Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 33

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 33
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 29 — sjóntruflanir, flygsur fyrir augum, — sljóleiki, almennur slappleiki, — minnkað þvagmagn (<700 ml/sólarhring), — ógleði og uppköst, — mjög hættulegt einkenni er ef konan kvartar um verk í epigastrium, en hann er talin stafa af þrýsting á lifur. Áður en eclampsi-kast byrjar kemur oft aura, þ. e. fyrirborði t. d. fá þær höfuðverk. Eclampsi-kast skiptist í þrjá fasa: 1. Pre-krampa fasi: Augun ranghvolfast, hendur og andlitsvöðv- ar kippast til, öndun verður risjótt. Þetta varir í 30—60 sek. og þá fer hún yfir í annan fasa. 2. Toniskir krampar: Allir vöðvar verða stífir, öndun hættir og konan verður cyanotisk. Hætta er á að konan bíti í tunguna á sér í þessum fasa. Þetta ástand varir í 30—60 sek. 3. Kloniskir krampar: Þar skiptist á vöðvaslökun og samdrættir. Þetta lýsir sér þannig að konan heggur. Munnur opnast og lokast, öndun verður snarkandi og þær froðufella. Þessi fasi varir í 1—4 mín. og síðan fer konan í djúpt meðvitundarleysi sem getur varað í nokkrar klst. Þegar hún svo vaknar upp, líður henni mjög illa og man ekki það sem hefur gerst. Þetta er lífshættulegt ástand sérstaklega ef konan fer í status epilept- ikus þ. e. þegar hvert krampakastið rekur annað. Meðferð: Markmið meðferðarinnar er að: á verðandi mæður &

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.