Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Qupperneq 37

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Qupperneq 37
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 33 Þar sem aðstæður eru fyrir hendi er strax á eftir reynt að fjarlægja burðinn. Freista skal þess að lækka blóðþrýstinginn með því að gefa inj. Nepresol í bólus og reyna þannig að koma í veg fyrir annað kast. Einnig getur verið nauðsynlegt að gefa inj. Librium til að koma í veg fyrir krampa. Þar sem ekki er hægt að gera keisara- skurð verður að halda þessari lyfjameðferð áfram. Eftir kramp- ana fer konan í dásvefn sem getur varað í 5—10 mín. Þegar hún vaknar aftur líður henni mjög illa og hún veit ekki hvað hefur gerst. Þessu þarf hjúkrunarliðið að vera viðbúið til að geta veitt konunni andlegan stuðning. Þar sem hjúkrun og meðferð er svo samtengt er ekki hjá því komist að margt sé endurtekið úr meðferðinni. (10, 15) Fæðingin Sé pre-eclampsi ekki á háu stigi getur konan fætt eðlilega. Ekki skal láta þær rembast mikið, heldur hjálpa til við fæðinguna á II. stigi og einnig skal leggja epiduraldeyfingu hjá öllum konum með verulegan háþrýsting. Engin kona með verulegan háþrýsting ætti að ganga lengur með en 40 vikur og jafnvel getur þurft að gang- setja fyrr, sé um alvarlegan háþrýsting að ræða, vegna hættu á fylgjuþurrð. Flestar þessara kvenna, svara vel gangsetningu, en oft getur þurft að gera keisaraskurð vegna móður og barns. í fæðingunni þarf að fylgjast vel með blóðþrýsting og konan höfð í monitor. Konan er höfð fastandi, með parenteral vökva og fylgj- ast þarf vel með þvagútskilnaði. Lyfjagjafir skv. ordination. Athuga skal að Metergin hækkar blóðþrýsting og því skal ein- göngu gefa Syntocinon. Barnalæknir skal vera viðstaddur fæðingu barnsins. Mjög mikilvægt er að konan viti og skilji tilgang meðferðar og að hún fái andlega uppörvun. (2) Sængurlega: Hætta er á að kona með alvarlegan háþrýsting fái eclampsi, sem kemur þá innan 48 klst, eftir fæðinguna. Því er hún höfð á legu þennan tíma. Krampar sem koma síðar eru ekki vegna eclampsi. Venjulega verður blóðþrýstingur fljótt eðlilegur eftir fæðingu en stundum er ástæða til áframhaldandi lyfjameðferðar og skal þá gefa lyf skv. ordination.

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.