Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 21
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
17
1. í eðlilegri meðgöngu eykst hjartastarfsemi. Mínútumagnið
eykst því lengra sem Iíður á meðgönguna. Þetta virðist ekki breyt-
ast hjá konum með pre-eclampsi og því getur þetta ekki orsakað
háan blóðþrýsting.
2. Magn vökvans í blóðrásinni eykst á meðgöngu en samfara
pre-eclampsi er sá vökvi að miklu leyti í millifrumuvökvanum og
við það minnkar vökvinn í æðakerfinu.
3. Það sem gæti valdið samdrætti í æðum er aukin sympatisk
virkni í taugakerfinu en þetta er talið ólíklegt. Hins vegar gæti
verið um eitthvað efni að ræða sem kæmi frá nýrum, nýrnahett-
um eða fylgju og veldur samdrætti í æðaveggjum. (3)
Nýrnabreytingar: Þvagmyndun og blóðflæði um nýrun er
minnkað í pre-eclampsi miðað við eðlilega meðgöngu. Efni skyld
fibrinogeni eða niðurbrotsefni þess setjast að í glomerulus og
valda því að í frumunum verður einskonar bjúgur og blóðflæði
um nýrun minnkar. í glomerulus fer fram síun efna úr blóðinu.
(1,4)
Fibrinogen er nauðsynlegt storknunarefni í blóðinu en veldur
nýrnaskemmdum þegar það sest að þar og leiðir til tímabundins
próteinleka. Því meiri sem skemmdirnar verða og þar með meiri
útskilnaður á próteinum, minnkar hæfni nýranna til að mynda
þvag. Mjög mikilvægt er að fylgjast vel með þvagútskilnaði hjá
slæmum pre-eclampsium því mjög lítið þvagmagn sýnir að
ástandið er alvarlegt og að grípa verður inn í með keisaraskurði.
Hætta er á nýrnabilun sem getur valdið dauða.
Hæfileikinn til að skilja út sölt minnkar. Þau hlaðast upp í
líkamanum og valda vökvasöfnun í vefjum. Sumir telja að
aldosteron eigi líka þátt í litlum útskilnaði á Na + . Þessar
breytingar ganga til baka þegar burðurinn hefur verið fjarlægður
úr leginu. (1)
Blóðstorkutruflanir: í líkamanum er kerfi af hvötum og eggja-
hvítuefnum sem valda blóðstorknun ef blæðir einhvers staðar í
líkamanum. Þetta kerfi er stöðugt virkt og myndast í sífellu segar.
Svipað kerfi vinnur svo að því að leysa þessa sega upp. í heil-
brigðu fólki er jafnvægi þarna á milli. En á meðgöngu, einkum á
síðari hluta hennar, raskast þetta jafnvægi þannig að blóðstorku-