Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Side 14
10
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
— Hvernig?
— Fannst.þér eitthvað vera, sem hjálpaði þér alveg sérstaklega af því,
sem þú lærðir?
— Fannst þér eitthvað vanta í frœðsluna?
— Fannst þér Ijósmóðirin, sem tók á móti barninu þínu hjálpa þér og
uppörva nœgilega í samrœmi við það, sem þú hafðir lært? Ef ekki,
hvað vantaði?
— Var fœðingin auðveld?
— Dálítið erfið?
— Erfið?
— Mjög erfið?
— Var einhver nákominn þér viðstaddur fæðinguna?
— Hver?
— Hvaða hjálp veitti það þér?
— Einnst þér, að við hér getum bætt þjónstu á einhvern hátt?
— Getur þú bent okkur á eitthvað, sem mætti fara betur?
— Varst þú kvíðin fyrir fœðinguna?
— Hvenær varst þú vör við að þú finndir til kvíða?
— Hvernig upplifðir þú fæðinguna sjálfa, þ. e. frá því þú komst á
deildina og þar til þú varst búin að fœða?
— Var upplifun þín í samræmi við þœr hugmyndir sem þú hafðir gert
þér?
Tilhögun námskeiða á Heilsuverndarstöð Rvíkur 1986
Heilsugæsluhjúkrunarfræðingar og ljósmæður sjá um nám-
skeiðin. Ljósmóðir sér um tímana sem fjalla um fæðinguna.
Konurnar byrja oftast á námskeiði á tímabilinu 24,—30. viku
meðgöngu. Sameiginlegur tími fyrir alla hópana er 1. og 8. tími
auk skoðunarferðar á fæðingastofnun. (Sjá dagskrá).
í 6 tímum eru æfingar, slökun og fræðsla með 10—12 konum
og körlum. Hver tími stendur í ca 90 mín. og skiptist ca 50 mín.
fræðsla, 20 mín. æfingar og 20 mín. slökun. Hver hópur einn
tíma í viku kl. 16.15 eða 18.00. Samkomulag er við hvern hóp
hvort byrjað er á æfingum og slökun eða fræðsluefni. Verðandi
feður eru hvattir til að koma. í þeim tímum sem þeir sækja mest
hefur gefist vel að byrja á æfingum og slökun. Koma þeir þá
margir um leið og byrjað er á fræðslu og umræðum.
Fræðslan sem veitt er á þessum namskeiðum er fyrst og fremst
ætluð verðandi foreldrum sem ekki hafa sótt slík námskeið áður.
Reynt er að örva foreldrana til að lesa fræðsluefni, ræða, hugsa