Akranes - 01.07.1951, Blaðsíða 19

Akranes - 01.07.1951, Blaðsíða 19
vatnið nái til þess síðarnefnda og beri það í brunna og önnur vatnsból. Á lofteitrun frá gröfum er lítil hætta. Sú lofttegund, sem einkum kemur til greina, er kolsýra, sem myndast síðari hluta rotnunartímabilsins. Lofteitrun af henni er einkum möguleg í illa gjörðum grafhýsum og þegar gröf er tekin svo ná- lægt annarri, að komið er að kistu þeirri, sem þar var grafin. Öll þessi atriði, sem nú hafa verið nefnd, ber að hafa í huga, þegar kii'kjugarðstæði er valið, en nánar til tekið eru þá eink- um þrjú atriði, sem hafa ber í huga. Það eru heppileg lega, góður jarðvegur og nægileg stærð. Skal nú vikið að þeim nánar. Um kirkjugarða gilda hér á landi lög nr. 64, 1932 og reglugerð nr. 83, 1934. Lög þessi og reglur fjalla að mestu leyti mn stjórn, fjárhag og umsjón og viðhald kirkjugarða, en þar eru einnig nokkur atriði um hollustu og heilsuvernd, og verð- ur þeirra getið í því sambandi, sem þau fjalla um. Þegar velja skal góðan grafreit, koma einkum 3 atriði til greina: 1) heppileg lega, 2) heppilegur jarðvegur, 3) nægileg stærð. Um leguna er það að segja, að sumir hafa viljað fastákveða minnstu fjarlægð frá íbúðarhúsmn og brunnum, en um það gefur heilsufræðin þó ekki ákveðnar reglur. Fjarlægðin fer eftir stæðinu, jarð- vegi, grunnvatni og halla. Grafreit á ekki að velja, þar sem grunnt er á grunnvatni eða hætta er á, að flæði yfir. Halli á grafreit er ekki heppilegur og einkum ó- hafandi, ef grunnt er á grunnvatni og hallar að íbúðarhúsum. Mjög laus jarð- vegur er og slæmur í slíkum tilfellum. 1 kirkjugarðalögum vorum er svo fyrir mælt, í 3. gr., að þar sem ekki er völ á nægilega þuinum eða djúpum jarðvegi til kirkjugarðsstæðis, skal sveitar- eða bæjar- félagið kosta framræslu eða uppfyllingu landsms, svo að unnt verði að taka nægi- lega djúpar grafir, og vatn standi ekki í gröfum. Um jarðveginn er annars það að segja, að sendinn jarðvegur er talinn beztur. 1 honum rotna líkin fyrst, barnslík eftir ca 4 ár og fullorðinna eftir 7—9 ár. Það sakar ekki, að hann sé dálítið leirborinn,, en deigulmór er slæmur. Hann er ýmist of votur eða of þurr og tefur eða hindrar rotnun, veldur adipocire eða mimiificatio. Mjög moldarborinn jarðvegur og mór er of rakur, en möl of gisin og hleypir yfir- borðsvatni í gegn. Sprunginn jarðvegur hleypir og yfirborðsvatninu í gegn og er óliæfur. Þéttur jarðvegur losnar og bylt- ist við gröftinn og er því betri fyrst um sinn á eftir. Grunnvatnið hefur mesta þýðingu, meiri en sjálfur jarðvegurinn. Það má aldrei ná kistunni. Það á að standa a. m. k. 50 cm. lægra en kistubotninn, þegar það stendur hæzt, til þess að vatn kom- izt ekki að líkinu og rotnunarefnin frá líkinu komizt ekki í vatnið. Ef jarðvegur er laus, verður fjarlægðin að vera meiri. f þessu sambandi kemur dýpt grafar- innar til greina. I lögum vorum frá 1932 er svo fyrirmælt, i 10 gr., a.m.k. fullur meter sé frá kistuloki upp á grafarbarm, en í reglugerðinni frá 1934, 8. gr., er þess krafizt, að dýpt grafa sé, þar sem landslag leyfir, minnst 2 m., eða frá yfir- borði kistu upp að grafarbarmi minnst 1 m. í Þýzkalandi er dýptin höfð 1 —2 m. Ef grunnvatn stendur hátt, verður að ræsa ■fram eða hækka landið, eins og áður var minnst á. Þegar velja á garðstæði, á að grafa 2 eða fleiri grafir, 2 14—4 m. djúpt, til þess að sjá hæð og rennsli grunnvatns- ins. Stærð grafreita fer eftir fólksfjölda og áætlaðri fólksfjölgun og skipulagi þeirra. Erlendis er þá miðað við meðaltal dá- inna, fullorðinna og barna síðustu 10 ár. Erfitt getur verið að áætla fólksfjölgun hjá oss, einkum í bæjum. Stærð einstakra grafstæða er víða ákveðin um 4 m2 eða um 2,60 m. á lengd og 1,60 m. á breidd. Er þá stærð grafarinnar ákveðin 2 m. á lengd og 1. m. á breidd, en 30 cm. bil öllum megin til þess að taka við rotnun- arefnum frá kistunni. Þar sem grafir eru teknar í röðum, má þó minnka þetta bil um helming, og verða þá 30 cm. milli kist- anna, eða breidd hvers leiðis 1,30 m. 1 reglugerð vorri frá 1934, 8. gr., er ákveðið, að hverju leiði sé ætlaður flötur, er sé 2^/2 ni. á lengd og 1% m- á breidd, og er það mjög nálægt því, sem þegar er getið. Skipulag kirkjugarða hefur vitanlega á- hrif á stærð þeirra. 