Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1877, Qupperneq 38
1) Fjárlög íslands fyrir árin 1876 og 1877.
2) Lög um laun íslenzlcra embættisraanna.
3) Lög um skipun læknahéraðanna.
4) Lög um sölu prentsmiðju Islands í Reykjavík.
5) Lög um heiðurslaun handa J. S. alþíngism. Isfirðínga.
6) Lög um breytíng á tilsk. 26. Febr. 1872 um póstmál.
7) Lög um vegina á Islandi.
8) Lög um brunamál í Reykjavík.
9) Lög um verzlunarstað við Blönduós.
Oktober 15. Skiptapi úr Leiru á Suðurnesjum, fórst skipið
með firarn mönnum.
— s. d. Póstgufuskipið Diana kom til Rvíkur í sjöttu ferð.
Skipið hafði að færa eirmynd af Thorvaldsen, sem var
gjöt frá Kaupmannahöfn í minníngu þúsund ára hátíðar
Islands 1874. Skipið fór aptur 20. Oktbr.
— 16. fórst skip með sex mönnum á Miðfirði í Húnav.s.
■— 17. varð fjarka mikið eldgos á Mývatnsöræfum, hafði
eídurinn verið uppi að öðru hverju alt sumarið og síðara
hluta undanfaranda vetrar.
— 20. Konúngleg auglýsing um, að ríkisstjórn skuli falin á
hendur rlkisarfa, meðan konúngur er ijærverandi á ferð
sinni í útlöndum.
— s. d. Landshöfðínginn leyfir bæjarstjórninni í Reykjavík
að taka 2000 króna lán, til að kaupa fyrir „fjósker11 til
að lýsa götur bæjarins.
— 21. festi sig hvalr (14 álna laung andarnefja) á Laufás-
grunni, fengust af henni rúmar 13 tunnur lýsis úr spikinu.
— 23. Aætlun amtsráðsins í Suðuramtinu fyrir árið 1876;
niðurjöfnun á lausafé 7,356 kr. 52 a., áætlaður afgángur
við árslokin 1876: 500 krón.
— 26. kom út Nr. 39—40 af blaðinu Norðanfara undir rit-
stjórn Björns Jónssonar, frá hinni nýju prentsmiðju hans
(sbr. 28. Juni), eptir að blaðið hafði legið niðri um hér-
umbil 4 mánuði.
— 26. andaðist húsfrú Guðlaug Björnsdóttir, kona sira Hjör-
leifs Guttormssonar á Tjörn í Svarfaðardal, 63 ára.
— 29. Skipuð með konúngsúrskurði nefnd þriggja manna í
skattamálið: Magnús Stephensen, Halldór Friðriksson,
Jón Sigurðsson frá Gautlöndum.
— s. d. sömuleiðis skipuð fimm manna nefnd í skólamálið:
Pétur biskup Pétursson, Jón Þorkelsson rektor, Dr. Grímur
Thomsen, Þórarinn Böð varsson prófastur, Helgi Einarsson
Helgesen, skólakennari í Reykjavík.
November 3. stofnað sjómannafélag (sjómanna-klúbbur) í
Rvík, handa sjómönnum og verkam. bæjarins, til skemt-
unar og fróðleiks; frumkvöðlar voru Egifl Svb. Egilsson,
Arni Thorsteinsson landfógeti, Matth. Jochumsson ritstj.
og Þorlákur O. Johnson verzlunarmaður.
— 7. Sunnudagaskóli handa iðnaðarmönnum byrjar í Reykja-
(36)