Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 27
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
23
þar sem langt er liðið á II trimester og jafnvel á III.
trimester.
— OCT — Oxitocin challenge test — ef grunur er um fylgjuþurrð
skal gera þetta próf skv. ordination eftir 32 vikna meðgöngu.
— Augnskoðun — allar pre-eclampsiu konur fara í augnskoðun.
Meðal annars eru athugaðir samdrættir í háræðum sem segja
til um ástand æðakerfisins.
— Bischop score — Við komu eru konurnar skoðaðar, ástand
legháls metið svo og fósturstaða. Vaginalskoðun er síðan
endurtekin eftir þörfum.
— L/S próf — Lecitin / sphingomyelin — Hægt er að gera leg-
ástungu og ná þannig legvatni og mæla þessi efni m. t. t.
lungnaþroska fóstursins. (2)
Meðferó
Eina lækningin við pre-eclampsi er að fjarlægja burðinn úr
móðurlífinu.
Meðferð við pre-eclampsi hefur lítið breyst síðustu ár vegna
þess að orsökin er ekki fundin enn. Þó má segja að tíðni slæmrar
pre-eclampsi hafi lækkað og má það þakka aukinni mæðravernd.
Með betri mæðravernd er hægt að fylgjast betur með þeim konum
sem teljast til áhættuhópa og eins hægt að greina snemma byrj-
andi pre-eclampsi. Aukin þekking og betri möguleikar á að með-
höndla þessar konur inni á sjúkrastofnun á einnig stóran þátt í því
að slæmum pre-eclampsi hefur fækkað.
Meðferð fer eftir einkennum. Finnist vægur háþrýstingur
(140/90—160/100) er konan látin hvíla sig í Vi klst. og blóðþrýst-
ingur síðan mældur aftur. Ef blóðþrýstingur lækkar ekki skal hún
hvíla sig í eina viku heima. Einnig er þessi sama meðferð viðhöfð
ef konan hefur dreifðan bjúg eða hefur þyngst óeðlilega mikið. Ef
blóðþrýstingur lækkar ekki þrátt fyrir góða hvíld heima, er konan
lögð inn á meðgöngudeild. Hins vegar ef um er að ræða alvarleg-
an háþrýsting (=£ 160/100), eggjahvíta í þvagi og/eða mjög mikla
þyngdaraukningu (S 2 kg viku) er konan strax lögð inn.
Við komu konunnar á meðgöngudeild er mjög mikilvægt að
taka góða sjúkrasögu og nákvæma fæðingarsögu. Athuga skal
sérstaklega ef saga er um pre-eclampsi í fyrri meðgöngu, nýrna-