Akranes - 01.07.1951, Page 5

Akranes - 01.07.1951, Page 5
Af þessu leiddi, að Björn fór að freist- ast til að kaupa bát — móti öðrum — og gera út. Báturinn hét Björgvin, og var Fiskimjöl h.f. eigandinn. Báturinn hafði verið í nokkru ólagi, þar sem vélin hafði oft brætt úr sér. Þrátt fyrir þótt Björn gengi út í þetta, var einhver kviði i hon- um að þetta gengi ekki vel og gæti orðið til þess, að hann gæti ekki staðið í skil- um með andvirði til Fiskimjöl. Þegar hann hafði gert út um kaupin við þáver- andi forstjóra fyrirtækisins, Walter Sig- urðsson, segir Björn: ,.Hvað skeður nú, ef vélin heldur áfram að bræða úr sér?“ Þá segir Walter þessi eftirminnilegu orð, sem honum var svo eiginlegt: „Þá reikn- ar þú með því, að við menn sé að eiga“. Þetta var í september 1932, en enda þótt útgerðin gengi sæmilega, þorði Björn ekki að fást við útgerðina og seldi bátinn aftur í vertíðarlok 1933, enda átti útgerðin þá erfitt uppdráttar. En meðan Björn átti bátinn bræddi vélin aldrei úr sér, en bæði undan og eftir. Walter Sigurðsson varð ekki langlifur, því að hann fórst af voða- skoti nokkru siðar en þetta var, og varð öllum harmdauði, er hann þekktu. Hafði alltaf löngun til umbóta í iðninni. Þrátt fyrir, þótt Björn hefði nokkra löngun til að gera út, var netjagerðin þeg- ar orðið hans raunverulega lífsstarf og aðal-áhugamál. Hann var þá lika búinn að fást nógu lengi við þetta til þess að finna og skilja, hve viðhaldi síldarnetja og snurpunóta var yfirleitt ábótavant, og að hér vantaði ýmis tæki og skilyrði til umbóta á þessu sviði. Áður fyrr, — að undanteknum fyrri stríðsárunum — voru nætumar aðallega keyptar uppsettar frá Noregi, ýmist barka- litaðar og hrátjörubikaðar, eða barkalitað- ar og koltjörubikaðar, og reyndust kol- tjörubikuðu nætumar jafnaðarlegast bet- ur. — Að aflokinni síldarvertíð voru næturnar breiddar út á tún eða fiskreiti til þurrkun- ar, en oft vildi þessi þurrkunaraðferð reynast misjafnlega, enda oft komið fram á haust og ekki alltaf þerrisamt. Hið versta við þessa þurrkunaraðferð var þó það, að ef tíð var vætusöm, tapaðist svo mikill lit- ur úr nótinni og ending hennar skamm- vinnari fyrir það, sérstaklega þar sem ekki voru tök á að endurlita næturnar fyrir næstu síldarvertið. Með því að hafa tækifæri til að hengja næturnar upp í þar til gerða þurrkhjalla, tapaðist enginn litur úr þeim og fóm bet- ur með sig i þurruninni, en þrátt fyrir þessa bættu þurrkunaraðferð þurfti vitan- lega við og við að barka næturnar í byrj- un síldarvertíðar. Þegar hér batnaði svo verulega öll þessi aðstaða til bættrar með- ferðar, sýndi það sig fljótlega — og var viðurkennt — að næturnar entust í 5 til 6 ár, móts við 1 —3 ár áður. Ráðist í byggingarframkvæmdir Af stórhug, en litlum efnum, réðist Björn svo i byggingarframkvæmdir árið 1933, sem voru fullgerðar 1934. Þetta var timburhús með áföstum þurrk-hjalli og smá stein-útbyggingu til litimar. Þetta hús mun hafa verið svipað að stærð og aðal- bygging hins nýja húss er nú. — Þetta mun hafa verið fyrsta hús sinnar tegund- ar, sem byggt var hér á landi, þar sem allt þetta var undir sama þaki: Þurrk- hjallur, geymsla fyrir nætur, litunarhús og vinnusalur. Viðbótarbygging úr steini kom svo 1937. f þessari nýju byggingu fór svo fram uppsetning á nýjum nótum og netjum, þar með troll og snurruvoðir, — aðallega þó bátatroll — tilbúnar slöngur, teina- efni, tilbúið kork og steypt blý. Samhliða þessu, eða nánar tiltekið 1936, setti Björn upp fullkomna litunarstöð veiðarfæra, með þar til gerðri — sjálfvirkri — litunarvél, sem var sú fyrsta hér á landi. Árin 1936 til 1940, er félagi Björns, Sveinn Sveins- son, sem síðar stofnsetti netjagerðina í Höfðavik. Bjöm hafði lengi útibú á Siglufirði á sumrin. Á vorin var sérstaklega mikið að gera, og hafði hann þá oft 30—40 manns í vinnu. Eftir að aðstaðan batnaði með byggingunni jókst einnig verkefnið, og mun þetta lengi hafa verið eina verkstæð- ið, — sömu tegundar — sem hafði opið, eða nægjanlegt að gera allt árið. Fjárhagserfiðleikar enn. Það var meira af vilja en mætti, að ráðizt var í þessa byggingu. — Eins og áður er sagt, hafði Bjöm sérstakan áhuga fyrir lituninni, sem einkum átti að skapa betri endingu veiðarfæranna. Björn skrif- aði Landsbankanum langt mál og ræki- legt um þetta mikilsverða mál. Einstaka menn höfðu glöggt auga fyrir þessu, svo var t. d. um Sveinbjörn heitinn Egilsson. Þrátt fyrir allt þetta var lánsfé til bygg- ingarinnar svo við neglur numið, að ekki var hægt að fullgera bygginguna að innan. Frá því að Björn var til húsa í Völundi fylgdist Sveinn M. Sveinsson, forstjóri þar, af miklum áhuga með Birni og gekk oft þarna vestur eftir til þess að vita, hvernig honum sæktist byggingin. t einni ferðinni komst Sveinn að því, að lánsféð var þrotið og sýnt, að ekki var hægt að fullgera hús- ið að innan. Þá segir Sveinn við Björn: „Sæktu tirnbur inn í Völund, svo mikið sem þarf til að fullgera húsið“. Björn seg- ist lengi skuli muna Sveini þetta dreng- skaparbragð. Um síðir hafði og Georg Ól- afsson, bankastjóri, mikinn áhuga f^TÍr framgangi málsins. Þar stóð aldrei á greiðslu. Hér áður var minnzt á einstaka við- skiptamenn Björns, sem viðskiptalega séð studdu hann vel og dyggilega á stað. Þar kom síðar til enn einn góður viðskipta- maður, sem ekki var eitt í dag og annað á morgun. Það var fiskveiðifélagið Kveld- úlfur. Það voru afbragðsmenn við að eiga, og þar stóð aldrei á greiðslum og annarri fyrirgreiðslu. Það telur Björn að hafi hjálpað sér mikið, þegar erfitt var, að geta þar reitt sig á greiðslu, hvenær sem hennar var vitjáS. Hugsað hærra. Það mun hafa verið á árunum 1938 til 1939, sem Björn fór í alvöru að brjóta heilan um, hvernig hann mætti komast yfir fullkomnar netjahnýtingavélar. At- huganir hans og eftirgrenslanir leiddu til þess, að hann komst í samband við þýzkt firma um kaup á þremur nýjum vélum, sem áttu að kosta 100 þúsund krónur. — Þetta fór þó allt út um þúfur, annars veg- ar vegna fjárskorts, og hins vegar vegna AKRANES 77

x

Akranes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.