Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 50

Ljósmæðrablaðið - 01.01.1986, Page 50
46 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ Sigurður útskrifaði okkur úr Ljósmæðraskóla íslands með góðum óskum um farsæl störf um ókomna framtíð. Og stoltar gengum við nýútskrifaðar Ijósmæður út í lífíð með góðar minningar um skólaárin og Sigurður á þar stærstan hlut. Forlögin höguðu því þannig til, að þótt við hefðum yfirgefið skólann, unnum við á fæðingardeildinni með Sigurði. Við tókum einnig að okkur störf í þágu Ljósmæðrafélags íslands og því þurftum við oft að leita til Sigurðar vegna málefna ljósmæðra, Ljósmæðra- félags íslands og Ljósmæðraskóla íslands. Alltaf var Sigurður boðinn og búinn að aðstoða okkur á allan hátt og ekki voru fáar ferðirnar og fundirnir til ýmissa ráðamanna um mál- efni ljósmæðra. Við þökkum Sigurði fyrir vináttu og gott samstarf og ómetanlega aðstoð á Iiðnum árum. Hugheilar samúðarkveðjur flytjum við Audrey eiginkonu hans, börnum, tengdasonum og barnabörnum. Megi minningin um góðan og mikilhæfan mann lifa með okkur öllum. Anna G. Ástþórsdóítir Guðrún B. Sigurbjörnsdóttir

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.