Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2004, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2004, Síða 22
22 LAUGARDAQUR 1.MAÍ2004 Fókus DV Baróninn, íslenski sjóms Sveinbjörn Egilsson hét maður úr Hafnarfirði, fæddur 1863. Ungan að árum greip hann óeirð og hann hélt af landi brott og lagðist í úthafssiglingar. Hann flæktist til Indlands þar sem hann varð innlyksa og var þar á flækingi um skeið meðan hann beið eftir nýju skipsrúmi. Seinna gaf hann út Ferðaminningar sínar sem eru bæði skemmtilegar og fróðlegar og segir hér að neðan frá kynnum hans af Þjóðverja nokkrum sem kallaði sig barón og af indverskri frú sem þeir félagar heilluðust af, þótt þeim stæði nokkur stuggur af henni um leið. „Hann sagði mér að hann væri á götunni og gæti hvergi fengið inni. hetta þóttu mérharðit kostir og spurði hann hvort hann væri svangur en hann gaf ekkert út á það. Ég spurði hann hvort hann vildi carry og hrísgrjón; það þá hann og fórum við inn aftur. Þeg- ar í ljósið kom sá ég að þessi mað- ur var illa klæddur og aumingja- legur. Hann fékk svo mat og glas af rommi og hresstist töluvert við það. Flúði brostnar ástir Hann talaði ensku verr en ég og spurði ég hann því hverrar þjóðar hann væri og kvaðst hann Þjóð- verji vera, hafa komið á ensku skipi frá Hamborg til Calcutta en sjóferðavottorð sín væru þannig að hann mundi aldrei fá skiprúm hér. Ég bað hann að lofa mér að sjá skjalið og var sem hann sagði að fyrir dugnað hafði hann fengið slæman vitnisburð. Ég spurði hann þá hvort hann væri ekki sjó- maður en hann gaf lítið út á það, sagðist vera barón von Luditz en yngsti sonur [og] réttindalaus. Kvaðst hann hafa verið trúlofaður ríkri stúlku sem hefði svikið sig og henni til storkunar fór hann í sigl- ingar. Hér mætti enginn komast —að.því hver hann væri, þá yrði það símað heim, því ættmönnum sín- um mundi þykja það skömm að vita sig flækjast þannig. Þetta þóttu mér stórtíðindi, því trúgjarn var ég og hafði auk þess lesið um eitthvað líkt þessu, en eftir því sem við spjölluðum leng- ur saman varð ég var við meiri fá- visku en vænta mátti ef hann var af slíkum höfðingjum kominn. Óskrifandi aðalsmaður Ég fór að hugsa margt og detta í hug að maður þessi hefði þegar séð hve lítilsigldur ég var og ætlaði nú að nota sér það í hag. Ég spurði hann því hiklaust hvort hann af ásettu ráði væri að ljúga að mér en því neitaði hann en grunur minn var þó hinn sami... Um klukkan þrjú var ég kom- inn að sjómannaheimilinu og ekki leið á löngu áður [en] ég kom auga á baróninn. Virtist mér hann enn lélegar til fara er ég sá hann við dagsbirtu en hann hafði komið mér fyrir sjónir kveldinu áður, því í myrkri eru allir kettir gráir. Við heilsuðumst og fórum að tala saman. Ég spurði hann hvort hann hefði ekki lært ensku og sagði honum að ég gæti ekki skilið það hve illa hann talaði, þar sem hann væri af tignum ættum og hefði því gengið á góða skóla, en út á þessar athugasemdir gaf hann lítið, en nú ásetti ég mér að ganga úr skugga um hvort hann væri stórlygari eða ekki og spurði hann hvort hann vildi ekki verða mér samferða inn á lestrarstofurnar og bauð honum „cacao" er þangað kæmi og því tók hann vel... Þegar við vorum niður á lestr- arsalnum bað ég um tvo bolla af „cacao“, kökur, pappír og blek. Svo sagði ég: „Herra barón von Luditz, nú skrifa ég nafn mitt og þér geymið þann miða, svo skrifið þér yðar nafn á þetta blað, það læt ég í vasa minn." Hann horfði á mig litla stund og segir svo: „Ég kann ekki að skrifa." Hitinn hefur ruglað ein- hverju hjá honum Ég spurði hann þá hvort hann héldi að nokkur tryði því að hann væri af aðalsættum og kynni ekki að skrifa nafnið sitt og bað hann að segja mér hið sanna, því mér stæði svo hjartanlega á sama, hvort hann væri heldur barón eða glæpamaður, því ræflar værum við báðir sem stæði og ættum við að vera kunningjar, þá færi best á því að við héldum okkur nokkurn veginn við sannleikann... [Á]ður en við fórum út úr lestr- arsalnum var hann búinn að skýra mér frá að hann væri fískimaður frá Geestemunde; að hann hefði haldið að vistin á hinum stóru seglskipum sem færu til heitu landanna væri góð og veran þar skemmtileg, en að þær vonir hefðu brugðist og verk sín á því skipi er hann réðist hefði farið í handskolum og afleiðingarnar væru þær að hér væri hann einn síns liðs, þúsundir af mílum frá vandamönnum og vinum, með slæm vottorð sem enginn vildi líta. Ég spurði hann að því hvernig honum hefði til hugar komið að segjast vera barón og ætlað sér að fá menn til að trúa því, en því svaraði hann svo að heima hefði hann þekkt ungan mann, sem sagður var sonur þjónustustúlku á hóteli og einhvers greifa, og „Eins og ég hefáður um getið var megn negralykt afþessari konu og hálfbauð mér við henni, en baróninn var á góð- um vegi að verða skotinn; það ályktaði ég afþví að þegar við skildum við hana bað hann hana um koss og var það auð- sótt mál og að end- ingu grúfði hann sitt afskræmda andlit milli hinna miklu brjósta og kvaðst geta dáið þannig." þetta sagða faðerni greiddi götu þessa unga manns á ýmsan hátt. Þetta datt honum í hug að reyna hér, þegar hann var orðinn ein- stæðingur og öll sund virtust lok- uð. Ég átti illt með að skilja þetta að öllum líkindum hefur hitinn ruglað einhverju hjá manninum og hann ekki verið það sem við hér stundum kölluð „normal“.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.