Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 30

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Blaðsíða 30
26 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Útskrift: Verði konan einkennalaus af fyrrgreindri meðferð má útskrifa hana með leiðbeiningum um áframhaldandi meðferð heima. Áður en konan er útskrifuð skal fullvissa sig um að hún sé meðvituð um sitt sjúkdómsástand, skilji tilgang meðferðar. í þessu felst að kon- an geri sér grein fyrir mikilvægi nægrar hvíldar, réttri með- höndlun lyfja, um næringaríkt mataræði og að hún þurfi að koma oft og reglulega í mæðraskoðun. (2, 4) Áhættur fyrir móöir og barn Þetta sjúkdómsástand getur leitt af sér áhættur bæði fyrir móðir og barn sem við munum rekja hér á eftir. Eðlilega eru kon- ur með alvarlega pre-eclampsi og þeirra börn í meiri hættu en þær sem hafa væga pre-eclampsi. Þar af leiðandi sjást afleiðingarnar síður hjá þeim með væga pre-eclampsi. Mceðradauði: er á bilinu 0—13% en hefur lækkað undanfarna áratugi niður undir 10%. Þessar tölur eru frá USA. Engin kona hefur látist hér á landi undanfarin 13—14 ár. Perinatal mortalitet: er mjög hátt. Fyrirburðarfæðing er algengur fylgikvilli slæmrar pre-eclampsi og á það sinn þátt i að hækka tíðni perinatal mortalitet. Fylgjulos: Algengara hjá konu með pre-eclampsi en í eðlilegri meðgöngu. Hversu alvarlegt þetta er fer eftir því hve losið er mikið. Hypofibriogenemia: Samfara pre-eclampsi lækkar fibrinogen í blóði, því er nauðsynlegt að rannsaka þessar konur m. t. t. fibrinogen og annarra storkufactora. Sjá kafla um blóðstorknun í kaflanum um orsakir. Hemolysa: í alvarlegri pre-eclampsi getur komið fram hemolysa sem kemur fram sem gula. Orsökin fyrir þessu er ókunn. Við rannsóknir kemur koma brengluð lifrarstarfsemi, sérstaklega i ensymbúskap. Heilablœðing: Þetta er algeng orsök að mæðradauða i pre- eclampsi. Þetta er alvarlegasta afleiðing sem getur komið við acut hypertensio á meðgöngu.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.