Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 34

Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 34
Hún fæddi svo með léttri sogklukku reyndar, á LSH og fór fljótt heim aftur í mína umsjá. Andleg eftirvænting og spenna áttu þátt i því að trufla næstu fæðingu, kon- an missir vatnið við 37,2 vikur og ekk- ert er eins og hún ætlaði sér og hún hreinlega ekki tilbúin. Var með fúllt hús af bömum sem voru svolítið fyrir. Eng- in sótt að ráði. Þarna var ég að hugsa um tímann og barnalæknana, hvað ef þetta er svo bara lítið kríli sem gott væri að fæddist bara á LSH. Svo við fórum en viti menn sóttin snarharðnaði á leið- inni og hún fæddi næstum því í lyft- unni! Fór heim til ffumbyrju sem var rétt að byrja með murningsverki, heyri ekki hjartslátt með Doppler. Mjög erfið reynsla en lærdómsrík, konan var áfram í minni umsjá og ég tók á móti barninu og sinnti íjölskyldunni áfram. Tvær konur sem áttu „langdregnar fæðingar“ eða sársaukaupplifúnin var hreinlega of mikil fyrir heimafæðingu án neins nema vatnsins, nuddsins og þeirra úrræða annarra sem hægt er að gera án lyfja eða nálastungna. í báðum tilfellunum tel ég einnig að þær hafi báðar upplifað of snemma að fæðing væri að nálgast, þe að verkja- upplifun þeirra væri meiri en hjá meiri- hluta kvenna. Báðar notuðu vatnslaug- ina, önnur fór í pottinn löngu áður en ég kom og fór að mínu mati of snemma, þar sem slikt getur hreinlega kallað á langdregnari fæðingu. Á LSH fengu þær báðar epidural og hvíld áður en farið var að örva þær með syntocinon- dreypi. Fæddu sjálfar fín börn með góðan apgar. Andlitsstöðuna greindi ég ekki fyrr en útvíkkun var lokið og komið að því að opna belginn fyrir fæðinguna. Kon- an var búin að vera í pottinum og fæð- ingin gengið mjög yndislega við dans, hennar rólegheit og annað tilheyrandi. Fyrsta skoðunin var eðlileg, allavega ekki afbrigðileg andlitsstaða, en hún var frumbyrja og ég vildi ekki láta fæðinguna gerast heima. Hún fæddi án verkjalyfja eða deyfingar en fékk slæma rifú sem var saumuð í svæfingu. Barnið var með bólgna tungu og varir eftir fæðinguna sem hjaðnaði á 2-3 klst. Hún lá sængurlegu í nokkra daga á LSH. í töflu 5 má sjá ástæður fyrir flutningi barna og mæðra þeirra á LSH eftir heimafæðingu. Hér er um að ræða tvö tilfelli. Hið fyrra var barn, ansi stórt einnig, sem var með öndunarerfiðleika, og bláan Fyrsta brjóstagjöfm. húðlit. En klíniskt virtist þessi móðir ekki vera með svona stórt barn, fæðing- in gekk mjög vel, hann fæddist reyndar frekar snöggt eftir að hafa rifið móður sína og var með greinileg einkenni um vot lungu, þ.e. náði ekki góðum lit og andaði hratt. Það gekk fljótt og vel að færa þau frá heimilinu á LSH, með neyðarbilnum Hjá mér var reynd heimafæðingaljósmóðir hún Ingigerður Guðjónsdóttir og sá hún um að vefja barnið inn í teppi með hitapoka meðan ég sá um að gera móðurina klára. Barn- ið lagðist inn á vökudeild og reyndist vera með vot lungu en þar sem hann var fæddur heima var hann settur á sýklalyf sem mér fannst heldur einkennileg ráð- stöfún bara fyrir það eitt að fæðast heima. Ferill hans á vökudeild urðu 7 dagar að mig minnir. Móðirin tjáði mér að það hefði verið erfið reynsla að hafa hann ekki hjá sér og einnig að hann var lengur inni vegna sýklalyfjagafarinnar sem hann var tekinn af þegar útséð var að hann var ekki sýktur. Seinna tilfellið var móðir sem var i svo einkennilega mjúkri sótt að hún varla fann fyrir neinu og þegar ég kom til hennar var hún að klára útvíkkun. Tók til í snatri allt sem þurfti, því ekki var tími fyrir pottinn. Hrefna Einars- dóttir ljósmóðir náði að koma. Konan missti vatnið og með það sama fæðist barnið. Hún valdi að fæða standandi með stuðningi maka og gafst hreinlega ekki tími fyrir annað. Naflastrengur var um háls og náði hann að herðast að barn- inu, tel ég, þegar hún losnaði úr burðar- liðnum. Hratt vafði ég af henni strengn- um en hún var líflítil en með góðan litar- hátt og hjartslátt, en andar ekki, ég tek hana upp og blæs í hana þar til hún tekur við sér. Hún var farin að anda sjálf áður en neyðarbíllinn kom og var sú ákvörð- un tekin af okkur fagfólkinu á staðnum að litla prinsessan þyrfti að fá lúxus meðhöndlun og fara í obs. á vökudeild- Foreldrarnir voru eðlilega í áfalli en allir náðu að vinna úr þessari reynslu með tímanum. í dag er þetta kát og fín stúlka sem er ef eitthvað er á undan sínum jafn- öldrum í þroska. Hvað mig sjálfa varðar Tafla 5. Ástæður flutnings bama og mæðra þeirra á LSH eftir heimafæðingu. 1. Stórt bam 4715 g apgar 8/7 Móðirin frumbyrja fékk 4 rifu » Reyndist vera með vot lungu - vökudeild saumuð í svæfingu lá sængurlega á LSH 2. Barn fæðist lífvana, Fer á vökudeild til obs 34 Ljósmæðrablaðið maí 2004

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.