Ljósmæðrablaðið - 15.05.2004, Blaðsíða 4
Ritstjóraspjall
Ljósmæðrablaðið hefur nú komið út
í 82 ár. Fyrir ljósmæður sem fagstétt
er nauðsynlegt að hafa vettvang þar
sem hægt er að sækja og miðla
fagþekkingu ásamt því að skiptast á
skoðunum um málefni sem að þeim
snúa. Við vitum að mörg mál eru í
brennidepli og mikilvægt að um þau
sé umræða. Siðfræðileg umræða er
vaxandi þáttur í okkar starfi og er
mikilvægt að ljósmæður séu virkir
þátttakendur í þeirri umræðu. Eva
S. Einarsdóttir er ein af þeim
ljósmæðrum sem hafa ákveðnar
skoðanir á ýmsum málum og fjallar
hér um fóstureyðingar út frá sínu
sjónarhorni.Val verðandi foreldra á
þjónustu er einnig þáttur í siðfræði-
legri umræðu. Á síðustu árum hefur
út um allan heim aukist umræðan
um val á fæðingarmáta, þar sem
konur óska jafnvel eftir keisara-
skurði án heilsufarslegra ástæðna.
Verkefni Eddu Kristinsdóttur ljós-
móðurnema veitir okkur innsýn í
hugarheim konu sem stendur frammi
fýrir vali á fæðingarmáta eftir fyrri
keisaraskurð. Þarna fáum við ljós-
mæður mikilvægt tækifæri til að
heyra rödd konunnar segja frá þeirri
reynslu.
Ljósmæður eru í auknum mæli
að auka við sig þekkingu og ijölgar
þeim ört sem lokið hafa meistara-
gráðu. Að þessu sinni birtist ritrýnd
Valgerður Lísa Sigurðardóttir
grein upp úr meistaraverkefni Mar-
grétar Hallgrímsson um útkomu
spangar í eðlilegri fæðingu. Ekki
leikur vafi á að þar er á ferðinni
mikilvægt innlegg í klínískt starf
ljósmæðra, við erum jú alltaf að
hugsa um að vernda spöngina!
Áfram er haldið með klínísk við-
fangsefni, það líður varla sá dagur í
starfi ljósmóður án þess að hún
mæli blóðþrýsting. í verkefni Önnu
S. Vernharðsdóttur úr námi í Ljós-
móðurfræði skrifar hún um blóð-
þrýstingsmælingar sem eru kannski
ekki eins einfalt mál og ætla mætti.
í blaðinu birtist einnig samantekt
um heimafæðingar á Islandi síðustu
tíu árin byggð á erindi sem Guðrún
Ólöf Jónsdóttir flutti á ráðstefnu í
haust um eðlilegar fæðingar í nú-
tímasamfélagi.
En þó við einblínum mikið á
nútímann og framtíðina þá er okkur
öllum hollt að staldra stöku sinnum
við og líta um öxl. Smám saman er
að hverfa frá störfum kynslóð ljós-
mæðra sem unnu við allt aðrar að-
stæður en við þekkjum í dag. Eins
og fram kemur í viðtali við Jóhönnu
Hrafníjörð ljósmóður voru aðstæð-
ur í heimahúsum misjafnar á þeim
árum sem hún var að störfum og
sjálfsögð nútímaþægindi eins og
sími eða kynding ekki alltaf til
staðar. Saga Jóhönnu er merkileg en
hún var í mörg ár sjálfstætt starfandi
ljósmóðir og rak fæðingarheimili í
Kópavogi. Það er umhugsunarvert
að konur hafi haft fleiri valkosti um
fæðingarstaði á þeim tíma heldur en
þær hafa í dag, en í sjónvarpsþætti
nýlega kom einmitt fram að íslensk-
ar konur eru farnar að þiýsta á um
að hafa fleiri valkosti eins og t.d-
fæðingarheimili. Þessu þurfum við
Ijósmæður að huga að.
Margt er framundan hjá ljós-
mæðrum, norræna ráðstefnan
„Mothers of Light“ verður haldin í
Reykjavík 20.-22. maí þar sem
búast má við Qölda góðra gesta og
úrvali fyrirlestra.
Að lokum óska ég þess að ljós-
mæður eigi ánægjulegt sumar fram'
undan.
4 Ljósmæðrablaðið maí 2004