Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 26
22
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Ummál kviðar: skal mæla og skrá reglulega.
Fósturhljóð: skulu hlustuð a. m. k. x2 á dag, konan sett í
monitor og fengið rit í ca /2 klst.
Bjúgur og þyngd: vigta konuna daglega, meta bjúg og skrá niður-
stöður.
Blóðrannsóknir:
— Blóðstatus — til að meta almennan blóðhag konunnar. Hct
getur sagt okkur til um hve hypovolemian er mikil í pre-
eclampsi.
— Serum electrolytar — kanna og fylgjast með electrolyta-jafn-
vægi m. t. t. hypovolemiu og vegna hættu á nýrnabilun.
— Serum kreatinin — kanna nýrnastarfsemi. Aukning verður
vegna skertrar starfsemi nýrna.
— Serum þvagsýra — til að meta nýrnastarfsemi. Hún hækkar
eftir 24 vikna meðgöngu hjá pre-eclampsi vegna minnkaðrar
glomerular filtration. Það gerist hins vegar ekki í háþrýstingi
af óþekktum uppruna.
— Trombocytar — fylgst er með fjölda þeirra vegna þess að í
alvarlegri pre-eclampsi eyðast þeir upp ásamt figrinogeni. Sjá
kafla um blóðstorkutruflanir.
— FDP = Fibrinogen degrations product — er niðurbrot af
fibrinogeni. Séu þessar rannsóknir afbrigðilegar skal mæla
PTTK, Quick, fibrinogen, total prótein til frekari greiningar á
hve blóðstorkutruflanir eru alvarlegar. Rannsóknirnar skulu
endurteknar eftir þörfum.
— Serum östriol — gefur upplýsingar um starfsemi fylgjunnar,
skal mæla x 2 í viku.
— Þvagrannsóknir — útskilnaður skal mældur, athuga eðlis-
þyngd og athuga eggjahvítu. Ef mikil eggjahvíta greinist skal
þvagi safnað í sólarhring og fæst þá nákvæm mæling á magni
eggjahvítu i þvagi. Einnig skal þvag sent í smásjárskoðun og
ræktun. Vikulega skal senda þvag í rannsókn m. t. t. útskiln-
aðar á cylindrum.
— Sonar — Konan skal send í sónar til að meta vöxt fósturs og
starfsemi fylgju. Einnig gæti sónarskoðun hjálpað til við að
ákvarða meðgöngulengd sé þess þörf en þó er það ónákvæmt