Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Qupperneq 9
UÍV Fréttir FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2004 9 HVERTFÓRU PENINGARNIR? Sveinbjörn Kristjánsson Tileiginnota....................48.623.835 Árni Þór Vigfússon Eigin reikningur.................6.921.000 Kristján Ra. Kristjánsson Eigin reikningur.................1.460.250 RagnarOrri Eigin reikningur.................4.428.315 Auður Harpa Eigin reikningur...................730.000 Hlutafélög Alvara lífsins \ Eigendur: Árni Þórog Kristján Ra. Haninn ehf. _ _ _ Eigendur: Árni Þórog Kristján Ra. Sveinbjörn varframkvæmdastjóri og varamaður í stjórn. 129.211.536 22.421.824 % .-.i Hafskip ehf..1|_y....................... 5.964.632 Eigandi: RagnarOrri. 5.175.000 1.918.383 Lífstíll ehf.. Eigendur: Árni Þór og Kristján Ra. Bankastræti12ehf...: Eigendur: Sveinbjörn og Ragnar Orri. ísafoldarhúsið ehfJ Eigendur: Árni Þór og Sveinbjörn. 1.743.000 Nýja kaffibrennslan ehf. Eigendur: Árni Þór og Kristján Ra 1.000.000 Timburfélagið ehf.: Sveinbjörn greiddi hlutafétil félagsins. íslenska sjónvarpsfélagið. 4.000.000 25.144.182 Ymislegt..l_>(.......................2.404.983 Sveinbjöm greiddi reikninga í nafni annarra. Samtals:...•..:...........!.......261.146.944 Unnusta Árna Þórs Vigfússonar stendur þétt við hlið hans í stóra Landssímamálinu. Séra Vigfús Þór Árnason, sóknar- prestur í Grafarvogi og faðir Árna Þórs, líkir verðandi tengdadóttur sinn við klett í hafinu og segir hana búa yfir óvenjumiklum styrk. „Ég sé enga ástæðu til að forða mér. Eg elska Arna Þór,“ segir Mariko Margrét Ragnarsdóttir, fyrrum sjón- varpsstjarna á Skjá einum og heit- kona Árna Þórs Vigfússonar, eins fimmmenninganna sem verma nú bekk ákærðra í stóra Landssímamál- inu. Árni Þór og Mariko felldu hugi saman löngu áður en Landssíma- málið kom upp og bjuggu saman í einni af penthouseíbúðunum við Skúlagötu sem nú hafa verið boðnar upp. Þaðan fluttu Árni Þór og Mariko á Grundarstíginn, í hjarta 101. Þau búa enn saman og erfiðleikarnir hafa í raun þjappað þeim saman. „Nú er bara að takast á við fram- haldið hvernig sem það verður," seg- ir Mariko en viðurkennir þó um leið að ekki hafi þetta alltaf verið auðvelt. Það þurfti sterk bein til að þola góðu dagana og enn sterkari til að stíga þau skref sem nú eru farin á vit óvissunn- ar. Aðspurð segir Mariko að brúðkaup hennar og Árna Þórs sé ekki í spilun- um eins og stendur og þá ekki heldur sumarleyfi á næstunni. Nú sé mikilvægast að standa saman, þreyja þorrann og lifa í voninni um farsælar lyktir fyrr en síðar. „Hún Mariko hefur svo mikinn styrk. Hún ér eins og klettur," segir séra Vigfús Þór Árnason, sóknar- prestur í Grafarvogi og faðir Áma Þórs. „Þetta er einstök manneskja sem nú er að ljúka viðskiptafræði- námi í Háskólanum í Reykjavík og í því styður sonur minn hana eins og hún hann í öðru.“ Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrver- andi aðalféhirðir Landsímans, kom til landsins með vél Iceland Express frá Stansted í fyrrakvöld til að mæta við réttarhöld í Héraðsdómi Reykja- víkur í gærmorgun. Gekk Sveinbjörn firá borði laust eftir að skyggja tók og fór í gegnum tollinn og út um út- göngudyr Leifsstöðvar á þvxlíkri ferð að eftir var tekið. Á leiðinni huldi hann andlit sitt undir brúnum ryk- fiakka og stök upp í bláan jeppa sem beið hans við dyrnar. Hann var svo mættur í Héraðsdóm Reykjavíkur árla morguns og gekk sem fyrr með andlit sitt hulið sem best hann mátti. hugaðri einkavæðingu fyrirtækis- ins. Það hefur vakið undrun að ekk- ert í tengslum við fjárdrátt Svein- björns hafi komið upp í þeirri vinnu þar sem venjan er að stemma af reikninga. Eins eru menn undrandi á því að ekki hafi verið athugað sér- stakiega hvers vegna fyrirtæki eins og Landssíminn hafi verið að greiða háar upphæðir í dráttarvexti. Á sama tíma var mikill peningur sett- ur í að setja upp ný fjárhagsuppiýs- ingakerfi. Spurning um tíma Sigurður Þórðarson rfkisendur- skoðandi segir að samstarfsfólk Sveinbjörns virðist hafa treyst hon- um mjög vel. „Hann kemur sér í mjög góða stöðu innan fýrirtækis- ins sem gerir honum kleift að geta dulið þetta í þennan tíma,“ segir Sigurður. Hann hafi náð að blekkja ekki bara endurskoðendurna og stjórnendurna heldur einnig sam- starfsfólkið. „Það er eilíft vándamál að þeir sem eru með ásetning að fremja eitthvert brot, framkvæma þau og geta síðan varist því að þau komist upp í ákveðinn tíma. Þetta er einkenni á því þegar svona hæfur maður skapar sér aðstöðu innan fyrirtækisins til að geta varið þenn- an gjörning." Sigurður segir menn geta velt því fyrir sér hvort það hafi tekið óeðlilega langan tíma fýrir málið að komast upp. Hann vitnar til úttektar frá Bandaríkjunum þar sem fram kemur að einungis 21% brota uppgötvist eftir fyrsta eða annað ár. „Auðvitað geta menn sagt að ytri endurskoðendur, innri endurskoð- endur eða stjórnendur hafi brugð- ■ist, ef þú vilt finna sökudólg að þessari hlið málsins," segir Sigurð- ur. „Þetta er alltaf spurning um tíma, segi ég, um það hvenær svona mál komast upp," segir Sigurður Þórðarson. „Þetta gerðist svona og það átti fleiri en einn aðili að upp- götva þetta fyrr, en það gerðist ekki," segir hann. kgb@dv.is DÓIVISTÓLL GÖTUNNAR „Það er ótrúlegt að þetta sé yfir höfuð hægt. Ábyrgðin hlýtur að liggja hjá stjórn- endum fýrirtækisins." Erla Soífía Bjömsdóttii „Það á bara að stinga þeim inn og henda lyklunum. Þetta sýnir bara að engum er treystandi lengur." Pétur Pétursson „Þetta er ótrúleg upphæð sem þeir ná. Manninum var treyst fyrir þessu en það er alltaf hægt að stela ef viljinn er fyrir hendi." Jón Guömundur Jóhaimsson „Mér finnst þetta sorglegt. Greinilegt að eftirlitshlutverk ríkis- ins hefur brugðist." KristSn Guö- mundsdótúr „Mér finnst þeir megi sitja inni. Þeir sem gera eitthvað svona eiga að gjalda fyrir það." Ásdls Gunnars- dóttir „íslendingar eru orðnir svolítið gráð- ugir. Það er margt grunsamlegt við þetta." Lára Kristjana Olafson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.