Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 29
Skýrsla stjórnar LMFI
til aðalfundar 2004
Aðalfundur LMFÍ 2003 var haldinn
miðvikudaginn 30. apríl 2003 á veit-
'ngahúsinu Carpe Diem við Rauðarár-
stlg. Mæting ljósmæðra var venju frem-
ur nokkuð góð, en gert var hlé á fúndi
hl að snæða saman léttan kvöldverð.
Að loknum hefðbundnum aðalfund-
arstörfum og matarhléi fór fram um-
r®ða um framtíðarhugmyndir um
menntunarmál ljósmæðra.
Ein ný ljósmóðir kom inn í stjórn að
Þessu sinni Jóna Dóra Kristinsdóttir
Sem starfar á Miðstöð mæðraverndar en
hún tók einnig sæti í kjaranefnd. Að
öðru leyti varð ekki breyting á stjórn fé-
lagsins.
I dag eru kjarafélagar 178 sem er
fekkun frá fyrra ári. Ekki kann ég skýr-
lngu á því en vona að nýjar ljómæður
k°mi til liðs við félagið þegar kjara-
samningar verða lausir í haust. Fagfé-
'agar eru 101 og er sú tala svipuð og
andanfarin ár. Reglur félagsins kveða á
um að ef fagfélagi hefur ekki greitt ár-
Qald til félagsins í tvö ár skuli hann
Eelldur út af félagaskrá og nýtur þ.a.l.
ekki réttinda sem aðrir félagsmenn og
fer ekki sendan póst eða annað frá
félaginu.
Stjórnarfundir á síðasta starfsári
N°ru 7. Fræðslufundir voru 2 ef með er
'alin ráðstefnan „Eðlilegar fæðingar í
nutíma samfélagi“ sem haldin var í til-
4n' af komu Inu May Gaskin s.l. haust.
8 vil sérstaklega þakka fræðslunefnd
rabæra frammistöðu við undirbúning
°8 framkvæmd hennar. Ennfremur vil
e8 þakka þeim sem þátt tóku í þessu
'je.rkefni af hálfu ljósmæðranámsins við
• Mér er kunnugt um að Ina May var
niJög ánægð með dvölina hér og er búin
a fara víða í lopapeysunni sinni.
Fræðslunefnd hefúr einnig haldið
utan um nálastungunámskeiðin og var
aldið námskeið á Selfossi seinnipart
Sumars og s.l. haust. í febrúar var hald-
lnn fyrrihluti námskeiðs og lýkur því i
Ulaí. Næsta námskeið hefst í lok ágúst
°8 lýkur því í nóvember. Lilleba Ankers
Ólafia M. Guðmundsdóttir
formaður LFI.
hefur tekið vel í að halda áfram að
koma til íslands og kenna ljósmæðrum
nálastungur. Hún er hinsvegar afar
ásetin og er t.d. búin að skipuleggja allt
árið 2005.
í skýrslu stjómar til síðasta aðal-
fundar voru kynntar hugmyndir um
sameiningu allra BHM félaga undir eitt
þak. Það hefur ekki gengið að finna
húsnæði sem allir geta sætt sig við. Það
er von okkar í stjórn LMFI að félagið
komist undir sama þak og önnur BHM
félög, en sú von hefur veikst verulega
frá siðasta vori og ólíklegt að úr þessu
verði fyrr en þá að loknum kjarasamn-
ingum.
Fundir með samninganefnd Heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytis vegna
heimafæðinga- og heimaþjónustusamn-
ingsins hafa verið nokkrir á starfsárinu
en þegar þetta er skrifað er búið að und-
irrita samning sem við munum kynna
undir liðnum önnur mál hér á eftir.
Samninganefnd HTR er afar fost fyrir
og hefur haft lítið að bjóða ljósmæðr-
um, auk þess sem vilji er fyrir því að
losna við heimaþjónustusamninginn út
úr TR. Ég hef vissar áhyggjur af því að
verið sé að reyna að koma þessari þjón-
ustu fyrir í Heilsugæslunni án þess að
við séum hafðar með i ráðum. Okkur
tókst þó að fá inn bókun með samn-
ingnum um að á samningstímanum
verði farið í viðræður um breytingar á
fyrirkomulagi á heimaþjónustu í sæng-
urlegu.
Samkvæmt ársreikningi sem lagður
var fram á síðasta aðalfundi var fjár-
hagsstaða félagsins erfið árið 2002 og
var halli á rekstrinum. Árið 2003 er
mun betra og erum við a.m.k. réttu
megin við núllið. Með aðhaldi og sam-
stilltum aðgerðum hefúr stjórninni tek-
ist að snúa vörn í sókn. Þá lítur út fyrir
að við uppgjör fyrir árið 2004 verði
staðan nokkuð álitleg en þar munar
mest um endurgreiðslu frá BHM vegna
ofgreiddra félagsgjalda.
Undirbúningur undir NJF ráðstefn-
una í næsta mánuði hefúr gengið vel og
er þátttaka orðin góð. í dag höfðu 397
ljósmæður skráð sig.
Fræðslunefnd hefur verið falið að
hafa samband við Félag fæðinga- og
kvensjúkdómalækna til að undirbúa
sameiginlegan fræðslufund um sam-
eiginlegt hagsmunamál sem eru vax-
andi málssóknir vegna meintra mistaka
við fæðingar.
Formaður FFK, Ósk Ingvarsdóttir
hefur tekið vel í að haldinn verði sam-
eiginlegur fræðslufundur um þetta mál
en eiginleg skipulagning er ekki hafin.
Ég vona að þetta geti orðið með haust-
inu.
Undirrituð hafði hugsað sér að hætta
sem formaður félagsins nú í vor. Það
hefúr ekki tekist að finna nýjan for-
mann þannig að ég hef ljáð máls á því
að gegna starfinu áfram þar til nýr for-
maður fæst. Það er hins vegar háð því
að hægt verði að dreifa verkefnum
þeim sem framundan eru og hef ég
góða von um að það takist.
F.h. stjórnar LMFI
Ólafia M. Guðmundsdóttir
formaður.
Ljósmæðrablaðíð maí 2004 29