Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 36

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 36
32 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Konurnar eru oft mjög hræddar um börnin sín og hætt er við að þær liggi í rúmi sínu og velti sér uppúr og magni með sér hræðslu án þess að starfsfólk geri sér grein fyrir því. Til þess hafa þær nægan tíma. Því getur þurft að endurtaka útskýringar og upplýsingar við konuna ásamt því að veita þeim andlegan stuðning. Þetta er mjög brýnt að starfsfólk hafi í huga, því eins og sagt er „Pervention is priority”. Hjúkrun mjög slæmrar pre-eclampsi (eclampsi) Nauðsynlegt er að hafa mjög slæma pre-eclampsi í gjörgæslu. Hún verður að vera á einbýli, hafa stofuna rökkvaða og konan verður að vera á algerri rúmlegu. Forðast verður ytri áreiti s. s. óþarfa umgang og heimsóknir. Sjúklingurinn má ekkert reyna á sig, ekki vinna handavinnu né lesa og einnig þarf hún alla aðstoð við persónulegt hreinlæti. Fylgjast þarf nákvæmlega með parenteralt vökva. Setja upp þvaglegg til að fylgjast með þvag- útskilnaði, mæla timadíuresu. Hafa tiltækt sog og súrefni á stof- unni. Tunguspaði verður að vera til taks. Lyfjagjafir skv. ord. en hafa jafnframt við hendina inj. Librium og inj. Nepresol, fari konan í krampa. Þá þarf að gefa þessi lyf í bólus. Æskilegt væri að hafa konuna í monitor en ef ástand hennar leyfir það ekki er nauðsynlegt að hlusta oft eftir hjartslætti fósturs. Mæla þarf blóðþrýsting oft og reglulega því breytingar geta verið snöggar. Það starfsfólk sem hjúkrar konunni þarf að vita til hlýtar alla þá meðferð sem konan þarf að fá. Það þarf að skilja tilgang með- ferðarinnar og þekkja lyfin. Mikilvægt er að konan fái rétt lyf á réttum tíma. Andlegu jafnvægi verður að reyna að halda hjá konunni, hún má ekki finna inná óöryggi hjá starfsfólki. Áður en konan fær krampa verður hún oft pirruð og óróleg og fær jafnvel aura. Þegar konan fer í krampa skal strax hringja eftir hjálp og gefa inj. Lbrium. Síðan skal reynt að setja konuna i líf- legu til að koma í veg fyrir aspiration og vena cava syndrome. Setja tunguspaða upp í konuna til að hindra að hún bíti í tunguna á sér. Halda öndunarvegum opnum, soga slím úr vitum og uppgang ef með þarf, gefa konunni súrefni. Fylgjast með hvernig kastið er og hve lengi það varir. Passa að konan skaði sig ekki.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.