla-
laust blóðleiðin í gegnum placenta. Líklegt er, að í hvert skipti
sem þunguð kona fær bakteremiu sem einhverju nemur, fái
fóstrið einnig bakteremiu. Sýnt hefur verið fram á, að lympho-
cytar nýbura fæddra af mæðrum, sem höfðu haft þvagfæra-
sýkingu á meðgöngutimanum, hafa aukin viðbrögð gegn E-coli
antigeni. Þetta hefur verið túlkað sem sönnum þess, að immun
kerfi nýburans hafi áður orðið fyrir áreiti þessara antigena.7 Aðr-
ar mögulegar smitleiðir eru frá kviðarholi í gegnum eggjaleiðara
og upp í gegnum fæðingarveginn frá yfirborðinu. Þessar leiðir eru
hins vegar ekki liklegar á meðan belgir eru heilir. Ef belgir springa
á hinn bóginn og legvatn vætlar frá konunni, kemur venjulega að
því, fyrr eða síðar, að legvatn sýkist, venjulegast af coli bakteríum
frá yfirborðinu. Um það er deilt hversu langan tíma það tekur leg-
vatnið að hljóta hættulega smitun, en flestir reikna með amni-
onitis, ef legvatn hefur sannanlega runnið frá konunni í meira en
24 klst.
Fyrirburðum og yfirburðum er hættara við bakteríusýkingu
vegna lélegri varna þeirra. Ber þar einkum að nefna húðina sem
hjá fyrirburðinum er þunn og viðkvæm, en húð yfirburðarins er
hrukkótt og sprungin.