Ljósmæðrablaðið - 01.04.1980, Síða 44
44
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Lögin kveða skýrt á um að á heilsugæslustöðvum
skuli ráða ljósmæður, og að sjálfsögðu er þá ætlast til
þess að þær annist þar þau störf sem eru þeirra sérsvið
irman heilbrigðisþjónustunnar.
Ljósmæðrafélag íslands lítur það alvarlegum augum
ef gegn þessu er brotið.
Mæðravernd er fyrst og fremst maéðranna vegna og
þær eiga rétt á því að hún sé í höndum þeirra sem til
þess hafa hlotið menntun.
Ljósmæðrafélag íslands fer þess vinsamlegast á leit
við háttvirt heilbrigðismálaráðuneyti og landlækni að
þessum málum verði sem fyrst komið i rétt horf.
Virðingarfyllst,
Steinunn Finnbogadóttir, formaður.
Til félags íslenskra kvensjúkdómalækna
Herra prófessor, Sigurður S. Magnússon formaður
Landspítalanum — Reykjavík.
Fyrir hönd stjórnar Ljósmæðrafélags íslands, leyfi
ég mér að leita til Félags islenskra kvensjúkdómalækna
og óska eftir áliti þess á þeirri skipan mála, að mæðra-
skoðun fari fram í heilsuverndarstöðvum landsins án
þess að þar séu ljósmæður að störfum.
Ljósmæðrastéttin á að mati félagsins að sjá um
þennan þátt heilsuverndar, enda hafa ljósmæður einar,
auk lækna, hlotið menntun sem gefur réttindi til að
hafa á hendi mæðraskoðun.
Ljósmæðrafélag íslands vill ennfremur benda á rétt
mæðranna í þessum málum. Ljósmæðrafélag íslands
væntir álits yðar sem fyrst.
Virðingarfyllst,
Steinunn Finnbogadóttir, formaður.