Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 31

Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 31
Svipmyndir frá aðalfundi f Afmælisbragur IJILEFNI 85 ára afmælis Ljósmæðrafélags Islands samdi Þórdís Klara Agústsdóttir Ijósmóðir þessar vísur og sungu Ijósmæður eins og þeim er einum lagið í afmælishófi sem haldið var í kjölfar aðalfundar Ljósmæður láta ekki að sér hæðast fví lífsins nauðsyn er þeirra iðja svo lengi sem blessuð börnin fæðast ber þeim að hjálpa, fræða, styðja! Og lítið var hugsað um þeirra hagi ■ hjartanu leyndist ógnin dulda er neyðarkall barst að næturlagi var napurt að berjast við storm og kulda! Oft böl og fátækt við þeint blasti 1 barnsnauð konan lá og þjáðist með handtök snör í hendingskasti • heljarátök þá var ráðist! ”Hvernig bæri barnið niður?“ Hugast ei í slikum ferðum ðrýpur höfði, djörf og biður: "Hrottinn vertu með í gerðum“ bn til að standa sterkum fótum var stofnað félag, sótt á miðin Jótlega upp úr aldamótum Attatíu og fimm ár liðin! Og gamla glóðin ennþá lifir þótt gjörbreytt sé með hjálpartækjum og ljósmæður búa ennþá yfir ýmsum góðum hugvits klækjum! Við ljósmæður höfum löngunt verið leiknar í okkar góða fagi „Ykkur frætt sem börnin berið svo bijóstagjöfin verði í lagi.“ Sé þjónustan einhuga innt af hendi við eflaust því setta marki náum að meðganga og fæðing alltaf endi sem eðlilegast, því það við þráum! Að viðmót okkar veki gleði að virða rétt og siði kvenna að veita hjálp með glöðu geði að greina, hvetja, skilja, kenna! Til hamingju við sem hérna erum við heiðrum þær sem á undan fóru þá framtíðarsýn í brjósti berum að breyta til góðs í smáu, stóru! Þórdis Klara Ágúslsdóttii; Ijósmóðir 21.mars 2004. r Ahugaverðar ráðstefnur fyrir Ijósmæður • 23. - 25. júní, 2004. Önnur al- þjóðlega ráðstefnan „In sickness and in health“ verður haldin í Háskóla íslands. Sjá slóð ráð- stefnunnar http://www.hi.is/ nam/ hjukrun/sicknessandhealth. html • 14. - 18. júlí 2004. ILCA ráð- stefna 2004. http://www.ilca.org/ conference/index.php • Alþjóða ljósmæðraráðstefnan (ICM) verður haldin í Ástralíu 2005. Slóð ráðstefnunnar er www.midwives2005.com/ • Midwifery Today - Reclaiming the Art of Midwifery. Bad Wil- bad, Germany 20.-24. október 2004. Sumartími Sumartími á skrifstofu LMFÍ verður með svipuðu sniði og und- anfarin ár. Frá 1. júní verður ein- ungis opið á þriðjudögum frá kl. 9-13, lokað vegna sumarleyfa frá 28.júní til 6. ágúst. í ágúst verð- ur opið á þriðjudögum frá kl. 9- 13. Eftir sem áður er formaður til taks í síma 861 6855, verður þó stödd erlendis írá 30. júní -10. júlí. 30 Ljósmæðrablaðíð ma' 2004

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.