Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1877, Qupperneq 32
korau einnig nýir Ijáir og stálsvarfsbrýni (áætlað verð
i rd. 24 sk. og 20 sk.).
Mai 20. Strandaði norskt briggskip í austan roki á Vest-
mannaeyjum, skipverjar komust af.
— 24. Konúnglegterindisbréffyrirlandshöfðíngjann Hilmar
Finsen, til að setjaalþíng og birta þar konúngs boðskap.
— s. d, Boðskapur konungs til aiþíngis.
— s. d. Bráðabirgða-þfngsköp handa alþíngi Islendínga.
— s. d. Konúngsbréf, sem veitir landshöfðíngja vald til
að lengja alþíng um 14 daga.
— 26. andaðist húsfreyja Sigriður Þorláksdóttir, kona pró-
fasts sfra Olafs Einarssonar (Johnsens) á Stað á Reykja-
nesi (fædd iSxó)
— 27. Ráðgjafinn fyrir Island úrskurðar um, hvernig gjalda
skuli toll af vínfaungum, sem koma með frönskum
fiskiskipum handa herskipum Frakka, og eru lögð upp
í vöruhús þeirra í Reykjavík.
— 30. Ofsa stormur fyrir Norðurlandi; fórust þrjú fiskiskip
af Siglufirði, drukknuðu 25 sjómenn.
— 31. andaðist málaflutnfngsmaður og alþíngismaður Jón
Guðmundsson, fyrrum ritstjóri Þjóðólfs (fæddur 1807),
kaupstjóri hlutaverzlunar-félagsins f Reykjavík, einarður
og ótrauður ættjarðar vinur. Fjölmenn jarðarför hans
10. Juni.
Juni 1. Kjörfundur Snæfellínga að Staðastað: kosinn alþíngis-
maður Þórður Þórðarson hreppstj. á Rauðkollstöð.
— s. d. Btskupinn hélt yfirreið og kirknaskoðanir f Gull-
bríngu sýslu.
— 2. og 3. Tveir Islendíngar (Kristjáu Jónsson og Sigurður
Jónsson) gengu undir embætispróf í lögum, hinn fyrri
með fyrstu einkunn, hinn síðari með annari.
— 7. Póstgufuskipið Diana kom til Reykjavfkur í þriðju
ferð, fór aptur 17. Juni.
— s. d. Ljósmyndari Sigfús Eymundarson áskilur sér einka-
réttmdi til nokkurra ljósmynda, eptir tilskipun 11. Decbr.
1869, í bréfi landshöfðingja 1. Septbr. 1875 er þess getið,
að Sigfús hafi áskilið sér einkarétt samkvæmt lögum
24. Marts 1865, en þau lög nái ekki til Islands.
— 8. andaðist húsfrú Halldóra Þorláksdóttir, ekkja eptir
cand. med. Olaf (Stefánsson) Thorarensen á Hofi í
Möðruvalla klausturs sóltn (fædd 1806).
— 9. andaðist Jóhann Meilby, faktors son af Vopnafirði,
student við Kaupmannahafnar háskóla, 24 ára aðaldri;
hann lagði fyrir sig málfræði
— 11. Ráðgjafa skipti hjá konúngi. Klein fór frá, Nelle-
mann, prófessor í lögfræði og prófastur í Regensi, varð
ráðgjafi fyrir Island, og um leið dómsmála-ráðgjafi.
— 13. Samsæti í Reykjayik til fagnaðar við Jón Siðurðsson,
þíngmann Isfirðínga. I samsæti þessu var borin upp tillaga
(30)