Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 34
30
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
— draga úr almennum æðasamdrætti, sbr. kafla um líf-
eðlisfræðilegar breytingar í eclampsi.
— bæta blóðflæði til heila, sbr. er ofar getur.
— minnka skynjunarhæfni heilans fyrir áhrifum líkam-
ans og umhverfinu.
— lækka blóðþrýsting.
— hjálpa til við að halda uppi vökva og elektrólytajafn-
vægi.
Þegar reynt hefur verið að fullnægja ofantöldum atriðum er
fóstrið fjarlægt úr leginu. Mortalitet er hátt bæði hjá móður og
barni. (13, 11, 12, 4, 10.).
Hjúkrun pre-eclampsi
Hjúkrun þessara kvenna fer, eins og meðferðin, eftir hve alvar-
legt sjúkdómsástandið er.
Sé hægt að meðhöndla konuna ambulant er mikilvægt að hún
komi oft í skoðun og að hún fái góðan andlegan stuðning, bæði
frá ljósmæðrum og læknum. Æskilegt er að hún fái þann tíma
sem hún þarf til spurninga og ráðlegginga. Konunni finnst hún
ekki vera veik og henni finnst kannski óþarfi að hætta að vinna og
hvíla sig heima. Aðstæður heima fyrir þarf að kanna því ekki er
jafnauðvelt fyrir allar konur að hætta að vinna úti jafnt sem
heima. Gangi þetta ekki heima þarf konan að leggjast inn til
hvíldar.
Fyrsta upplifun konunnar af deildinni er henni oft minnisstæð
og því þarf að vanda til við móttökurnar. Konan getur jafnvel
þurft að vera lengi inniliggjandi og því er mjög mikilvægt að hún
sé sátt við sjúkrahúsvistina. Nauðsynlegt er að fá konuna til að tjá
sig um sín vandamál, jafnt félagsleg sem andleg. í þessu tilliti er
mjög gott að einhver einn aðili setji sig í samband við konuna til
að byggja upp gott samband.
Legan reynist þeim oft erfið þar sem þeim finnast þær ekki vera
veikar. Þegar til stofuvals kemur þá þurfa þær að vera á fámennri
stofu eða jafnvel einbýli séu þær slæmar. Forðast skal eins og
mögulegt er ytra áreiti. Nauðsynlegt er að gera konunni grein fyrir
ástandi sínu, skýra henni tilgang meðferðarinnar og segja henni
frá mögulegum fylgikvillum pre-eclampsi en þó án þess að hræða