Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2004
Fréttir DV
Nýtt
varðskip
Jón Kr. Óskarsson, vara-
þingmaður Samfylkingar,
spurði dómsmálaráð-
herra hvenær nýtt
varðskip væri væntan-
legt til landsins og
hvað liði smíði þess.
Björn Bjamason sagði
að unnið væri að und-
irbúningi málsins fyrir fjárlög
næsta árs; ekki væri hægt að
setja nákvæma tímasetningu
á nýja skipið en málið væri í
vinnslu. Jafnframt sagði
hann að nýlega væri lokið
vinnu Ríkiskaupa, Landhelg-
isgæslunnar og dómsmála-
ráðuneytisins með dönskum
sérfræðingum sem fengnir
voru til að fara yfir málið.
Samkyn-
hneigð
brottræk
Þingið á Zanzibar, sem
er eyja skammt austur af
Afrflm og hluti af Tanzan-
íu, hefur samþykkt frum-
varp sem gerir sarnkyn-
hneigð brottræka. Viður-
lögin við samkynhneigð
eru allt að 25 ára fangels-
isvist fyrir karlmenn, en 7
ára fangelsi fyrir konur.
Dómsmálaráðherra
Iandsins segir löggjöfinni
ætlað að bjarga menningu
Zanzibar frá því að spill-
ast. Sjaldgæf samstaða var
meðal stjómar og stjóm-
arandstöðu í málinu.
Vagg og velta
íverðbréfum
Velta með hlutabréf í
Kauphöll íslands hefur auk-
ist síðustu átta mánuði í röð,
samanborið við árið á und-
an. Þetta
kemur fram
á vefsíðu
greiningar-
deildar ís-
landsbanka.
Veltan nam
um 170 milljörðum króna
fyrstu þrjá mánuði ársins
sem er rfflega helmingur allr-
ar veltu ársins 2002 og tæp-
lega þriðjungur veltu alls síð-
asta árs..
Friðrik Þór Friðriksson
Hjördís Hákonardóttir héraðsdómari undirbýr skaðabótamál á hendur Birni
Bjarnasyni dómsmálaráðherra vegna brots á jafnréttislögum. Launamunur héraðs-
dómara og hæstaréttardómara nemur 100 til 200 þúsund krónum á mánuði auk
þess að undirréttardómarar hafa lakari lífeyrisrétt.
Skaðabótakrafa vofir
yfir dómsmálaráðherra
Hjördís Hákonarddttir héraðsdómari mun að öllum líkindum
stefna Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra til greiðslu skaða-
bóta vegna skipunar ráðherra á Ólafi Berki Þorvaldssyni hæsta-
réttardómara í ágúst í fyrra. Kærunefnd jafnréttismála komst að
þeirri niðurstöðu að skipunin fæli í sér brot á jafnréttislögum.
Skipunin seinasta haust var gríð-
arlega umdeild þar sem hæfnisnefnd
hafði talið flesta aðra umsækjendur
hæfari en Ólaf Börk sem af mörgum
er talinn hafa notið þess helst að vera
náfrændi Davíðs Oddssonar forsætis-
ráðherra. Gagnrýnin seinasta haust
snéri þó ekki að kynjamismunun ráð-
herrans heldur því að Hæstiréttur
hafði sjálfur lýst því að hæfastir væru
Eiríkur Tómasson lagaprófessor og
Ragnar H. Hall
hæstarétt-
arlög-
mað-
sem kærðu skipunina báðir til um-
boðsmanns Alþingis. Þar er enn beð-
ið niðurstöðu. Björn Bjarnason hefur
lýst því að hann hafi staðið vel að
skipuninni. Hann hefur lýst því að
óeðlilegt sé að Hæstiréttur sjálfur
velji í nýjar stöður með því að hæfnis-
nefnd skipuð dómurum meti um-
sækjendur. Þá er
Atli Gíslason, lögmaður Hjördís-
ar, segir að nú sé þess beðið að Björn
svari bréfi þar sem hann er spurður
um það hvernig hann hyggist bregð-
ast við vegna þeirrar niðurstöðu
kærunefndar að hann hafi gerst
brotíegur við jafnréttislög með því
að ganga framhjá Hjördísi við
skipan hæstaréttardómarans.
„Málið er hjá dómsmálaráð-
herra og við bíðum eftir svari.
Kærunefndin segir hann hafa
brotið gegn jafnréttislögunum
og beinir því til hans að leita
lausna," segir Atli.
Hann segir að ákvörðun um
málshöfðun verði tekin þegar
Bjöm hafi svarað bréfinu. Hann
segir að komi til
þess muni verða
Hjördís Hákonardóttir Var sniögengin af
rádherra og kærdi. Vann sigur.
Hæstirettur Þaöþyk
ir eftirsóknarvert ad
fá vinnu sem hæsta-
réttardómari. Launin
eru ekkert slor og lif
eyrisrétturinn feitur.
tekt á því tjóni
sem Hjördís hafi
orðið fýrir.
