Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Síða 47

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Síða 47
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 43 Bréf til Ljósmæðrafélagsins Reykjavík, 20. desember 1985 Til stjórnar Ljósmæðrafélags íslands í nafni Kvennasögusafns íslands færi ég Ljósmæðrafélagi íslands alúðarþakkir fyrir það traust að fela safninu að varðveita gögn sem notuð voru sem heimildir að stéttartali ljósmæðra. Og ég þakka innilega fyrir fallega blómvöndinn sem mér var gefinn við það tækifæri 25. mars 1985. Hátíðleg afhending þessara gagna var sögulegur atburður sem minnst verður þegar framhald sögu Ljósmæðrafélags íslands eftir 1979 verður skráð. í 2. tölublaði Ljósmæðrablaðsins 1985 er frásögn af þeim atburði. En þar hafa orðið mistök sem brýn nauðsyn er að útskýra og leiðrétta: í Greinargerð frá útgáfustjóra og ritnefnd á aðalfundi LMFÍ 30. 3. 1985 kemur hvergi fram hver útgáfustjórinn er. Láðst hefir að setja nafn útgáfustjórans, Steinunnar Finnbogadóttur fyrrver- andi formanns félagsins, undir greinargerðina eða nánar tiltekið orðréttan hluta af ræðu Steinunnar sem hún flutti í sínu nafni og ritnefndarinnar. Á eftir ræðu Steinunnar er birt skilagrein um afhendingu gagna til Kvennasögusafns íslands og er hún undirrituð af báðum rit- stjórum stéttartalsins, Björgu Einarsdóttur og Valgerði Kristjóns- dóttur. Lítur því út fyrir að greinargerðin frá útgáfustjóra og rit- nefnd sé líka frá þeim komin. Ég fer vinsamlegast fram á að þetta bréf verði birt í næsta Ljós- mæðrablaði, því mér er mikið í mun, ekki síst þar sem Kvenna- sögusafni íslands hefir verið falið að varðveita þessi stórmerku gögn um íslenskar ljósmæður, að notaðar verði óbrenglaðar heimildir um þennan atburð við lok 60 ára sögu Ljósmæðrafélags íslands þegar framhald sögu þess verður skráð. Með vinsemd og virðingu fyrir íslenskri ljósmæðrastétt Anna Sigurðardóttir

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.