Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Side 38

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Side 38
34 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Daglegt eftirlit er eins og á meðgöngudeild hvað varðar blóð- þrýsting, þvagútskilnað, eggjahvítu í þvagi, bjúg og þyngd. Á 4. degi skal gera eftirtaldar blóðrannsóknir: — blóðstatus — serum electrolyta — serum kreatinin og urea til að meta nýrnastarf- semi — trombocyta og FDP m. t. t. storkuhæfni blóðs- ins, einnig skal gera almenna þvagskoðun og ræktun. Oftast má útskrifa þessar konur á 6—7 degi, en áriðandi er að þeim sé vel fylgt eftir þegar heim er komið. Sé hækkaður blóð- þrýstingur eða próteinurea til staðar sex vikum eftir fæðingu skal vísa þessum konum til áframhaldandi skoðunar hjá lyflæknum á háþrýstingsgöngudeild. Jafnt í þessu sem öðru er nauðsynlegt að konan sé þess fullmeð- vituð hversu alvarlegar afleiðingar það getur haft ef hún gengur um ómeðhöndluð. (2) Lokaorð Við skrif þessara ritgerðar hefur það háð okkur mjög hvað lítið er í raun vitað um þennan sjúkdóm og einnig hve lítið er til af heimildum. Margt er til af bókunum, það er víst, en lítið að finna í hverri og sífelldar endurtekningar. Því höfum við stuðst mikið við það sem okkar læknar hafa skrifað. Meðferðin hefur lítið sem ekkert breyst undanfarin ár. Vegna þess hve lítið er vitað er alltaf verið að glíma við einkennin og afleiðingar en ekki orsakir og því getur meðferðin ekki orðið eins markviss og ella. Margt í þessari ritgerð hefur komið okkur á óvart og teljum við hana hafa verið mjög lærdómsríkt umfjöllunarefni. Sérstakar þakkir færum við þeim er studdu okkur með ráðum og dáð við þessa ritgerðarsmíð. Reykjavík, 7. maí 1984

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.