„Þá mun fara
fram trygginga-
fræðileg úttekt á
því hver er mis-
munurinn á laun-
um hæstaréttar-
dómara og launa
Hjördísar sem
héraðsdómara," AtliGíslason Velgir
segir Atli. dómsmálaráðherra
Til grundvallar undir uggum og und-
skaðabótakröfu irbýr skaðabótakröfu.
verður byggt á 28.
grein jafhréttislaganna sem mælir fyr-
ir um skaðabætur ef brotið er
gegn lögunum. Þar yrði
bæði um að ræða fjártjón
og miskabætur. Mismun-
ur á launum héraðsdóm-
ara og hæstaréttardóm-
ara er nálægt 150 þúsund
krónum á mánuði. Hjör-
dís Hákonardóttir á eftir
um 10 ár af starfsævi
sinni sem þýðir að
krafan yrði um 18
milljónir króna
vegna launanna
einna. Þá er ótalið að
lífeyrisréttur héraðs-
dómara er mun lakari og
mun því dómsmálaráðherra
verða krafinn um bætur
vegna þess til 20 ára. Að
samanlögðu er ljóst
að kröfur Hjör-
„Málið er hjá dóms-
málaráðherra og við
bíðum eftir svari."
dísar, komi til málssóknar, muni nema
tugum milljóna króna.
Ekki náðist í Björn Bjamason
dómsmálaráðherra vegna þessa máls
en ráðherrann hefur lýst því yfir að
hann svari DV aðeins skriflega eða
gegn því að fá að lesa óbirtar fréttir.
Hann var því ekki til svara um það
með hvaða hætti hann hyggðist axla
ábyrgð á þessu máli.
rt@dv.is
Björn Bjarnason Brást
hinn versti vid þeirri
nidurstödu kærunefnd-
ar ad hann hefði brotid
jafnréttislög med skip-
un hæstaréttardómara.
Telur lögin vera tima-
skekkju.
Friörik Þór Friöriksson er ófor-
betranlegur húmoristi og sú
góöa gáfa hefur reynst hon-
um afar vel! þeim hremming-
um sem hann hefur staöið í aö
undanförnu vegna slæmrar
stöðu fyrirtækis síns. Hann er
hugmyndaríkur framkvæmda-
maöur sem hefur lag á aö
kalla fram þaö besta hjá fólki
meö því að troöa ekki skoöun-
um slnum upp á þaö.
Deilt var á þingi um markaðssetningu kindakjöts erlendis
Vopnaskaki Framsóknarverðurað Ijúka
Jón Bjamason þingmaður Vinstri-
Grænna spurði utanrfkisráðherra í
gær hvernig þeim tíu milljónum sem
eymamerktar em
markaðssetningu
kindakjöts erlendis
yröi varið. Halldór
Ásgrfrnsson vitnaði
í nefiid sem skilaði
af sér áliti á dögun-
um þar sem mælt
er með þ ví að millj -
ónirnar fari í ráðn-
ingu sérstaks
starfsmanns.
Einn maður hefur verið orðaður
við starfið - Theódór Bjamason, fyrr-
um forstjóri Byggðastofhunar en
Þómnn Sveinbjarnardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sagði
ráðningu sérstaks starfsmanns
minna á stjórnarhætti í ráðstjórnar-
ríkjunum.
Björgvin G.
Sigurðsson
Jón Bjarnason Spurði hvernig tíu milljón-
unum eigi að vera varið
Björgvin G. Sigurðsson, sam-
flokksmaður hennar, gagnrýndi
einnig ráðninguna og sagði að
vopnaglamrinu innan Framsóknar
yrði að ljúka til að menn gætu ein-
beitt sér að því sem skipti máli.
Þau átök sem Björgvin vitnar til
em pistlaskrif Valgerðar Sverrisdótt-
ur, þar sem hún sagði skynsamlegra
að flytja út þorramat en eyða milljón-
um f markaðsátak kindakjöts og skrif
aðstoðarmanns hennar, Páls Magn-
ússonar, sem sagði útflutning á
kindakjötí minna einna
helst á nýju fötin keis-
arans.
Þrátt fyrir gagn- f
rýni þeirra stendur **•'
Halldór Ásgrímsson *s
við þá ákvörðun sína 7
að verja tíu milljónum í
markaðssetn-
ingu kinda-
kjöts.
Halldór
Ásgríms
son
Segist
vinna
eftiráliti
nefndar-
Karlar segjast
betri ökumenn
Nýlega kom út skýrsla þar sem
kynntar em niðurstöður úr rann-
sókn á aksturshegðun meðal nær
2.000 nemenda í framhaldsskól-
um og Há-
skóla ís-
lands á aldr-
inum 17 til
30 ára.
Skýrsluna
má finna á
vefsíðu Ríkislögreglustjóra. í
skýrslunni kemur meðal annars
ffarn að næstum 67% ökumanna
telja sig vera betri en meðalöku-
manninn. Karlar telja sig vera
betri ökumenn en konur og elstu
ökumennirnir telja sig vera aðeins
betri ökumenn en þeir yngstu.
Ekkert bendir til þess að reynslu-
litlir ökumenn telji sig vera betri
ökumenn en þeir sem hafa meiri
reynslu.