Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Side 6

Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Side 6
Ljósmóðirin á Patreksfirði heitir Ásta Gísladóttir, hún útskrifaðist frá Ljós- mæðraskóla Islands haustið 1960. Hún réðist sem ljósmóðir til Patreksfjarðar sama haust, og hefur starfað þar alla tíð síðan sem eina ljósmóðirin. Þegar hún kom vestur voru þar eldri ljósmæður, hættar störfum, sem leystu Ástu af í sumarfríum og þegar hún átti börnin (þriggja mánaða frí) . Sumarfríin þurfti hún að borga þeim sjálf, þar sem ekki var gert ráð fyrir sumarfríi umdæmisljósmæðra. Nú er ein ljósmóðir búsett í sveitinni sem tekur að sér mæðraeftirlit, og ein- staka sinnum fæðingu, í sumarfríum Ástu. Fyrstu árin voru um 40 eða fleiri fæðingar á ári, en þeim hefur fækkað umtalsvert. Árið 1994 voru 16 fæðingar, 1995 voru þær 3, og 1996 fæddu 9 konur á Patreksfirði. Að sumu leyti stafar þetta af fólksfækkun á svæðinu, en að öðru leyti er það vegna þess að fleiri konur fara í burtu til að fæða. Þær fara ýmist að eigin ósk, eða er ráðlagt að fæða annars staðar af ljósmóður og/eða lækni í mæðraskoðun. Flestar fara suður til að geta dvaiist hjá ætt- ingjum, en færri fara til Isafjarðar. Tíð læknaskipti eru á Patreksfirði og eru margir þeirra með litla eða enga reynslu varðandi meðgöngu og fæð- ingar, og telur Ásta það mjög baga- legt, þar sem þeir eru fyrir vikið mjög óöruggir. Ásta er í hálfu starfi á heilsu- gæslustöðinni, og hálfu við sjúkra- húsið. Hún fær 40 % álag á laun fyrir viðveruskyldu, en ekkert fyrir hvert útkall fyrir sig, þannig að launin eru jöfn, hvort sem útköll eru engin eða sólarhringum saman. Hún hefur ekki píptæki og kemst því í raun aldrei langt frá símanum, a.m.k. ekki út fyrir bæjarmörkin. Hún hefur lítið komist t.d. til að fylgjast með nýjungum í faginu, og finnst henni það miður. Ásta er einn dag í viku með mæðra- skoðun og ungbarnaeftirlit á Patreks- firði, og fer á Tálknafjörð hálfan dag í viku. Á Bíldudal var ljósmóðir með 6 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.