Akranes - 01.07.1951, Síða 13

Akranes - 01.07.1951, Síða 13
hugðarefni, og þó er hún eigi síður þjóð- leg í dag og verður á morgun. Fyrstu kynni mín af skáldskap var kveðandi Bjarna í fjósgeilinni og ein fyrsta minningin er heimsókn Símonar, hins síðasta fulltrúa liinnar fornu rímu. En nálægt þeirri minningu er minningin inn Alþingisrímurnar, um svipað leyti, svo vel vixlleggst hið gamla og nýja. •— Alþingisrimurnar voru kveðnar á hverju heimili í sveitinni. Það var eðlilegur og sjálfsagður hlutur að ég lærði þær, að mestu utanbókar — af fólkinu á heimil- inu — en ekki af bókinni — og þannig hygg ég að það hafi verið með velflesta unglinga í nágrenni mínu. Þegar vér hugleiðum þetta, og að Símon kveður fram á annan tug þessarar aldar — að þá er enn uppi meðal vor fullgildur fulltrúi hins aldagróna rímnakveðskapar — frábær um margt — þá er ekki að furða þótt hin stutta og meitlaða visa og hin létta rima eigi enn nokkra samleið með þjóðinni og samrýmist jafnvel betur önn og hraða aldarinnar heldur en hinn, ef til vill efnismeiri og hátíðlegri ljóða- kveðskapur, og þannig er þa(S vissulega. Þsð hallar austur af Vatnsskarði. Fjörð- urinn opnast breiður og skínandi. Við fór- um fram hjá Víðimýrarseli og móanum þar, sem Stefán G grét ungur að aldri, er hann sá á bak jafnöldrum sinum ríða suð- ur til skólanáms. Og þarna eru rústir beit- arhúsanna frá Brekku þar, sem Bólu- Hjálmar leitaði skjóls sín siðustu ár, og dauðans að þeim liðmJm. Oss ber yfir til Blönduhlíðar. Til suðurs blasa við Skagafjarðardalir. Já, margur kynlegur kvistur er runninn úr þessari jörð, sem gerði svo harðbýlt við höfuð- skáldin tvö, að annar dó i beitarhúsum, en hinn var borinn út á auðnir Vestur- heims. Hér ólst Símon Dalaskáld upp, hér dvaldi hann æfina alla — þótt víða reikaði hann til fanga, og hér dó hann á sveit sinni — betur gekk það honum ekki í lífinu — á þvi herrans ári 1916, eftir 72 ára vegreisu við liarla misjöfn kjör og kosti. Upp ég vóx sem annað blóm, öllum sviftur kvölum, skáldmæltur að skatna róm i Skagafjarðardölum. Og þ', ss megum vér Skagfirðingar minn- ast að alltaf taldi Símon sér til tekna að vera Skagfirðingur. Ijjót mig baga leiðindin, — ljóða klagar gjörðin —; hryggur slagar hugurinn heim i Skagafjörðinn. Að sjálfsögðu eru Skagfirðingar öðrum mönnum meiri, þvi kveður hann um Saura-Gísla, er hann kom til Skagafjarð- ar, en Gísli þótti málafylgjumaður mikill: Þó vinni mál um Vesturland viðum móti hringa, ekki hefur Gísli grand að gera með Skagfirðinga. Allt er kvenþjóðinni betur gefið norður þar en syðra: Snoppufríðar snótir víða syðra víst eru bágar vits um far, vantar gáfur norðlenzkar. En fleira ber til þegar skáldið Dala forðast fríð fljóð á Kjalarnesi — — leitar hugur til þeirra norðlenzku: Man ég forðum marga stund, mætum skorðuð gróða, fyrir norðan fögur sprund faðminn þorðu bjóða. Ekki svo að skilja að Símon vanmæti vini sína á Suðurlandi, til þeirra yrkir hann þakkarávarp, og undir Esjunni bjó sú Ingibjörg, sem hann yrkir um lengst af æfinnar. Það er hið Skagfirska glaðlyndi, sem kemur fram i lofi Símonar um það, sem Skagfirzkt er og norðlenzkt. Símon Dalaskáld vann sér mikla brag- arfrægð í lifanda lífi, en jaifnframt litla viðurkenningu sem skáld, að minnsta kosti i augum