1 8. gr. kirkjugarðs- laganna er svo fyrirmælt, að gjöra skuli uppdrætti að kirkjugörðum og sérfróður maður skuli látinn gjöra tillögur um skipulagið og uppdrætti þar að lútandi. I reglugerðinni frá 1934 er í 8. gr. tekið nánar fram um þetta og þar eru fyrirmæli um stærð legstaða, eins og þegar er tekið fram. Aðalgangstígar mega ekki vera mjórri en 1 j/2 m. og hliðargangstígar ekki mjórri en 1% m. 1 þessari sömu grein er tekið fram, að kirkjugarðstæðið sé valið í samráði við lækni, og skal hann votta, að það fullnægi heilbrigðisreglum, og eru einnig um það ákvæði í 7. gr. sjálfra lag- anna. Um heimagrafreiti er læknisskoðun- ar og álits hins vegar ekki krafizt. 1 34. gr. segir, að þá skuli leggja fram vottorð hreppstjóra og tveggja skilríkra manna um, að staðurinn sé vel valinn. Um skipulag kirkjugarða skal þess get- ið, til viðbótar, að erlendis er það talið tvenns konar, eldra og nýrra. Eldra skipu- lagið er raðir legstaða með götum á milli raðanna. Nýrra skipulagið eru svoneifndir landslagsgrafreitir, en þar eru þeir gjörðir svo, að þeir líkjast skemmtigörðum. Þeir þurfa meira svæði. f eldri görðum er 1/6 ætlaður i götur, en i hinum nýrri 1/5 upp í 1/2 í götur og ógrafin svæði. Umsjón. — Undir hana má telja eftir- lit og þær framkvæmdir, sem miða að því, að varðveita og bæta grafreitina, en hindra allar skemmdir og þær framkv., sem horfa til skemmda og óhollustu. Hér skal í fáum orðum vikið að nokkrmn þess- ara atriða. Heppilegast er talið, að kirkjugarðar séu í opinberri umsjá og ákveðnar reglur um þá eru sjálfsagðar, svo sem dýpt cg fjarlægðir grafa o. fl. Ekki má grafa svo þétt, að kista sé við kistu, því að þá verður of lítill jarðvegur til þess að taka við rotn- uninni og auk þess geta þá óhollar loftteg- undir komizt út úr gröfinni. Fjöldagrafir eru og bannaðar. Mikill klæðnaður á lík- uni tefur rotnun og einnig of sterkar og þéttar kistm'. Grafhýsi (hvelfingar) eru ekki talin heppileg, en eru þó leyfð. I lögum vorum, 12. gr. er ákveðið, að banna megi grafkapellur nema í sérstökum röð- mn, og í reglugerðinni er ákveðið, að þær skuli settar í sérstakri röð í útjaðri, vera gerðar úr steini eða steinsteypu og mega aldrei vera hærri en V2 m- ofanjarðar. Grafir innan kirkju eru bannaðar með kirkjulögunum, 9. gr. Grafhvelfingar eru annars leyfilegar frá hollustu sjónarmiði, ef svo er um búið, að þær séu fyllilega loftþéttar að ofan og allar neðanjarðar. Að sjálfsögðu eiga kirkjugarðar að vera vel girtir og fallega hirtir. Jurtagróður á leiðum er talinn flýta rotnun og því heppi- legur. Þar, sem landrými er lítið, tíðkast það, að grafa aftur á sama stað. Það er talið gerlegt, þegar liðinn er tvöfaldur rotnun- artími, þ. e. 25—30 ár frá því hann var síðast notaður. 1 íslenzku lögunum hef ég ekki séð slík ákvæði, en aftur á móti er leyft að slétta yfir niðurlagða grafreiti að þeim tíma liðnum, en jarðrask má ekki gjöra fyrr en eftir 60 ár. Líkbrennsla, sem nú orðið er í tízku. verður ekki gjörð hér að umtalsefni, þar sem það er utan þessa verkefnis. Vinir líkbrennslu telja henni margt til gildis, en uni leið finna þeir greftrun margt til foráttu og er það stundum áróðurskennt. Heilsufræðin hefur hingað til ekki gjört upp á milli þessara tveggja aðferða út af fyrir sig, þ. e. a. s. ef öll skilyrði til greftr- unar eru góð og fullnægja þeim kröfum, sem gjöra verður. Þegar þeim skilyrðum er fullnægt hjá báðum aðferðunum, verður það smekks- atriði og e. t. v. lífsskoðunaratriði, hvora aðferðina menn velja heldur. AKRANES 9i

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.