þeirra, sem þar um þóttust kjörn- astir að dæma. Nú þegar Símon hefur legið hálfan fjórða áratug í gröf sinni, koma ljóðmæli hans út i umfangsmiklu úrvali, 488 þétt- prentaðar síður. Nú fer fram nýtt mat á Símoni sem skáldmæltum manni, sem merkilegu fyrirbæri i ljóðsögu þjóðar vorrar. Og margt mætti þar um segja. Margir hafa orðið til þess að dilkdraga Símon og skáldskap hans í þá kró, sem Jónas vikur að með orðunum: Leirburðarstagl og holtaþokuvæl fyllir nú breiða byggð með aumlegt þvaður. Bragðdaufa rímu þylur vesæll maðuj-. Þetta er auðvelt verk, en það er ef til vill ekki svo auðvelt að að sanna fullgíídi þeirra vinnubragða. Símon á það mest á hættu allra skálda, að skáldskapur hans sé dæmdur eftir magninu og meðalgæðum þess, og þá stendur hann höllum fæti. Uppalinn á hálfgerðum hrakningi fer hann á mis allrar fræðslu sem heitið get- ur, lærir meira segja aldrei að skrifa svo að brúklegt sé. Erfið kjör, sem auka fjöl- lyndi hans og galla lundar og uppeldis, gera hann að farandskáldi, að kvæða- manni, sem verður — þegar út í þetta er komið — að gera sér það að atvinnu að yrkja þyndarlaust um Pétur og Pál og fyrir Pétur og Pál. Áheyrendurnir eru ekki beisnir margir hverjir, en eitt er sameiginlegt um þá vel flesta, að þeir gera fyrst og fremst þá kröfu til skálds- ins, að það yrki þrotlaust og stanzlaust. Fólkið líka vænt mér var Vesturlands á slóðum, °g ég gjörði yrkja þar ódæmi af ljóðum. — Segir Símon i ljóðabréfi sem jafnframt er ferðasaga. Það má öllum ljóst vera, sem athuga það, af nokkurri gaumgæfni og samvizku- semi, að skáldgáfa Símonar hefur verið með fádæmum og undraverð. Og það er of raunalegt til þess að það geti verið gaman, að hugleiða hverju sú gáfa hefði getað áorkað ef hún hefði verið leidd á réttan veg, eins og hann sjálfur víkur að: Enginn maður heldur hefur heitið skáld af tómri mennt. Slíka drottinn gáfu gefur; getur hana enginn kennt. Ungu þróast hún í hjarta himinfögur tignarleg lærdóms þegar ljósið bjarta leiðir hana á réttan veg. En þess bjarta lærdómsljóss naut Símon aldri — og því fór sem fór. Hann finnur þetta sjálfur — og hver handverksmaður hann hefur gerst í skáldskapnum: Einji bezt skynja þú munt það, þengill dýrðar hæða, mjög að hef ég misbrúkað mína gáfu kvæða. Þó þarf ekki að afsaka Simon né bera i bætifláka fyrir honum, en það þarf að velja og hafna, og lofa mörgu að fljóta fram um og staðnæmast við það, sem mest er um vert, það sem haldgott er og heilt, og það reynist furðu margt. Með sínu létt- ara hjali vann Símon einnig mikið verk, hann kvaS fyrir fjöldann, og að mörgu leyti við hæfi fjöldans. Hið bezta í skáldskap Símonar er ekki stórbrotið, en það er svo innilegt, að hin barnslega góðmennska, trú og kærleikur, blasir við í hverri linu og á milli þeirra. Og glettnin og glaðlyndið yfirgefur hanri ekki þótt á mörgu leiki um kaup og kjör. Hver vildi ekki hafa kveðið vísuna, sem Simon kveður 12 ára: Lítil kinda eignin er, — tnn það myndast bögur —, tvö þó lynda læt ég mér lömibin yndisfögur. Beint i mark hittir glettni og mat Sím- onar er hann kveðst á við séra Ólaf í Fagranesi um Guðrúnu Ósvífsdóttir, svo sem frægt er orðið: Tryggð og gæðum gekk á bug Guðrúri Ösvífsdóttir. AKRANES 85

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.